Þjóðmál - 01.12.2009, Page 65
Þjóðmál vetur 2009 63
Höfundar fyrrgreindra bóka um Hafskipsmálið nálgast viðfangsefnið á
mjög ólíkan hátt . Bók Stefáns Gunnars, Af drif
Hafskips í boði hins opinbera, er lipurlega skrif
uð í aðgengilegu umbroti . Hún gefur greinar
gott yfirlit yfir ýmsa þætti Hafskipsmálsins .
Þar má til að mynda nefna lýsingu á áhrifum
fjölmiðla og stjórnmálamanna á múgsefjun
þjóðarinnar og jafnvel innrætingu ákæruvalds
og rannsóknaraðila, svo ekki sé talað um
afar ógeð fellda gæsluvarðhaldsvist Hafskips
manna . Því miður er þó þörf á að gera veiga
miklar athugasemdir við frásögn Stefáns
Gunnars, eins og síðar verður vikið að . Bók
Björns Jóns, Hafskip í skotlínu, er gjörólík
hinni fyrrnefndu . Hún er víða skrifuð í stíl
sem líkja mætti við spuna og er í því efni
höfundi sínum lítt til sóma sem fagmanni . Svo
því sé haldið til skila, má þó finna þar sums
staðar sannari lýsingar á atburðum en í bók
Stefáns Gunnars . Björn Jón kemst svo að orði
í bók sinni, að „æðsta takmark sagnfræðinnar
sé að leita sannleikans og þeirri leit ljúki
aldrei“ .2 Það er kannski ekki síst ætlunin með
þessu greinarkorni að gera þau orð hans að
umtalsefni og láta í ljós þá skoðun mína, að
fyrr nefndar bækur um Hafskipsmálið leiði
menn í grundvallaratriðum gjörsamlega af
vega í að nálgast „æðsta takmark sagnfræðinn
ar“, hina eilífu leit að sannleikanum .
Í formála bókarinnar, Afdrif Hafskips í
boði hins opinbera, kemur fram hjá höfundi,
að hann hafi verið beðinn af fyrrverandi
stjórnendum Hafskips, þeim Björgólfi Guð
mundssyni og Páli Braga Kristjónssyni að
„rekja bæði viðskiptalega og pólitíska framvindu
málsins ásamt því að rifja upp umtalsverðan
þátt fjölmiðla í atburðarásinni“. Hér er gengið
hreint til verks og sagt skýrt frá því fyrir hverja
bókin er skrifuð . Þetta er heiðarlegt og mjög
til fyrirmyndar . Lesendum er gert kleift að
meta verkið á gefnum forsendum . Á hinn
bóginn er þess að engu getið í formála bókar
Björns Jóns, Hafskip í skotlínu, að bókin sé
2 Hafskip í skotlínu, bls . 14 .
eitthvað tengd Hafskipsmönnum . Páll Bragi
Kristjónsson sendi mér bókina og fylgdi
henni bréf frá honum dags . 6 . okt . 2008 .
Þar segir hann orðrétt: „Hjálögð er bókin
Hafskip í skotlínu sem er afrakstur viðamikillar
rannsóknar Björns Jóns Bragasonar sagnfræðings
á aðdraganda og eftirmálum gjaldþrots Hafskips
hf. Í bókinni er upplýst um fjölmörg veigamikil
atriði sem ekki hafa komið fram áður og er efni
hennar m.a. undirstaða kröfunnar um opinbera
rannsókn á Hafskipsmálinu sem hefur verið lögð
fram hjá ríkissaksóknara .“ Umrædd krafa um
opinbera rannsókn var lögð fram af Björgólfi
Guðmundssyni, Páli Braga og fleirum . Tengsl
in við fyrrverandi forráðamenn Hafskips fara
ekki á milli mála . Björn Jón talaði fjórum
sinnum við mig á árinu 2007 . Hann fullyrti
þá, að hann væri að vinna á eigin vegum að
ritgerð um Hafskipsmálið .
Ég skráði hjá mér nokkur atriði, sem ég
lagði áherslu á við hann í þessum samtölum .
Menn þyrftu auðvitað fyrst og fremst að
skoða geigvænlega fjárhagsstöðu Hafskips í
des ember 1985 og viðskiptaumhverfið á þeim
tíma til þess að leita sannleikans um gjaldþrot
félagsins . Vangaveltur um útkomu þrotabús
ins, sem birt var átta árum eftir gjaldþrotið,
séu ekki mælikvarði á það, hvort félagið hafi
orðið gjaldþrota í raun eða ekki . Ég ræddi
við hann um mikilvægi samkomulags, sem
bankastjórn Útvegsbankans gerði í des
emberbyrjun 1985 við stjórnendur Eimskips
um að gera tilboð í eignir þrotabús Hafskips
í einu lagi . Það samkomulag, sem gert var í
þröngri stöðu hafi orðið til þess að eignirnar
voru seldar á hagstæðara verði úr þrotabúinu
en ef hvert skip, gámur eða aðrar eignir hefðu
verið settar á uppboð eða seldar á eins konar
brunaútsölu .
Þessa, sem okkur fór í milli, sér ekki mik
inn stað í bók Björns Jóns . Aftur á móti
spinnur hann langa samsærisfléttu um til urð
samkomulags stjórnenda bankans og Eim
skips . Ofan í kaupið hefur hann beint eftir
mér úr fyrrgreindum viðtölum fullyrðingar,