Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 49
U m b ó k m e n n t a k e n n i n g a r o g l j ó ð a l e s t u r
TMM 2015 · 1 49
Ég er að fara í próf. Getur einhver hjálpað mér? Ég á að finna tóninn í Antigónu.
Hjálp! Ég þarf að finna íróníu í Ödipúsi konungi. Það er víst fullt af henni þar en ég
á að skoða annað atriðið. Ætli hún sé þar líka?
Þetta er vissulega grátlegur árangur af bókmenntakennslu. En það er mesti
misskilningur að nýrýni ein leiði til svo laklegrar niðurstöðu.
4
Let us leave theories there
and return to here’s here.7
Kenning um kenningar
Segja má að nokkur straumhvörf hafi orðið í bókmenntafræði í Evrópu
og Bandaríkjunum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Þá urðu
afdrifaríkar og umdeildar breytingar sem oft hafa gengið undir nafninu
theoretical turn eða kenninga hvörf. Þetta gerðist á seinni hluta sjöunda
áratugarins í Frakklandi en á áttunda áratugnum í Bretlandi og Bandaríkjun-
um og er að mestu ráðandi þar fram undir 1990 eða svo. Skömmu fyrir 1970
hefst semsagt mikið kenninga kapp hlaup og stendur í eina tvo áratugi. Þetta
er að sjálfsögðu afar merkilegt menn ingar sögulega og spurningin er: Hverjar
eru orsakir þessa?
Helstu orsakir má vafalítið kalla að séu tvennskonar: 1) Nýjar rannsóknir
og niður stöður um eðli tungumála í byrjun 20. aldar: Ferdinand de Saussure
í Sviss, formal istarnir í Moskvu og strúktúralistaskólinn í Prag (Roman
Jakobson og fleiri). Þessi nýju viðhorf voru gjarna nefnd linguistic turn eða
málhvörf. 2) Ýmsar sögulegar orsakir – félagslegar, pólitískar, hugmynda-
fræðilegar – þótt það væri ekki endilega nefnt opinskátt; á því voru þó
undan tekn ingar.
Engum vafa er sumsé undirorpið að kenningahvörfin á seinasta þriðjungi
aldar innar áttu sér skýr ingar í sögu legri þróun eins og önnur menningarleg
fyrir bæri. Og orsakirnar voru ekki hvað síst pólitískar, framan af að minnsta
kosti: óþol og óánægja ungra róttækra fræði manna vegna pólitískrar fram-
vindu mála í heiminum. Þar má nefna þróun sósíalísku ríkj anna, en um
þetta leyti (miðjan sjöunda áratuginn) er róttæku fólki í Frakk landi að verða
það endan lega ljóst að þaðan er engra framtíðar lausna að vænta. Í annan
stað er svo heims valda stefna Breta, Frakka og einkum þó Bandaríkja manna,
en Víetnam stríðið olli straum hvörfum í banda rísku þjóð félagi á sjö unda
áratugn um. Margir róttækir menntamenn flugu til Hanoi til að kynna sér af
eigin raun afleiðingar loftárása landa sinna. Þeirra á meðal má nefna fræga
rithöfunda eins og þær Susan Sontag og Mary McCarthy. Skáldsögur eins
og Sláturhús fimm eftir Vonnegut opnuðu augu margra. Æskufólk rís upp,
fram koma kröfur um róttæka endurskoðun á stöðu kvenna og kvenna-
bókmennta – önnur bylgja femínismans sem svo hefur verið kölluð – og um