Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 117

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 117
Þ r j á r r æ ð u r TMM 2015 · 1 117 Fróði minn er bara tveggja ára. Hann á engu að síður sérstakar þakkir fyrir að hafa verið svona vært ungabarn og sofa alltaf svona vel (og í raun má segja að bókin hafi verið unnin í ákveðnu samstarfi við Fæðingarorlofssjóð). Mig langar líka að þakka mömmu og pabba fyrir stuðninginn – og pabba fyrir allar sögurnar af Ingimar og Hallberu. Gullý frænka á einnig þakkir skildar en hún er einstakur sagnamaður (og býr reyndar bara hérna í hraun- inu rétt hjá Bessastöðum). Þá langar mig til að þakka öllum yfirlesurunum mínum, og þá sérstaklega Ármanni Jakobssyni sem fór þar fremstur í flokki. Vinir mínir fá síðan einnig miklar þakkir, djúpar og innilegar. Og auðvitað Forlagið fyrir að hafa trú á verkinu frá fyrstu kynnum, Sigþrúður þá sér- staklega og svo má nefna einnig Höllu Siggu sem hannaði fallega kápu sem sýnir að mér finnst Gálgahraunið hér rétt hjá – sem mér finnst óskaplega vænt um. Án þess að ég ætli að ræða það mál frekar hér. Þá langar mig að þakka Kurt Vonnegut, Nirvana og Víðistaðaskóla fyrir innblásturinn (og kannski bara öllum þeim sem voru með mér í Víðistaða- skóla í sínum tíma), Hafnarfirði fyrir að vera svona fallegur og sætur bær, og sérstakar þakkir fær bókasafnsstarfsfólk og grunnskólakennarar: sérstaklega kennarar í Víðistaða- og Engidalsskóla því án þeirra og bókasafnanna hefði ég aldrei skrifað neitt af viti. En þar lærði ég að lesa og skrifa. Á stofnunum. Þessum stofnunum. Skáldskapurinn getur borið okkur lengra en raunveruleikinn. Gert okkur frjáls undan raunveruleikanum jafnvel. Ég er því einnig afskaplega þakklát þeim sem standa í því að skrifa og skálda og standa þannig iðulega á mörkum hins skáldaða og raunverulega – opna dyr eins og ekkert sé – og hafa einnig hvatt mig áfram eða verið mér ákveðnar fyrirmyndir. Þessu tengt langar mig að þakka ungskáldunum sem voru ung hér rétt eftir aldamót – Nýhil sem gaf mér til dæmis tækifæri á að birta og fara með ljóð. Einnig fær Ritlistin við Háskóla Íslands mínar þakkir, þjóðfræðin við sama skóla. En í þjóðfræðinni er hægt að tala um drauga og álfa líkt og um fólk af holdi og blóði sé að ræða (enda vita allir þjóðfræðingar að álfar og draugar og allar hinar yfirnátt- úrulegu verurnar, endurspegla fyrst og fremst okkur mannfólkið). Og svo vil ég einnig þakka Listaháskóla Íslands þar sem ég starfa í góðu vinnuumhverfi – eins og sagt er – innan um frábært fólk, nemendur og kennara. Að lokum langar mig til að þakka dómnefndinni fyrir að hafa lesið allar þessar bækur og það gleður mig auðvitað sérstaklega mikið að hún virðist hafa haft svona gaman af þessari hálf-dramatísku gamansögu – héðan úr hrauninu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.