Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Síða 83
M y n d i n a f J ó n a s i
TMM 2009 · 3 83
12 Sama rit, 191–192.
13 Ljóðmæli eptir Jónas Hallgrímsson. Kaupmannahöfn 1847.
14 Sumir hafa talið myndina framan við ljóðmælin 1883 eftir Déssington þann, sem talað er um
í fundargerð Fjölnisfélagsins 1846, en það er naumast rétt. Nafn hans er aðeins þekkt úr fund-
argerðinni. Hafa engar heimildir fundist um hann, þrátt fyrir nokkra leit.
15 Bent skal á að Helgi Sigurðsson er innan við þrítugt, þegar hann hefur nám í myndlist við
listaháskólann í Kaupmannahöfn, en er að vísu ellefu árum eldri en Benedikt Gröndal – og það
gerir gæfumuninn.
16 Benedikt Gröndal, Dægradvöl 1965, 146–47.
17 Inga Lára Baldvinsdóttir, „Daguerretýpur á Íslandi og fyrstu ljósmyndararnir“. Árbók Hins
íslenska fornleifafélags 1983, 146.
18 Bréf Konráðs Gíslasonar, Aðalgeir Kristjánsson bjó til prentunar. Reykjavík 1984, 81.
19 Matthías Þórðarson, Íslenzkir listamenn. Reykjavík 1920, 50.
20 Frakkinn Louis Daguerre [1787–1851] er talinn hafa fundið upp þessa ljósmyndatækni, enda
er hún við hann kennd. Tæknin er undanfari nútíma ljósmyndatækni og eins konar millistig
milli Camera obscura og ljósmyndalinsu þeirrar sem eignuð er Josef Maximilian Petzval
[1807–1891]. Ljósmyndagerð Daguerres fólst í því, að í kassa, sem í er linsa, er komið fyrir
koparplötu sem þakin er silfurnítrati. Við áhrif ljóss kallar kvikasilfurgufa fram mynd á kop-
arplötuna. Festa (fixera) þarf ljósmyndina með því að leggja plötuna í sodiumsúlfíð og síðan
þarf að koma koparplötunni fyrir í loftþéttum ramma. Gallinn við þessa tækni Daguerres er í
fyrsta lagi að framköllunartími er mjög langur og í öðru lagi er ekki unnt að gera eftirmyndir
eftir frummyndinni.
21 Litlar mannamyndir frá ofan verðri 18. öld og 19. öld, sem málaðar voru til þess að hafa í nisti
og eru nánast eins og ljósmyndir, eru gott dæmi um þessa iðn. Hún leið undir lok þegar ljós-
myndagerð varð fullkomnari og breiddist út um öll lönd og hafði margvísleg áhrif á málaralist
sem breyttist og upp risu stefnur, s.s. im pressjónismi og expressjónismi og síðar kúbismi og
súrrealismi, sem gengu í berhögg við ljósmyndina og natúralisma 19. aldar. Myndir einstaka
málara, sem komu til Íslands á ofanverðri 19. öld, virðast einnig bera þessari tækni vitni, s.s.
vatnslitamyndir W. G. Colling woods, þar sem greina má ýmis einkenni ljós myndar, bæði hvað
varðar fjarvídd og hlutföll. Má sem dæmi nefna mynd Collingwoods úr Búðargili á Akureyri
þar sem fjarvídd og hlutföll eru mjög nákvæm.
22 Margs konar teiknivélar hafa verið notaðar gegnum tíðina. Elsta teiknivél eða „myndavél“ er
svonefnd camera obscura. Heimildir um hana eru frá því nokkrum öldum fyrir Krists burð,
þótt elsta tækið af þessu tagi sé smíðað af arabískum vísindamanni, Abu Ali Al-Hasan Ibn
al-Haitham [965–1039] sem starfaði lengst af í Kaíró og kannaði eðli og hraða ljóss svo og
sólmyrkva með hjálp tækisins. Talið er að evrópskir myndlistarmenn í lok miðalda hafi notað
camera obscura sem teiknivél, þ.á m. sjálfur Leonardo da Vinci [1452–1519]. Þá þykir fullvíst
að hollensku meistararnir, s.s. Johannes Vermeer [1632–1675], hafi notað camera obscura. Eitt
elsta málverk, sem talið er gert með hjálp teiknivélar, er mynd eftir Hollendinginn Jan van Eick
[d. 1441] sem nefnd hefur verið myndin Arnolfini og máluð 1434.
23 Fjölnir IX 1847, 4.
24 Þessi orð skiljast betur ef teikningunni af líki Jónasar er hallað um 90°.
TMM_3_2009.indd 83 8/21/09 11:45:35 AM