Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2009, Page 110
D ó m a r u m b æ k u r 110 TMM 2009 · 4 kostaboð. Hún fer upphaflega til bankamannsins til að betla styrk vegna heim- ildamyndar sem hún hyggst gera, fellur saman fyrir framan hann og gusar því upp úr sér að hún hafi misst barn, sé að skilja, viti ekki hvað hún vill í lífinu og eigi enga fjölskyldu eða vini á Íslandi eða neinn sem þyki vænt um hana. Þar og þá velur bankamaðurinn hana þó að hann þurfi að ráðgast við menn. Eva skilur líka að þær sex manneskjur sem hún hefur kynnst í húsinu hafa frá upp- hafi verið að blekkja hana og leika í leikriti sem mun leiða til dauða hennar. Eins og Truman Burbank í kvikmyndinni The Truman Show er hún eina manneskjan sem veit ekki að hún býr í sýndarveruleika, umkringd lygurum og hún hefur verið blekkt og svikin. Hún skilur sömuleiðis að eftir að henni hefur verið gefið svefnlyf á kvöldin er hún færð út úr íbúðinni og öll ummerki um reiði hennar, ótta, einmanaleika og eiturneyslu eru fjarlægð svo að morguninn eftir er eins og ekkert hafi gerst. Hver fjármagnar þetta? Augljóslega standa auðugir aðilar á bak við þessa dýru sýningu en hverjir? Losti Frá fyrsta degi finnst Evu að horft sé á hana í íbúðinni og hún fær það staðfest seinna þegar henni er sýnt í sjónvarpinu að hún er stöðugt „í mynd“. Óafvit- andi virðist Eva vera í beinni útsendingu, eins konar veruleikasjónvarpi, þar sem einhver eða einhverjir hafa aðgang að henni allan sólarhringinn. Þessir áhorfendur geta horft á vaxandi frelsisskerðingu þar til hún er lokuð inni. Þeir sjá hvernig vilji hennar er brotinn því henni er harðlega refsað fyrir sérhverja uppreisnartilraun, hún er hengd upp á fótunum, henni er nauðgað, hún er svívirt og til að forða sjálfri sér frá drukknun verður hún að drepa stúlkubarn. Hún er lömuð með eiturlyfjum og veruleikamat hennar er rugluð með ofskynj- unarlyfjum. Einhver hefur af þessu mikla gleði. Klámkvikmyndir hverfast alltaf um það að sýna allt – annars væru þær ekki klám. Venjuleg klámkvikmynd hefur í raun hefðbundnara og ósveigjanlegra form en oddrímað gagaraljóð. Klámmyndir hafa enga frásögn. Slavoj Zizek segir að ástæðan fyrir því að engin frásögn fær inni í klámmyndum sé sú að enga kröfu megi gera um túlkun eða tilfinningalega þátttöku. Ef þú vilt „sjá allt“ missirðu þetta, segir hann. Þú færð hins vegar að sjá sæði sprautast nokkr- um sinnum og þetta er kallað „money shot“ því klámið er reðurmiðað, stefnt að karlmönnum og verður að sýna frammistöðu þeirra eins og virkan goshver, Strokk en ekki Geysi – ef út í það er farið. Vandamálið er að fullnæging kvennanna er ekki jafn áþreifanleg, áhorfandinn hefur ekkert til vitnis um að leikkonurnar séu ekki að gera sér upp læti. Þetta er hin sára staðreynd klámsins og þeim mun sárari sem þetta er mjög raunsæ kvikmyndagrein sem stendur í raun nær heimildamyndum en listrænum myndum. Sagt hefur verið að klám snúist um tvennt; yfirráð og einmanaleika. Ef ekki er hægt að ná valdi yfir nautn konunnar er kannski hægt að ná valdi yfir kvöl hennar? En kvölin hörfar líka undan kvalaranum. Því þó að konan sé pyntuð í „sjónrænu æði“ („frenzy of the visible“) sem sviðsetur og leikgerir valdið – þá TMM_4_2009.indd 110 11/4/09 5:44:44 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.