Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Blaðsíða 66

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Blaðsíða 66
legum hefðum sagt eitthvað til um uppruna textanna en í sinni endanlegu mynd eru þeir smíði lærðra manna eða kvenna.70 Nú á allra síðustu árum hafa rannsóknir á munnlegum geymdum að nýju rutt sér til rúms og þá ekki síst úr geira félagsvísinda annars vegar og hugsunarvísinda hins vegar. Þar er þó einkum um að ræða rannsóknir sem lúta að minni og hvernig minni er varðveitt. Rannsóknir á hugsun og minni eru nú taldar til þverfaglegra rannsókna innan hugvísinda og jafnframt sem tenging þeirra við önnur vísindi á öðrum sviðum.71 Birger Gerhardsson var frumkvöðull þessara fræða í samhengi Nýja testamentisins. Hann telur að hefð sé óhugsandi án minnis eða minnistækni. Gerhardsson leitaðist í sínum rannsóknum við að sýna fram á hvernig marg- vísleg tækni væri notuð til að miðla ummælum og frásögum frá manni til manns og einni kynslóðar til annarrar. Hann lagði í þessu samhengi mikið upp úr því að efniviðurinn kæmist nánast óskaddaður á milli kynslóða.72 Werner H. Kelber ber kenningu Gerhardsson saman við kenningu Rudolf Bultmann um hefðir Nýja testamentisins sem vaxi og taki breytingum á milli kynslóða. Samkvæmt kenningu Gerhardsson varðveitast uppruna- legar hefðir nánast óbreyttar mann fram af manni en samkvæmt kenningu Bultmann taka þær verulegum breytingum í sinni munnlegu geymd.73 Kelber gagnrýnir báða þessa frumkvöðla á sviði formrýninnar. Þrátt fyrir ólíkar áherslur hvað varðar varðveislu og breytingar á hinni meintu munn- legu hefð gangi Gerhardsson og Bultmann út frá sömu megin forsendunum. Kelber telur að báðir horfi fram hjá þeim mikla mun sem liggur í munnlegri varðveislu texta annars vegar og ritaðri varðveislu texta hins vegar. Jafnfram gagnrýnir hann þá báða fyrir að gera ráð fyrir línulegri þróun frá munn- legri geymd til ritunar án þess að skoða hvernig texti breytist í munnlegri varðveislu. Loks gerir Kelber athugsemdir við þá niðurstöðu beggja að guðspjöllin (sérstaklega) standi í beinu framhaldi af hinni meintu munnlegu 70 Sjá t.d., Leif E. Vaage, „Composite Texts and Oral Myths: The Case of the „Sermon“ (Q6:20b- 49)“ 1989, S. 424-439. 71 Sbr. Barry Schwartz, „Christian Origins: Historical Truth and Social Memory“ 2005, s. 43-56; Luther H. Martin, „The Promise of Cognidve Science for the Study of Early Christianity" 2007, s. 37-56. 72 Sbr. umfjöllun Werner H. Kelber, The Oral and the Written Gospel: The Hermeneutics ofSpeaking and Writing in the Synoptic Tradition, Mark, Paul, and Q 1983, s. 8-14. Brautryðjandaverk Gerhardsson um þetta efni birtust á fyrri hluta sjöunda áratugs tuttugustu aldar, Memory and Manuscript: Oral Tradition and Written Transmission in Rabbinic Judaism and Early Christianity 1961 og Tradition and Transmission in Early Christianity 1964. 73 Sbr. Kelber, Oral and Written Gospel, s. 2-8. 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.