Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Síða 64
K j a r t a n M á r Ó m a r s s o n
64 TMM 2015 · 1
íslenskri byggingarlist.61 „Og fljótlega eftir það fer maður að sjá áhrif í hans
eigin verkum. Áhrif til einföldunar og að vissu leyti áhrif frá þessum yngri
mönnum“.62
Því er ekki hægt að neita að hamrastíllinn, í sinni einföldustu mynd,
er undir áhrifum frá funksjónalismanum. Meginmuninn segir Pétur vera
að Guðjón hafi umfram allt litið á funksjónalismann sem stíl líkt og allar
aðrar stefnur en í huga boðbera stefnunnar hafi þetta verið lífshugsjón.
Hamrastíll Guðjóns er því nokkurs konar tilraun til þess að samþætta
einfaldleika funkis-stefnunnar og þjóðernisrómantískar vísanir í form-
myndir úr íslenskri náttúru. Haraldur Helgason hefur einnig bent á að þessi
„náttúrulegi stíll“ hafi átt sér samsvörun í erlendum arkitektúr um líkt leyti
og bætir við að sér þyki Guðjóni hafa tekist vel til.63
Það er hugsanlega þetta sem Guðjón á við þegar hann segir svip Þjóð-
leikhússins að mestu eftir nútímatísku og það eina sem skilji að sé íslensk
húsagerðarlist. Hann gleymir að vísu að bæta við þjóðlegri hjátrú.
Þótti mér sem leikhúsið væri einskonar æfintýraborg, einskonar álfakonungshöll,
og mætti vel bera þess merki. Þetta hefði mátt gera með einhverju æfintýralegu
skrauti, turnum og hvelfingum og þvíumlíku, er styngi í stúf við hversdagsleg hús.
En þetta var dýrt, og byggingarefni vort, steinsteypan, ekki allskostar til slíks. Auk
þess varð ekki sagt, að tíðarandinn færi í þessa átt. Annað gat og komið til tals.
Íslendingar hafa lítið haft af skrautlegum höllum að segja, og íslenzka huldufólkið
bjó blátt áfram í klettum. Því þá ekki að búa til einhverja klettaborg yfir allt það
æfintýralega líf, sem sýnt er á leiksviði? Þetta var viðráðanlegra hvað kostnað
snerti, og líka íslenzkara. Það virðist og samrýmanlegt við þá sanngjörnu kröfu, að
Landakotskirkja. Ljósm. Þorgrímur Andri Einarsson.