Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Síða 88
S t e i n u n n J ó h a n n e s d ó t t i r
88 TMM 2015 · 1
áþreifanleg í líkömunum þrem og ekki síður sorg og angist kvennanna við
rætur krossins. María Magdalena heldur í örvæntingu um stólpann, María
móðir Jesú hnígur í fang Jóhannesi, lærisveininum sem Jesús elskaði og bauð
að taka hana að sér. Aðrar konur fylgjast hryggar með í vanmætti sínum.
Myndlist og sálmar
Í Heimanfylgju sviðset ég fyrstu kynni Hallgríms af messugjörð í dymbilviku
og á föstudaginn langa í risastórri dómkirkjunni:
Hallgrími fannst allar þessar kirkjugöngur þraut og pína og honum rann í brjóst
undir ógnarlöngum ævisálmi Jesú sem sunginn var á langafrjádag.
Pabbi hans hnippti hart í hann og sagði honum að hlusta.
Í kvalastaðinn þá kominn var
á krossinn Jesú festu,
millum tveggja morðingja
þar meinlausan upp hann festu.
Pabbi hans benti honum á altaristöfluna lengst inni í kórnum sem lýstist upp af
kertunum á altarinu.
– Fylgstu nú með, hvíslaði hann. – Þarna geturðu séð hvernig þetta allt gekk fyrir
sig.
Hallgrímur pírði augun en myndin var svo langt í burtu að hann gat ekki greint
smáatriðin.
Hátt á krossi herrann hékk,
heiftar menn þetta skoða,
hans síðu spjót í gegnum gekk,
svo grimm var Júða bræði.
Falurinn hvass í hjarta stóð,
hér út rann með vatni blóð.
Það gjörvöll mein vor græðir.
Faðir hans hafði nokkrum sinnum farið með hann upp í kórinn og leyft honum að
skoða þessa ógnvekjandi mynd í nálægð. Á töflunni voru menn og skepnur skorin
út og máluð af slíkri list og nákvæmni að atburðurinn varð alveg ljóslifandi fyrir
honum.
Myndin brenndi sig inn í vitund hans.
Falurinn hvass í hjarta stóð.
Það nísti hjarta hans að horfa upp á þjáða og þyrnum krýnda ásjónu guðssonarins.
Sorg og angist kvennanna var yfirþyrmandi.
Þannig reyni ég að lýsa fyrstu kynnum níu ára drengs af píslarsögunni, sem
síðar átti eftir að verða helsta viðfangsefni hans sem skálds. Hann kynntist
henni þar sem hún var túlkuð með hvað áhrifaríkustum hætti á landinu,
annars vegar í sálmum Grallarans og Sálmabókarinnar, sem Guðbrandur
frændi hans hafði tekið saman og gefið út, og hins vegar í myndlistarverkum