Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Side 51
U m b ó k m e n n t a k e n n i n g a r o g l j ó ð a l e s t u r
TMM 2015 · 1 51
bók mennta varð útundan eins og heimspekingurinn Martha Nussbaum og
fleiri hafa bent á.12 Þá er að sjálf sögðu ekki átt við einhver þröng siðaboð – af
þeim lærir enginn neitt – heldur þroskandi og hugvíkkandi áhrif bóka, nýja
innsýn sem lestur góðra bókmennta veitir í mannlega reynslu og fjölbreyti-
leik mannlífs ins. Að ekki sé nú talað um ánægjuna af frjóu máli og stíl, af
óþrjótandi mögu leikum tung unnar. Eða hvernig ætli standi á því að við
hrífumst aftur og aftur af ljóð um, leik ritum, skáldsögum?
Það er vissulega vel þess virði að hugleiða teoríutímabilið – orsakir þess,
kosti og ágalla, ávöxt þess og orkusóun sem því fylgdi, nú þegar litið er til
baka og endurmat er löngu hafið á viðhorfum til bókmenntafræða. Eftir
aldamótin síðustu hefur Terry Eagleton, svo nafn hans sé aftur nefnt, að
mestu skrifað um annað en kenningar: um bókmenntafræði almennt og
einstakar greinar bókmennta; um gagnrýni; um Marx og marxisma; auk
andófsrita gegn guð leys ingjum, eink um þeim Richard Dawkins og Chri-
stopher Hitchens sem hann slær saman og kallar Ditchkins!13
6
Að lokum þetta: Ekki er að efa að bókmenntakenningar geta verið gagn-
legar ef maður tekur þær ekki alltof hátíð lega. Þær rugla mann í ríminu,
koma manni til að hugsa málin upp á nýtt og endurskoða ‚sannleikann‘
sem maður hélt vera. Þær geta vissulega kveikt hugmyndir eins og hvaðeina
annað. Sú hætta er þó á næsta leiti að maður festist bara í öðru fari og taki
að sjá alstaðar sömu hlutina. Því teoríur eru al hæf ingar – alhæfðar hug-
myndir eða hugmyndakerfi. Ekkert getur leyst gagn rýnanda undan þeirri
kvöð að treysta eigin dóm greind. Og ég fyrir mitt leyti er sannfærður um
að almenn fræðileg hugsun sem viðfangs efnin kalla á er mun ágóða vænlegri
við bókmenntakönn un en fyrirfram gerðar lausnir, að bók menntarýni sem
byggð er á nákvæmum lestri texta er gagn legri og umfram allt skemmti legri
en lestur í ljósi kenninga og kennivalds.
En auðvitað er rangt að líta á bókmenntakenningar sem einn pakka, allar
góðar eða allar vondar; það er í mesta lagi hægt að tala um ættarmót með
þeim, family resemblances! Og svo áfram sé vitnað í Ludwig Wittgenstein:
Líta má á þær sem stiga sem maður getur klifrað upp – í von um að öðlast
betri út sýn – en síðan ber að fleygja stiganum frá sér.
Á þrettándanum 2015
Tilvísanir
1 John Crowe Ransom: The New Criticism, New Directions, 1941.
2 I.A. Richards: Practical Criticism · A Study of Literary Judgement, Cambridge 1929. Kindle-útg.
3 Chatto and Windows 1930; Penguin Books 1995.