Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Side 55

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Side 55
„ H ú s i n e r u e i n s o g o p i n b ó k “ TMM 2015 · 1 55 nefndi tekur að sér að skilgreina verk Guðjóns og leggur visst hugmynda- fræðilegt vægi í þær byggingar sem reistar eru eftir teikningum hans. Eftir það fer að gæta þjóðernispólitískrar skírskotunar í byggingum Guðjóns sem þjóna hagsmunum sjálfstæðisbaráttunnar annars vegar og varðveislusinna hins vegar. Í hönd fór áralangt samstarf þeirra Guðjóns og Jónasar um að skapa þjóðlega byggingarlist, hvort tveggja í efnislegum skilningi og í hugar- heimi íslensku þjóðarinnar. Það vill hins vegar oft gleymast að þjóðernishreyfingin er alþjóðlegt fyrir- bæri en ekki afmörkuð tilhneiging og þar að auki fremur nýleg á mælikvarða sögunnar.7 Enginn maður er eyland – og svo virðist sem eyjur séu það ekki heldur. Það er engin ástæða til þess að ætla að Guðjón hafi numið land hér sem fyrsti lærði húsameistari þjóðarinnar og náð að fanga sjálft „eðli“ þjóðarinnar í formi bygginga. Má ekki allt eins ætla að það hafi þótt til- valið að flækja byggingar Guðjóns í þá þjóðernislegu orðræðu sem stjórn- málamenn þess tíma ófu í gríð og erg? Mikið hefur verið rætt og skrifað um Guðjón Samúelsson og hinn íslenska byggingarstíl í gegnum tíðina og hafa flestir gengið blint inn í þá orðræðu sem Jónas frá Hriflu, og Guðjón sjálfur að nokkru marki, sveipuðu verk hans. Aftur á móti hefur lítið sem ekkert borið á gagnrýnum rannsóknum um þetta efni. Þjóðlegheit ríða húsum Atli Magnús Seelow hefur vakið athygli á því að margt af því sem Guðjón gerði hafi hugsanlega verið fengið að láni annars staðar frá og lagað að íslenskum aðstæðum. Til að mynda séu töluverð líkindi með sumum bygg- ingum Guðjóns og finnska arkitektsins Eliel Saarinen. Atli varpar fram þeirri hugmynd að Saarinen hafi trúlega höfðað til Guðjóns sökum þess að byggingarlist hans hafi þótt tjá anda finnskrar þjóðernishreyfingar. Það hafi þar af leiðandi – auk þess sem Saarinen hafi verið einn frægasti arkitekt Skandinavíu kringum 1910 – legið beint við að aðlaga hugmyndir Saarinens að íslenskum aðstæðum fremur en að temja sér verklag sem tengdist danskri. Atli leiðir einnig rök að því að hamra- eða stuðlabergsstíllinn svokallaði hafi ekki verið sprottinn úr „ósjálfráðu flæði megnra tilfinninga“ hins íslenska sveitapilts eins og mátti skilja á Jónasi frá Hriflu, og eigi ekki rætur að rekja til Jens Eyjólfssonar eins og sumir telja, heldur sé hann frá Saarinen kominn. Sú skoðun helgast af því að í „mónumental-arkitektur sínum leitaði Saarinen ekki fyrirmynda í fornum stíltegundum, eins og tíðkast hafði á umliðnum áratugum“, heldur voru verk hans á mörkum „náttúrulegra og mann- gerðra forma“8. Atli bendir enn á að það megi ráða af uppdrætti Guðjóns að listasafni Einars Jónssonar á Skólavörðuhæðinni, ásamt skissum hans frá sama tíma, að Guðjón „líkir sínum listasafnsuppdrætti í mörgum greinum eftir samkeppnistillögu Saarinens að listasafninu í Helsinki (1908)“.9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.