Þjóðmál - 01.12.2009, Qupperneq 80

Þjóðmál - 01.12.2009, Qupperneq 80
78 Þjóðmál vetur 2009 Mörður hélt því einnig fram, að þetta kvæði Þórarins væri ekki vel ort . Brotið væri gegn bragarhætti þess: „En ekki er nóg með að myndmálið sé klént, heldur er bragurinn líka gallaður, og það alltof augljóslega til að um sé ræða venjulegt skáldaleyfi frá hörðustu kröfum í snúnum hætti .“32 Í sama hefti Tímarits Máls og menningar var kvæðið „Í tilefni af skipsfrétt“ eftir annan sósíalista, Franz Gíslason: Þó draumur bregðist, vonin missi völd er víst að þráin flöktir enn í nösum og rotnar ekki, fúlnar ei í frösum sem flögra um á líkframleiðsluöld í máli þeirra er löngum sviku lit og löðuðust að þeim er fór með völdin . Og jafnvel þó að nú sé önnur öldin en áður fyrr mér sýnist lítið vit að deyða þrána, kæfa draumsins þor — þeir dauðu rotna, ekki hugsjón vor! sem verður til þess að vér lífi höldum . Mér gagnar lítt að eiga við þá orð sem eru horfnir, stukku fyrir borð og sviptu vonir, þrár og drauma völdum . Þeir Mörður og Franz töluðu báðir í hefð­ bundn um Þjóðviljastíl, þar sem fremur var leitast við að skilgreina andstæðinginn (og þá helst alla leið út í hafsauga) en svara rökum hans . Þórarinn Eldjárn átti síðasta orðið í þessari ritdeilu með greininni „Að ruglast í ríminu“ í Tímariti Máls og menningar síðar sama ár . Þar benti hann meðal annars á, að aðfinnslur Marðar að braglýtum í kvæðinu „Skipsfregn“ misstu marks, því að þetta væri Shakespeare­ sonnetta af annarri gerð en Mörður héldi . Þórarinn viðurkenndi hins vegar, að Mörður væri í essinu sínu í stjórn málaþvargi . Einar Már Guðmundsson Áútmánuðum 1992, í þann mund er Þór ar inn Eldjárn gerði upp við íslenska sósíalista á síðum Tímarits Máls og menningar og fékk bágt fyrir, skrifaði Einar Már Guðmundsson í Lesbók Morgunblaðsins um sama efni . En með því að Einar Már beindi spjótum sínum að sósíalismanum frekar en sósíalistunum, vakti uppgjör hans engin við­ brögð . Grein hans hófst á lausamálsljóði: Byltingin er eins og stelpan sem þú elskaðir einu sinni . Þú hélst hún elskaði þig líka og að þú myndir aldrei elska neina aðra . En dag nokkurn sagði hún þér upp . Sorg þín var ómælisdjúp í tómleika daganna . Hér hélt Einar Már því fram eins og Jóhannes úr Kötlum á undan honum, að hann hefði ekki svikið byltinguna, heldur hefði byltingin svikið hann . En í grein Einars Más var meg­ inskýringin á því, hvers vegna sósíalisminn hefði mistekist, í nokkurri mótsögn við þá hugmynd . Skýringin var í sem fæstum orðum, að veruleikinn væri óútreiknanlegur og jafnvel stundum fáránlegur; þess vegna væri ekki unnt að kerfisbinda hann, eins og Karl Marx hefði ætlað sér . „Raunveruleikinn er alltaf að koma raunsæinu á óvart .“ Marx hefði talið sig handhafa sannleikans . Hann hefði verið sekur um hroka þann, sem Grikkir hinir fornu kölluðu „hybris“ . Einar Már bætti því við, að Marx hefði verið djarfur hugsuður og sósíalisminn þrátt fyrir allt haft í för með sér ýmsar umbætur á borg ara legu skipulagi . Flóknari spurning var hins vegar að sögn skáldsins, hvað hefði gerst, hefði sósíalisminn tekist, svo að fólk hefði verið brauðfætt og rekstur fyrirtækja gengið vel, því að miðstjórnarkerfi þeirra, sem teldu sig handhafa sannleikans, hlyti ætíð að vera reist á kúgun, virðingarleysi gagnvart minni­ hluta hópum og skorti á andlegu frelsi . Einar Már fann sér aðeins takmarkaða fótfestu í hinni nýju umhverfisverndarhreyfingu, sem þá var að spretta upp . „Framtíðin blasir aðeins við sem óreiða, umhverfishrun, verði haldið áfram á sömu braut .“33 Fór Einari Má því líkt og Jóhann esi úr Kötlum: Hann hékk í lausu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.