Þjóðmál - 01.12.2009, Síða 48
46 Þjóðmál vetur 2009
Kjarnorku ætti líka að nýta miklu meira en
gert er . En markaðurinn mun ráða fram úr
þessu . Menn eiga hins vegar alveg að hætta
að hafa áhyggjur af koldíoxíði . Það er ekki
mengun .
Ég hef áður líkt vinstrimennskunni við sjálfsónæmissjúkdóm á þjóðfélögum
Vest ur landa, svipaðan gigt eða eyðni og geri
það enn . Þetta fólk tekur alltaf og ósjálfrátt
upp hvern þann málstað sem er Vesturlöndum
í óhag og styður leynt og ljóst ytri óvini
þeirra, hverju nafni sem þeir nefnast, þó
ávallt með mannúð og manngæsku, lýðræði
og mannréttindi á vörum . Vinstra fólk
er líka á stöðugum höttum eftir „góðum
málstað“ til að styðja, en af því að þetta eru jú
vinstri menn þarf ávallt að segja þeim hvaða
málstaður sé góður . Þeir hafa að sjálfsögðu
tekið „gróðurhúsa“ steypuna upp á sína arma .
Hér gefst þeim gullið tækifæri til að berja sér
á brjóst, fordæma og vandlætast yfir vonsku
Vesturlandabúa . Í þessu, eins og svo mörgu
öðru, svo sem í „pólitískri rétthugsun“ hafa
þeir raunar fengið allmarga kjána í fylgd með
sér sem ímynda sér að þeir séu eitthvað annað
en vinstri menn, en fólkið, sem gekk, ýmist
leynt eða alveg ljóst erinda alræðis og gúlags
í kalda stríðinu stendur hvarvetna fremst í
flokki í þessu máli .
Heimsendafræði (eskatólógía á lærðra
manna máli) var eitt höfuðviðfangsefni
mið alda guðfræðinga . Töldu hinir lærðustu
menn miðalda einsýnt, að syndugt líferni
mann anna, græðgi þeirra og illska mundi
fljót lega kalla yfir þá eld og brennistein,
pestir og kýli uns mannkynið tortímdist
með öllu fyrir sakir vonsku sinnar, synda og
almennrar fúl mennsku . Eskatólógum tókst
þó aldrei að dagsetja heimsendi almennilega,
hann dróst von út viti og er ekki kominn
enn . Minnir þetta afar mikið á málflutning
þeirra, sem grænastir eru og vitlausastir í
„umræðunni“ nú til dags, en vinstri menn
samtímans eiga fjölmargt sameiginlegt með
hálærðum vandlæturum miðalda . Auk þess
er það varla tilviljun að heimsendaumræðan
hófst í alvöru skömmu fyrir síðustu alda og
árþúsundamót .
Fárið, sem núna steðjar að var að sögn
þessa fólks upphaflega í tvennu lagi, auk „tvö
þúsundvandans“ . Í fyrsta lagi hefði syndugt
líferni mannanna, græðgi þeirra og illska
valdið alveg voðalegri mengun, sem hefði gert
gat á ósónlagið, þó ekki á norðurhveli þar sem
flestallt fólkið býr, heldur í óbyggðum hinum
megin á hnettinum . Þeir, sem ekki brynnu
lifandi slyppu þó ekki, heldur drukkn uðu .
Það væri nefnilega að hlýna í veðrinu af
völdum títtnefnds syndugs lífernis mann
fólksins . Mundi því ísinn bráðna, en hann er
nánast allur í fyrrnefndum óbyggðum hinum
megin á hnettinum . Hafið mun síðan flæða
yfir löndin og lýðurinn, sem ekki brann
drukkna í skrælnuðum eyðimörkunum . Ég
mun ekki hér fjalla um ósóngatið . Um það
skrifaði ég í Moggann 1999 grein, „Úðabrúsar
Eldlendinga“, sem nú er að finna á vefsíðu
minni (vey .blog .is) . Ég læt nægja hér að benda
á að ósóngatið hvarf tveim árum eftir að ég
skrifaði greinina, en kom svo aftur og nú er
alveg orðið ljóst að þetta er náttúrufyrirbæri,
sem trúlega hefur verið til staðar frá upphafi
kvartertíma . „Umræðan“ um gatið hefur líka
alveg þagnað . Allir virðast sömuleiðis hafa
gleymt „tvöþúsundvandanum“ nema tölvu
framleiðendur, tölvufræðingar og tölvu sölu
menn . Þeir eru enn að telja peninga . Eins
mun fara um koldíoxíð og gróðurhúsa
„umræðuna“ þegar aftur fer að kólna, en raunar
virðist kólnun þegar hafin . Spámennirnir
munu aftur skríða inn í híði sín .
A ð lokum: Nú veit ég vel, að margir munu telja að
ég taki hér stórt upp í mig, þegar ég bendi á
alkunnar náttúrufræðilegar og sögulegar stað
reyndir gegn hálærðum útreikningum og of
ur flóknum tölvulíkönum hinna ábúðarmestu
og lærðustu „vísindamanna“ . Það er út af fyrir