Þjóðmál - 01.12.2009, Page 49
Þjóðmál vetur 2009 47
sig rétt að ég er ekki vísindamaður þó ég hafi
fyrir meira en mannsaldri tekið stúdentspróf
frá latínuskóla þar sem allir gengu með bindi
og kennarar voru þéraðir . Það kann ekki að
þykja merkilegur grundvöllur til að taka þátt
í þessari „umræðu“ . Raunar hafa fjöldamargir
samtímamenn mínir gengið í gegnum sömu
skóla og hafa lært það sama og ég . Margir hafa
trúlega tekið hærri próf en ég, sem aldrei var
neitt sérstakt námsljós, þótt ég hafi alltaf verið
nokkuð góður í náttúrufræði, landafræði og
sögu . Þeir hljóta því að vita eins og ég, að
tölvulíkön eru óþörf og út í hött því hér er
aðeins um „endurhlýnun“ ekki „hlýnun“ að
ræða og þeir vita líka, að jörðin var öll miklu
grónari þegar loftslag var hlýrra . Þeir þegja þó
um þessa vitneskju sína, sem mér finnst skrýt
ið . Þvert á móti tala þeir sumir hverjir, ekki
síst forseti vor, með áhyggjusvip og einhvers
konar djúpum, harmrænum undirtóni
meinlegra örlaga um „loftslagsvandann“ og
„ógn ina“ sem yfir jarðarbúum vofi ef hlýnar
eitt hvað smávegis aftur (sem ekkert bendir þó
til að verði til lengri tíma) .
Ég dreg ekki dul á að ég tel að Íslendingar
ættu þegar í stað að segja sig frá Kyotoruglinu .
Fulltrúar Íslendinga á alþjóðavettvangi ættu
líka að nýta sér menntun sína, því útlendingar
vita greinilega fæstir það sem íslenskir
embættismenn hljóta að hafa lært eins og
ég . Íslenskir fulltrúar ættu að krefjast þess að
hætt verði að tala um „hlýnun“, heldur ávallt
„endurhlýnun“ þegar fjallað er um þessi mál,
svo og að orðinu „aftur“ verði skotið inn
hvarvetna sem við á .
Þegar þeir eigast við skylmingameistarinn
með korða sinn, og þursinn með kylfu sína, er
það ávallt sá með kylfuna, sem sigrar . Meist
arinn með alla sína þekkingu á hinum ýmsustu
fettum og brettum, stöðum og sporum
skilmingamanna á ekki séns gegn kylfu manni,
sem ekki tekur hið minnsta mark á regl unum
og rotar hann . Sumar kenningar eru þess eðlis,
að þær verðskulda enga umræðu . Þær eru tóm
endaleysa í sjálfum grundvelli sínum . Svo
var t .d . um gyðingasteypu „vísindamanna“
nasista og svo er einnig um marxismann . Það
er út í hött, ef ekki beinlínis mannskemmandi
að rökræða við þungbúna, hálærða, sannfærða
marxista, nýaldarsinna, stjörnuspámenn eða
aðra sem aðhyllast kenningar sem í sjálfum
grundvelli sínum eru tóm vitleysa . Á slíkar
kenningar, eins og á gróðurhúsasteypuna á að
beita kylfunni . Blása á ruglið .
Gróðurhúsamenn, Sameinuðu þjóðirnar,
þeir „vísindamenn“ sem lögðu nafn sitt við
IPCC og ekki síst stjórnmálamenn, hyggjast
nú safnast saman í Kaupmannahöfn til að
„bjarga jörðinni“ . Raunverulegur tilgangur
þeirra er að þenja út eigin völd, leggja á nýja
skatta og allra helst leggja drög að einhvers
konar alheimsstjórn þar sem þeir sjálfir hafi
völdin . Um þessa samkundu er best að hafa
orð Ólafs pá í Laxdælu: „Það vil eg að þeir
ráði sem hyggnari eru . Því verr þykir mér sem
oss muni duga heimskra manna brögð er þeir
koma fleiri saman“ .
H .C . Andersen misskildi almenning gjör
samlega þegar hann segir að fólkið hafi farið
lúpulegt heim eftir að barnið hrópaði . Þetta
er rangt . Fólkið hefði ráðist að barninu,
skamm að það og svívirt . Síðan hefði dreng
urinn hlaupið grátandi og rasskelltur heim
með an fólkið hélt áfram að hylla keisarann
ber rassaða .
Þannig var a .m .k . um okkur sem reyndum
að benda fólki á í kalda stríðinu, hvers kyns
föt það voru sem skraddararnir Marx og
Lenín höfðu saumað á keisarana í Kreml . Það
kostaði einungis fasistastimpil . Ástandið nú
er ekki ósvipað . Það stríðir gegn „pólitískri
rétt hugsun“ að malda í móinn gegn gróður
húsa blaðri „umhverfisverndarsinna“ og er
raunar álíka viðsjárvert og að hallmæla kon
um, hommum, svertingjum, dvergum, feitu
fólki eða öðrum, sem eiga undir högg að
sækja í lífsbaráttunni . En í þessu máli eins og
þá mun tíminn leiða í ljós hver hefur á réttu
að standa .
Ísland úr Kyoto!