Þjóðmál - 01.12.2009, Page 47
Þjóðmál vetur 2009 45
hér á Íslandi og annars staðar í sjó og á landi
étur koldíoxíð . Þótt Amazonsvæðið sé stórt
er það aðeins lítið brot í því gífurlega stóra
dæmi .
Hlutfall koldíoxíðs sýnist vissulega hafa
aukist dálítið . Það virðist hafa verið um
0 .029% fyrir iðnbyltingu , en er nú sem fyrr
sagði um 0 .038% gufuhvolfsins, hugsanlega
fyrir tilverknað mannanna, sem hafi
tímabundið framleitt meira en jurtirnar hafa
undan að torga . En hvað gerir það til þótt
koldíoxíð aukist? Hvert er vandamálið? Jafn
vel þótt aukið koldíoxíð stuðli að endurhlýn
un jarðarinnar (sem fátt bendir til að það geri
að neinu marki) væri slík endurhlýnun hið
besta mál, ekki aðeins fyrir mannkynið, heldur
einnig og ekki síður fyrir öll dýr og jurtir, fugla
og fiska og allt sem þrífst á jörðinni . Ef um
einhvers konar endurhlýnun til lengri tíma
er að ræða ber að fagna því og beinlínis auka
koldíoxíð„mengunina“ . Það mundi þó því
miður afar litlu breyta, því koldíoxíð er aðeins
talið ábyrgt fyrir 3–5% af gróð ur húsaáhrifum,
kannski minna . Vatnsgufa orsakar um 90%
allra gróðurhúsaáhrifa og metan og fleiri
lofttegundir mest af því sem eftir er .
Það kann að koma einhverjum á óvart sem les þessar línur, að ég er hlynntur
verndun náttúrunnar og var það löngu áður
en slíkt komst í tísku . Ég las bækur Rachel
Carson í æsku og hafði, og hef að vissu marki
enn áhyggjur af mengun . Ég er hér að tala um
raunverulega mengun, ekki koldíoxíð . Frá
bílum kemur t .d . kolmónoxíð og ósón, sem
er ertandi og eitrað og einnig fíngert sót, auk
ryks . Ýmis sápuefni, áburður og fleira sem
kemur frá efnaiðnaði, svo og lyf, sem fara í
gegnum líkamann og út í skolpræsakerfið
geta líka valdið skaða . Þetta og margt annað
er raunveruleg mengun sem berjast á gegn .
En „umræðan“ um mengun hefur því
miður lengi verið að mestu í höndum fávísra
(yfirleitt vinstri sinnaðra) öfgamanna .
Þegar talað er um loftmengun, koldíoxíð
og áhrif mannanna á gufuhvolfið ættu menn
líka fyrst að gera sér grein fyrir stærð þess .
Það hefur engin eiginleg ytri mörk, en um
þrír fjórðu þess eru í veðrahvolfinu, sem
er nokkurn veginn sá hluti gufuhvolfsins
sem er fyrir neðan flugvélina þegar flogið er
milli landa . Þegar menn horfa út um glugga
flugvélarinnar ættu þeir að gera sér grein
fyrir því hvílíkar ógnarstærðir hér er um
að ræða, en gufuhvolfið er ekki aðeins yfir
helstu flugleiðum heldur einnig byggðum
og óbyggðum, eyðimörkum, heimskautum
og úthöfum . Menn ættu líka að hafa í huga,
þegar talið berst að „mengun“ að um þrír
fjórðu hlutar jarðar (72%) eru þaktir úthafi
þar sem mengun er engin að heita má . Aðeins
rúmur fjórðungur er land . En ekki nóg með
það: Um helmingur mannkyns býr á um
5% þessa lands og um 80% búa á um 20%
þurrlendisins . Aðeins um 20% mannkyns
byggja um 80% þurrlendis jarðar, sem þó er,
sem fyrr sagði, aðeins rétt rúmur fjórðungur
yfirborðsins . Jafnvel innan landa mæra
helstu „mengunarlandanna“ svo sem Banda
ríkjanna, Rússlands og Kína er að finna gífur
leg landflæmi, þar sem byggð, og þar með
mengun, er lítil sem engin .
Flestöll loftmengun er þyngri en
andrúmsloftið og fellur því til jarðar nálægt
upptökum . Hún er því ávallt staðbundin að
meira eða minna leyti, en að sjálfsögðu á að
berjast á móti henni . Undistöðulofttegund
lífsins, koldíoxíð, er hins vegar ekki mengun
og getur ekki verið það .
Olíusóunin hefur líka verið gífurleg, því
olía hefur lengi verið allt of ódýr . Óskaplegt
magn hefur farið og fer til húshitunar og
raforkuframleiðslu, sem vel má leysa með
öðrum hætti . Sparneytnir bílar eru líka hið
besta mál, ekki vegna koldíoxíðs, heldur vegna
þess að sparnaður er einfaldlega heilbrigð
skynsemi . Þegar olía verður smám saman
dýrari munu aðrar leiðir verða sam keppnis
færari . Gífurlegt magn olíu er enn í jörðu auk
kola, sem hæglega má breyta í prýðilega olíu .