Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Síða 103

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Síða 103
TMM 2015 · 1 103 Þorsteinn Antonsson „Dularfullur gestur“ Um Markús Ívarsson og grimmd í sögum Ástu Sigurðardóttur 1. Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur skrifar um „Dýrasögu“ Ástu Sigurðardóttur skáldkonu í grein sinni „Myndir“ í TMM 2. hefti 1986 meðal annars þetta: „Dýrasaga er þrungin innri spennu, full af táknum og tvíræðni.“ Nefnd saga Ástu er freistandi viðfangsefni af fleiri ástæðum. Einnig þeirri um tengsl höfundar við söguna sem farið verður frekar út í með þessari grein en fyrr hefur verið gert á prenti. Páll Ásgeir Ásgeirsson leggur út af grein Dagnýjar á netmiðlinum heimur.is árið 2007 og segir: „Í lýsingum sínum sækir Ásta Sigurðardóttir í sína eigin upplifun af kúgun og misbeitingu.“ Páll telur þetta einnig niðurstöðu Dagnýjar um „Dýrasögu“.1 Sagan er eins og flestar aðrar eftir Ástu um grimmilegt návígi manns og umheims hans og í þessu tilviki hryllilegt ofbeldi fullorðins manns gagnvart barni. Um framgang flestra sagna Ástu gildir, að annars vegar er maður, hins vegar umheimur og ekki er annað að sjá en að á þessu tvennu sé eðlismunur, svo að hvorugt geti unað við hitt. Heimurinn er samur við sig og vanmáttur manneskjunnar birtist til dæmis í mynd barna sem verða fyrir ranglæti og er útmálað af slíkri kynngi að freisting er að halda að verið sé að lýsa fólki úr lífi höfundarins sjálfs, jafnvel eigin bernskureynslu – svo opin er kvikan. Ekkert af því sem um bernsku Ástu er vitað gefur þó tilefni til að ætla að kjör hennar á bernskuheimilinu, á fæðingarári hennar 1930 og fram á upphafsár lýðveldisins, 1944, þegar hún fór að fullu að heiman, hafi verið neitt í líkingu við lýsingar á þeim kjörum sem sögur hennar vitna um; svelti, barsmíð og margskonar aðra niðurlægingu sem fram fer í sögum hennar meðal þeirra kotunga sem hún gæðir lífi með leiftrandi frásagnargáfu sinni. Fæðingarstaður hennar var bærinn Litla-Hraun á Mýrum. Þar bjó Ásta til 14 ára aldurs hjá foreldrum sínum en flutti svo alfarin til Reykjavíkur. Hún saknaði heimahaganna, en jörðin fór í eyði fáum árum síðar. Nátt- úrulýsingarnar á næsta nágrenni við kotbýlið í grein hennar „Frá mýri, hrauni og fjörusandi“2 – eru ljúfar og unaðsríkar; þær vitna um næmleika
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.