Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Blaðsíða 109
„ É g e r l í f , s e m v i l l l i fa , u m va f i n n l í f i s e m v i l l l i fa .“
TMM 2009 · 3 109
Endurkoma Maríu
Bjarni leggur mikla áherslu á vægi daglegs lífs og nauðsyn þess að mað-
urinn gangist við því með öllum sínum þverstæðum. Þetta kemur vel
fram í Endurkomu Maríu þar sem Bjarni tekst á við tvíhyggju holds og
anda sem svo oft fylgir Maríudýrkuninni.
Maríufræðin eru allumfangsmikið fræðasvið og hefur hver kirkju-
deild sínar séráherslur. Mótmælendur og rétttrúnaðarkirkjan eru nokk-
uð samstiga í framsetningu sinni, en rómversk-kaþólskir hafa sínar
sérstöku trúarkenningar um Maríu og hlutverk hennar.
Myndin sem Nýja testamentið dregur upp af hinni sögulegu Maríu er af
ósköp venjulegri konu. María er úr millistétt og gift trésmiðnum Jósef.
Hún er móðir Jesú og þau eiga saman börn sem eru nafngreind í Mark-
úsarguðspjalli. Þegar Jesús predikar í heimabæ sínum bregðast sam-
borgarar hans við og segja: „Er þetta ekki smiðurinn, sonur Maríu,
bróðir þeirra Jakobs, Jóse, Júdasar og Símonar? Og eru ekki systur hans
hér hjá okkur?“ (Mk 6.3) Í guðspjöllunum kemur ekki fram að María
hafi verið í nánu „andlegu“ sambandi við Jesú. Þvert á móti! Hún var
eins og aðrir í fjölskyldunni lítt hrifin af boðunum hans. Fjölskyldan
óttaðist að hún kæmi Jesú og þeim sjálfum illa. Í Markúsarguðspjalli er
greint frá því að fjölskyldan, og þar með María, hafi álitið að Jesú gengi
ekki heill til skógar.9 María móðir Jesú verður því fyrst eftir upprisuna
að meðlimi frumsafnaðarins (Post 1.14). Athyglisvert er að fjölskyldan
þurfti sérstakrar opinberunar við til að hún gengist við Jesú sem Kristi.
En í einni elstu játningu í Nýja testamentinu segir um þau: „Síðan birtist
hann Jakobi, því næst postulunum öllum“ (Kor 15.7). Í frásögnum guð-
spjallanna kemur fram að Jesús greindi milli sín og fjölskyldu sinnar .10
Af þessu má draga þá ályktun að til klofnings hafi komið. Í bréfum Páls
er einungis talað óbeint um Maríu og þá bara sem móður Jesú.11 Sam-
kvæmt vitnisburði Nýja testamentisins kemur María fram sem venjuleg
kona og er sem slík síðar hluti af söfnuðinum. Af því má ráða að hún átti
í svipaðri trúarglímu og aðrir innan hans.
Jesús var samkvæmt vitnisburði Nýja testamentisins sannur maður,
fæddur af konu. Fæðingarfrásagnirnar í Matteusar– og Lúkasarguð-
spjalli draga það líka fram, þó vissulega séu þær nokkuð sveipaðar blæ
helgisagna. Þegar frásagnirnar eru lesnar eins og þær koma fyrir er ekk-
ert í þeim sem skilur fæðingu Jesú frá fæðingu annarra barna. Menn
hafa löngum bent á að tilvísunina til meyjar beri að lesa í sínu biblíulega
samhengi. Í spádómsriti Jesæja er vísað til fæðingar Messíasar en þar er
TMM_3_2009.indd 109 8/21/09 11:45:36 AM