Þjóðmál - 01.12.2009, Side 78
76 Þjóðmál vetur 2009
Jóhannes úr Kötlum
Sumir skáldmæltir sósíalistar hvísluðu fremur en töluðu um, að vöknað hefði í púðr
inu, og tóku aðrir því lítt eftir . Jóhannes skáld
Jónasson úr Kötlum hafði verið einn ákafasti
baráttumaður sósíalismans á Íslandi og ort
Stalín og Maó lofkvæði að fornra skálda sið,
hvort sem hann hefur ætlast til bragarlauna eða
ekki .23 En upp úr miðjum sjötta áratug sóttu
efasemdir á Jóhannes, þótt hann forðaðist að
deila opinberlega á stjórnarfar í sósíalistaríkj
unum . Margir íslenskir menntamenn for dæmdu
til dæmis ruddalega framkomu valds manna í
Ráð stjórnarríkjunum við Boris Pasternak 1958,
en Jóhannes færðist undan því að taka afstöðu .24
Þegar hann var spurður ásamt mörgum öðrum
kunnum sósíalistum um Skáldatíma Halldórs
Kiljans Laxness 1963, þar sem gert var rösklega
upp við sósíalismann, kusu þeir félagar að svara
engu .25 Hins vegar talaði Jóhannes eitt sinn
lengi heima hjá sér við Jón Óskar rithöfund um
uppgjör Laxness . Hann sagðist vera vonsvikinn .
Ráðstjórnarríkin hefðu brugðist, og nú væri hann
í vafa um, hvort sósíalisminn hefði heppnast
í Kína . Hann kvaðst ólíkt Laxness aldrei skrifa
sinn Skáldatíma . Hann „hefði ekki taugar til
þess að hætta á sambandsslit við gamla vini“ .26
Jó hannes sagði svipað, þegar hann hitti Bald
vin Tryggva son, framkvæmdastjóra Almenna
bóka félagsins, í afmælisveislu Stef áns Jónssonar
barna bóka höfundar 1965 . Margt hefði reynst
rétt, sem andstæðingar komm únismans hefðu
haldið fram . „En, Baldvin, hvað á ég að gera?“
spurði hann stillilega . „Þetta eru einu vinir mínir .
Ég er kominn á efri ár, og ég get ekki fleygt öllum
vinum mínum frá mér .“27
Það, sem Jóhannes úr Kötlum vildi ekki segja
berum orðum, lét hann í ljós í kvæðum . Hann
sendi frá sér ljóðabókina Ný og nið 1970 . Í einu
ljóðanna eru þessi vísuorð, sem lýsa vel hug
hans:28
Í lausu lofti
titrum við ósjálfbjarga,
milli steins og sleggju .
Jóhannes úr Kötlum hékk í lausu lofti . Hann
hafði misst trúna og ekkert komið þess í stað .
Annað kvæði í bókinni hét „Leiksystkin“:
Við krakkarnir erum í skollaleik
og nú hefur einhver leikið á mig,
— hver hefur nú leikið á mig?
Skyldi það vera strákurinn frá Gorí
eða strákurinn úr Mosfellssveitinni
eða strákurinn frá Sjaósjan
ellegar kannski stelpurnar?
Við blasti, hvert skáldið var að fara: Stalín var
fæddur í Gorí, Laxness úr Mosfellssveit og
Maó frá Sjaósjan . Jóhannes taldi sig svikinn,
blekktan, illa leikinn .
Þórarinn Eldjárn
Þórarinn Eldjárn hafði jafnan verið talinn vinstrimaður, og hafði hann meðal
annars ort skopkvæði um forsvarsmenn undir
skriftasöfnunarinnar undir kjörorðinu „Varið
land“ 1974 . En í viðtali við Tímarit Máls og
menningar 1991 sagði Þórarinn, að sósíal ismi
væri sameignarstefna og hefði verið fram
kvæmd í Ráðstjórnarríkjunum . „En svo hefur
Jóhannes úr Kötlum .