Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Síða 58
Múlaþing
og þiðnunar. Ætla má að hafí grafreiturinn
ekki orðið fyrir miklum skakkaföllum af
völdum seinni alda framkvæmda þá geti
hann varðveitt fleiri grafir, kirkjugarðsvegg
og ef til vill leifar kirkjubyggingar.
Ekki var hægt að draga miklar ályktanir
út frá beinasafninu sem hér um ræðir vegna
þess hversu sundurlaust það er. A annað
hundrað beina og beinhluta voru skoðuð og
skráð. Þau reyndust úr a.m.k. þremur
íúllorðnum einstaklingum þar af var hægt
að grein til kyns einn karlmann og eina
konu. Einnig voru leifar brotinnar
bamshöfúðkúpu og heils neðrikjálka henni
tilheyrandi. Tennur bentu til að barnið hafi
verið um 10 ára gamalt er það lést. Auk
höfuðkúpunnar voru fleiri bein úr þessum
einstaklingi, bæði hryggjarliðir, rifbein auk
hand- og fótleggjabeina og augljóst að
grafan hefur mokað þessari gröf upp nánast
í heild sinni. Aðrar beinaleifar bentu til að
aðeins hlutar grafa hafi skemmst. A einu
leggjabeinanna er hægt að greina gömul
ummerki sýkingar og tvö leggjabeinanna
eru mjög þykk og vöðvafestur allar miklar
og áberandi sem bendir til líkamlegs erfiðis
í lifanda lífi.
Þegar beinin voru kolefnisaldursgreind
var einnig mælt hlutfall kolefnissamsætu 13
(^C). Magn 13C í beinum gefur hugmynd
um hversu stór hluti fæðunnar kom úr
sjónum. Hlutfall ^C í einstakling-unum
tveimur frá Skeggjastöðum bendir til að
sjávarfang hafi verið um 40% af fæðu
þeirra. Það er nokkm hærra en mældist t.d.
í beinum frá Keldudal í Skagafirði en
sjávarfang virðist hafa verið fremur lítill
hluti af almennri fæðu landsmanna allt fram
á miðaldir. Sama er að segja um fæðuval
norrænna manna á Grænlandi en þar eykst
hlutfall sjávarfangs eftir því sem líður á
miðaldir.19
Lokaorð
Beinafúndurinn á Skeggjastöðum bendir til
þess að þar sé að finna einn af elstu
kirkjug rðum landsins sem er mikilvæg
viðbót við kirkjusögu í Bakkafirði en einnig
kristnisögu landsins alls. Beinin sem upp
komu við framkvæmdimar eru í furðanlega
góðu ástandi miðað við að þau hafa legið
skammt undir yfirborði. Af því má ætla að
varðveisluskilyrði jarðvegs séu nokkuð
góð. Auk þeirra ljögurra einstaklinga sem
bein voru greind úr komu fram á yfirborði
við könnunina tvær grafir og vom grafimar
því alls sex að tölu.
Ekki er hægt að fullyrða hvort eða
hversu stór hluti grafreitsins kann að hafa
raskast við seinni tíma framkvæmdir en
hluti garðsins kann að liggja inni á
núverandi lóð við prestsbústaðinn. Einnig
er ljóst að allavega hluti hans liggur mjög
gmnnt undir yfirborði og því í mikilli hættu
vegna hverskyns framkvæmda.
Tilvísanir og athugasemdir
1 Islendingasögur netútgáfa.
2 Dipl.isl. XII, bls. 3.
3 Sveitir ogjarðir 1. bindi, bls. 37.
4 Sama heimild, bls. 4.
5 Sigmar I. Torfason 1995, bls. 26-27.
6 Sigmar 1. Torfason 1975, bls. 4.
7 Sigmar I. Torfason 1995, bls. 22.
8 Sama heimild, bls. 138.
9 Sigmar 1. Torfason 1975, bls. 3.
10 Skv. samtali við Jóhönnu Sigmarsdóttur 7.
nóv. 2006.
11 Sigmar I. Torfason, Ömefnaskrá
Skeggjastaða.
12 Jón Viðar Sigurðsson 2000, bls. 53.
56