Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 56

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Side 56
J ó n Ó l a f s s o n 56 TMM 2009 · 4 af hugmyndalegum leiðtogum sósíalista og forstjóri Máls og menningar, orðaði það svo í stuttri grein undir fyrirsögninni „Nýr áfangi“ sem hann birti í Tímariti Máls og menningar sumarið 1944: Vér höfum öðlast þjóðfrelsi, Íslendingar. Vér höfum stofnað lýðveldi á Íslandi. Vér höfum náð því marki sem þjóðin hefur stefnt að í margar aldir. Og það var fagnaðarrík stund, sameiginleg fagnaðarstund þjóðarinnar allrar, hvað sem innri andstæðum líður. Lýðveldisstofnunin gefur oss ný þroskaskilyrði, nýja framtíðarmöguleika.5 En sé horft lengra en til upphafningar þjóðernis – hverskonar áfangi var þá lýðveldisstofnunin? Kristinn E. Andrésson setti hana í samband við þroska þjóðarinnar – það er þroska allra þeirra sem tilheyrðu íslenskri þjóð og sem áfanga að fullum þroska heildarinnar, þegar allsherjarvilji þjóðarinnar birtist í sósíalísku skipulagi. Hann endar grein sína á þess- ari draumsýn: Ég sé í anda nýja þjóðhátíð á Íslandi. Alþingi hefur samþykkt stjórnarskrár- breytingu er felur í sér að skipulag sameignarstefnunnar skuli í lög leitt á Íslandi. Hin nýja stjórnarskrá sameignarskipulagsins er borin undir þjóðaratkvæði. Áhugi almennings er brennandi, þátttakan í atkvæðagreiðslunni alger, og með yfirgnæfandi meirihluta samþykkir þjóðin hina nýju stjórnarskrá, sem á að tryggja Íslendingum einnig hið innra frelsi. Að atkvæðagreiðslunni lokinni er eins og nú stofnað til þjóðhátíðar á Þingvöllum, og þangað flykkjast ungir og gamlir hvaðanæfa af landinu og þá alfagnandi því að enginn uggur er framar í brjósti. Hve sæll er sá Íslendingur, er þá þjóðhátíð lifir, þann þjóðarfagnað, sem á eftir að hefja þjóðhátíð vora nú í hærra veldi.6 Það er merkilegt hvernig Kristinn setur lýðveldisstofnunina í samhengi þroska, framfara og afnáms þess sem hann kallar „innri mótsagnir“. Það er ljóst að við kringumstæður sannrar þjóðhátíðar eru það aðeins brjóst- umkennanlegir bjálfar og fáráðlingar sem takast ekki á loft við innblást- ur hins nýja skipulags þar sem völdin hafa verið færð þjóðinni, endanlega og fyrir fullt og allt. Innblásinn þjóðarvilji birtir í senn beinan vilja allra (sem eru með réttu ráði) og raunverulega hagsmuni allra. Kristinn E. Andrésson var kommúnisti. Hann trúði á Sovétríkin og Sovét-Ísland og það hvarflaði ekki annað að honum en að byltingin myndi skapa ríki velferðar og réttlætis. Og hún gæti birst sem þjóðhátíð, atkvæðagreiðsla eða blóðug barátta. Þó að samblöndun þjóðernishyggju og kommúnisma sé, þegar litið er til hugmyndafræði kommúnismans, óvænt blanda er auðvelt að skilja innblástur Kristins og þótt þjóðernis- hyggja hafi ekki einkennt kommúnista í Vestur-Evrópu, átti hún vissan samhljóm innan valdaflokkanna í Austur-Evrópu. TMM_4_2009.indd 56 11/4/09 5:44:38 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.