Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Síða 116
S i g u r j ó n Á r n i E y j ó l f s s o n
116 TMM 2009 · 3
Borgin bak við orðin og Næturvörður kyrrðarinnar eru nokkuð erfiðar
aflestrar þar sem Bjarni stekkur ekki einungis fram og til baka í tíma og
rúmi, heldur líka milli svefns og vöku. Lesandinn veit oft vart hvort
atburðirnir eigi sér stað í huga sögupersónunnar eða í veruleikanum.
Við þetta bætist myndmál alkemíunnar sem Bjarni klæðir sögu sína í og
þær hugmyndir sem persónur innan hennar eru fulltrúar fyrir.
Í kringum trúarbrögð fólksins í dalnum leitast Bjarni við að skapa
sem heilstæðast hugmyndalegt kerfi og nýtir til þess minni og myndir
úr alkemískum fræðum.22 Markmið alkemíunnar var að nálgast kjarna
alls, annaðhvort til að upplýsast af honum eða ná valdi yfir honum.
Helgunin var mikilvægur þáttur í að ná þessu marki en hún skipar einn-
ig stóran sess í játningarritum. Bjarni grípur því til margra einkenna
játningarita; hér er helst að nefna fjölmargar ræður, persónugerð hug-
myndakerfi og sýnir sem endurspegla átök í sjálfsmynd sögupersónunn-
ar. Sagan greinir frá því, eins og algengt er í játningaritum, hvernig
Immanúel gengst við sjálfum sér, arfleifð sinni og axlar ábyrgð á eigin
lífi. Þar sem myndmál alkemíunnar mótar frásögnina er mikilvægt að
gera stuttlega grein fyrir stöðu hennar innan kristins táknheims. Að því
loknu verða tvær ræður í bókunum greindar.
Alkemían
Alkemían snerist ekki einungis um að fullkomna málma eða leita að
meðali sem veitti eilíft líf, þ.e. langlífiselexírinn (þ. Lebenselixier), held-
ur einnig um helgunina.23 Henni til grundvallar lá hugmyndin um sam-
hljóm milli „míkró- og makrókosmos“ eða einstaklingsins og heimsins.
Maðurinn var álitinn vera spegilmynd veruleikans og að báðir heimar
lytu sömu lífslögmálum. Hlutverk mannsins væri að rannsaka þessi lög-
mál og laga líf sitt að þeim. Athuganir á náttúrunni og tilraunir tengdar
þeim voru þáttur í helgunarferli sem átti sér jafnt innri sem ytri hlið.
Helgun og endurlausn voru samofnar tilraunum alkemistanna. Þær
voru hluti af andlegri þroskagöngu þeirra í gegnum lífið.
Alkemíu tengdust því ekki einungis miklar „vísindalegar“ rannsókn-
ir á náttúrunni, heldur líka dulspeki og trúar- og heimspekilegar hug-
leiðingar. Innan alkemíunnar er að finna íhuganir um samsvörun milli
hinna sjö himintungla, sjö málma og sjö guða eða guðlegra eiginleika,
sem kallast á við veruleika mannsins.24 Menn notuðu líka svipaðar hlið-
stæður varðandi tímabil sögunnar. Í samræmi við heimsslitafræði ritn-
ingarinnar – sem voru áberandi innan alkemíunnar – var talið að
tímabil manns og heims væru fjögur (sbr. Dan 2). Fyrst var gullöldin,
TMM_3_2009.indd 116 8/21/09 11:45:37 AM