Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1933, Side 97
inni var komið upp, verið þar hvern föstudag kl. 3—4 til viðtals og
leiðbeininga fyrir berklasjúklinga. Heíir hann enga þóknun fengið fyrir
þetta óeigingjarna starf og mikla ómak, hvorki frá deildinni né af
opinberu l'é. Nú um áramótin tilkynnti hann deildarstjórninni, að
hann af ýmsum ástæðum, en ekki sízt vegna annríkis, sæi sér ekki
færl að halda áfram þessu starfi. Héraðslæknirinn hefir tekið að sér
að gegna því í hans stað fyrst um sinn, en treystir því hins vegar,
að Jónas læknir fáist seinna til að taka það að sér á ný, eða jafn-
skjótt og landstjórnin hefir skipað aðstoðarlækni við Iiælið, honum
til hjálpar.
Höfðaliverfis. Ráðningartími starfsstúlku hjúkrunarfélagsins Hlín var
útrunninn um miðjan maí, og hefir félagið ekki fengið neina stúlku
til að gegna starfinu frá þeirn tima.
Híisavikur. Hér er ekkert hjúkrunarfélag, en Kvenfélag Húsavíkur
er oft lijálplegt með hjúkrun sjúkra. Svo eru og hér nokkrar konur,
sem klæða nýfædd börn fátækra og fæða heimilin meðan konan
liggur á sæng'. Er þetta lil stórra hóta og sýnir mjög virðingarverðan
vilja kvennanna til hjálpar.
Seyðisfj. Iðgjöld sjúkrasamlagsins eru frá kr. 1,00 upp í kr. 3,50
pr. mánuð. Meðlimum tryggð sjúkrahúsvist i 30 vikur og' dagpeningar,
sem fara eftir iðgjaldi, í 10 vikur. Læknir gefur 15°/o afslátt frá taxta
héraðslækna og' lyfsali 10 °/o.
Norðfj. Endurreisn sjúkrasamlagsins ekki heyrð nefnd á nafn.
Reyðarfj. Sjúkrasamlag starfar á Revðarfirði með um 20 meðlim-
um (ekki skrásett).
Siðu. 1931 var stofnað hér sjúkrasamlag frú Ingibjargar Brynjólfs-
dóttur og Magnúsar Bjarnarsonar prófasts með kr. 2000,00, en það
tekur ekki til starfa fyrr en 1945; þangað til leggjast vextir við
höfuðstól.
Vestmannaeyja. Engin lærð hjúkrunarkona starfar að hjúkrun utan
sjúkrahúsa. Barnaverndarnefnd er hér, líklega frekar til siðbótar, ef
nokkuð er, lieldur en til lieilsuverndar.
Keflavíknr. í Sandgerði var, eins og síðustu árin, lærð hjúkrunar-
kona á vegum Rauðakrossins. I inllúenzufaraldrinum á vertíðinni varð
hún að stunda 170 sjúklinga, auk allra annara aðgerða, og skipta á
fingur- og handarmeinum, sem skiptu víst fleiri hundruðum.
('. Barnahæli — fávitahæli.
Læknar láta þessa getið:
Grimsnes. A barnahælinu Sólheimum í Grímsnesi var reist sérstakt
liús síðastliðið sumar, sem eingöngu er ætlað fávitum. Er það stein-
steypt, 2 hæðir og kjallari og rúmar 20 30 fávita. Var það tekið
til notkunar seint á árinu.
1). Rannsóknarstofa Háskólans.
Prófessor Níels Dungal liefir geíið eftirfarandi skýrslu um störf
hennar á árinu 1933: