Þjóðmál - 01.12.2009, Síða 44
42 Þjóðmál vetur 2009
fávísra æsifréttablaðamanna, sýnast hafa verið
álíka grænir í flestum námsgreinum . Meira
að segja íslenskir ráðamenn taka undir þetta
undarlega tal um „loftslagsvandann“ . Það er
kannski hægt að fyrirgefa útlendingum, því
náttúrufræðikennsla virðist í molum erlendis
sem fyrr sagði, en Íslendingar ættu að vita
meira . Ég get fullyrt, að það var ógerlegt að
ná stúdentsprófi frá eina menntaskólanum
í Reykjavík í minni tíð án þess að vita mest
allt eða allt það sem að framan greinir . Hvers
vegna tala þeir þá svona?
Strax í fornöld tala ýmsir höfundar um versn
andi veðurfar og stækkun eyðimarka og menn,
t .d . á Norðurlöndum hafa vitað öldum saman
að gróður var áður miklu meiri og jöklar minni
en nú . Þegar snemma á 19 . öld var bent á, að
trjálína í Skandinavíu hefur sums staðar lækkað
um 700–900 metra frá því skógur óx hæst upp
í fjöll . Það var svo um aldamótin 1900 sem þeir
Blytt og Sernander gerðu í meginatriðum grein
fyrir þeirri hægu kólnun og þornun sem staðið
hefur frá bóreölskum tíma og enn er fylgt, en
það voru einmitt þeir sem notuðu fyrst orðið
„bórealskur“ um hið afar raka og heita tímabil
fyrst eftir flóðið mikla fyrir um 11 .500 árum,
þegar loftslag var heitara en ofstækisfyllstu
gróðurhúsamenn gera ráð fyrir í „svörtustu“
tölvuspám sínum og jörðin var einn aldingarður .
Þetta og margt annað ættu alvöru, marktækir
vísindamenn að vita, en margir þeirra gera það
augljóslega ekki .
Íslenskir fjölmiðlamenn eru vissulega sekir
um margt, en þeir eru ekki sekir um allt, og
í þessu máli er þáttur þeirra aðallega að éta
athugasemdalaust upp blaðrið úr fákænum
erlendum starfsbræðrum sínum . En hvað með
alla vísindamennina? Þáttur þeirra er merki
legur og undarlegur . Menn hafa nefnilega
vitað afar lengi að tölvulíkön eru óþörf,
aðeins þarf að rekja mannkynssöguna (ekki
jarðsöguna) afturábak í fáeinar árþúsundir .
Getur verið að þeir séu slíkir „fagidíótar“ að
þeir viti þetta ekki? Margt bendir til þess .
Erlendir stjórnmálamenn virðast hafa gripið
blaður fjölmiðlamanna um þessi mál á lofti
og síðan fengið vísindamenn sér til hjálpar .
Þetta hefur síðan undið upp á sig . Allir vita,
að lögfræðingur gefur það „lögfræðiálit“ sem
best hentar þeim sem borgar fyrir álitið . Eins
og margir hafa bent á eru vísindamenn á
stöðugum höttum eftir styrkjum, og undan
farin ár renna flestir og stærstu styrkirnir til
þessara mála . Fjölmiðlamenn sem þiggja
laun sín og þar með hús, bíl og sjálf fötin
utan á sig beint úr vösum Baugsforkólfanna
ímynda sér margir að þeir séu óháðir, en eru
það ekki . Svipað gildir um vísindamann sem
þiggur laun sín frá t .d . Norðurskautsráðinu,
Evrópusambandinu eða Sameinuðu þjóð un
um . Þeir fá þær niðurstöður sem þeir vita að
vinnuveitendur þeirra vilja helst sjá, og fara
raunar síðan smám saman ósjálfrátt að trúa
þeim sjálfir .
Talið um að „vísindamenn séu sammála“ um þetta mál er hins vegar gamalt og al
kunnugt áróðursbragð, sem gróðurhúsamenn
beita mjög . Ef menn vilja geta þeir t .d . flett
upp í Wikipedíu þar sem er langur listi yfir
há menntaða, virta vísindamenn í lofts lags mál
um sem eins og ég blása gjörsam lega á koldí
oxíð gróðurhúsahjalið, en um þá er aldrei
talað . Lygin er líka alltaf miklu skemmtilegri
og meira spennandi en sannleikurinn . Vís
inda maður á að leita sannleikans, hvert svo
sem það kann að leiða . Jafnskjótt og hann
gengur á mála hjá einhverjum hagsmuna
eða þrýstihópi fer hann að gerast málpípa og
halda fram tilteknum málstað . Hann hættir
þá að leita sannleikans og þar með að vera
vísinda maður .
Mér hefur raunar sýnst í gegnum tíðina,
að það sé erfitt, kannski alveg ómögulegt að
halda fram nokkrum málstað, hversu góður
sem hann kann að virðast, án þess að ljúga .
Reyndar eru margir þeirra svokölluðu „vís
indamanna“ sem hæst hafa um þessi mál
gjarn an með próf í einhverri allt annarri fræði
grein . Yfirlýsingar dýrafræðings eða grasa fræð