Þjóðmál - 01.12.2009, Qupperneq 95
Þjóðmál vetur 2009 93
honum og öðrum fyrir sakir þessara skoðana .
Þó að bókinni sé ekki ætlað að vera framlag
til pólitískrar stefnumótunar hefur hún eigi að
síður gildi fyrir þá umræðu sem nú fer fram um
þessi efni . Hún er hollur lestur fyrir alla þá sem
vilja kynnast sex áratuga sögulegu samhengi
þessara mikilvægu mála og þjóðernislegu
baksviði þeirrar afstöðu sem lýst er .
Niðurstaðan: Þörf bók og fróðleg . Að skilja
Einar Ben . sendiherra hjálpar mönnum að skilja
heiminn .
Karlagrobb Jónasar
Jónas Kristjánsson: Frjáls og óháður, Sögur útgáfa,
Reykja vík 2009, 157 bls .
Eftir Björn Bjarnason
Ásínum tíma, fyrir tæpum 35 árum, starfaði ég í nokkra mánuði sem erlendur
fréttastjóri á dagblaðinu Vísi undir ritstjórn
Jónasar Kristjánssonar . Blaðið var þá tiltölulega
nýlega flutt í sérhannað húsnæði sitt við
Síðumúla . Vinnuaðstaðan var ágæt
nema hvað stórir gluggar á básum
blaðamanna sneru í suður og gat því
oft orðið mjög heitt þar í sólskini .
Ritstjóraherbergið sneri í norður og
á milli þess og bása blaðamanna var
potturinn, sérhannað herbergi með
hringlaga borði, þar sem blaðamenn
komu saman til funda og unnið var
að því að leggja lokahönd á blaðið,
áður en það fór í prentsmiðjuna .
Mér féll vel að skrifa erlendar
fréttir og pistla til skýringa á þeim . Allt var í
föstum skorðum, umbrot og tímasetningar
við skil á efni . Lögð var áhersla á að virða setta
fresti, til að blaðið kæmist á markað á tilsettum
tíma um hádegið . Forvitnilegt var að kynnast
þessari hlið blaðamennsku, eftir að hafa starfað
á Morgunblaðinu með námi . Taktur er annar á
morgunblaði en hádegisblaði .
Í bók sinni Frjáls og Óháður lýsir Jónas meðal
annars húsakynnum í Síðumúlanum og segir,
að frá þeim tíma hafi allar ritstjórnir hans
haft pott, það er slíkt miðlægt fundarherbergi .
Raunar minnist ég þess ekki að hafa hitt Jónas
annars staðar á ritstjórn Vísis en á fundum í
pottinum . Hann sat þar stundum og lét ljós sitt
skína eða fór yfir það, sem honum þótti mega
betur fara . Að öðru leyti var hann afskiptalítill
af ritstjórninni .
Af bók hans má ráða, að hann sé þeirrar
gerðar, að hann vilji koma sér upp kerfi og láta
síðan aðra hluti falla innan þess, svo að hann
geti snúið sér að einhverju öðru . Þegar kemur að
því að lýsa samskiptum við annað fólk í bókinni,
er augljóst, að hann dregur það í dilka eftir því,
hvort það hefur gagnast honum innan hans
eigin kerfisheims . Jónas hefur mildast í dómum
um menn í áranna rás . Hann er hættur að kalla
suma fasista, eins og honum var tamt .
Eftir lestur bókarinnar flaug mér eitt orð
í huga, karlagrobb . Jónas hefur ekki stigið
feilspor, þau eru annarra . Allt hefur gengið upp,
sem hann hefur tekið sér fyrir hendur, fyrir utan
tvennt: Saga Náttúrulækningafélags Íslands
er enn hálfköruð . Það er ekki Jónasi að kenna
heldur fomanni félagsins . Þá hefur Jónas ekki
uppfært gagnabanka sinn um hross á þann veg,
að allir geti nálgast efni á honum . „Dálítið snúið
mál og dýrt“ að sögn Jónasar .
Ekki nóg með þetta, því að Jónas
hefur sett allt hið bitastæðasta, sem
hann hefur skrifað og skráð inn á
vefsíðuna www .jonas .is . „Ég hef skilað
dagsverkinu, haldið öllu til haga, sem
máli skiptir,“ segir í bókarlok .
Sá grunur læðist að lesandanum,
að Jónasi falli betur að umgangast
hross en menn . Kaldhæðni og ónot
hans í garð ýmissa, sem hann nefnir
til sögunnar, þjónar þeim tilgangi
einum að upphefja Jónas enn frekar . Kastar hann
hnútum jafnt í látna sem lifandi . Jónas hefur
stundað þessa iðju svo lengi í leiðurum sínum
um þá, sem starfa á opinberum vettvangi, að
þar kippa menn sér ekki upp við illmælgi hans .
Öðru máli kann að gegna um þá, sem ekki hafa
kynnst henni af eigin raun, en rekast á hana í
bókinni .
Ég rakst aðeins á eina prentvillu . Myndir eru
margar í bókinni og sést af þeim, að þau hjón