Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Blaðsíða 63
Hólar í Fjarðardal í Mjóafirði
Séð út til fjarðarins. Friðheim ber undir Asknes.Myndina tók Guðríður Magnúsdóttir frá Friðheimi í júlí
2006.
líka tvö yngstu börn þeirra úr bamaveiki
haustið 1862, bæði sögð sveitarómagar:
Friðhólm dó 23. september og Rósa daginn
eftir. Þorkell lést 10. október 1865, sagður á
„hrakningi“ í skrá um látna. Verður nú gerð
grein fyrir afdrifum hinna bamanna og
upplýsingar sóttar í prestsþjónustubækur
viðkomandi sókna.
Halldór Þorkelsson, f. 25. mars 1845 í
Hvannstóði fór með foreldrunum til
Mjóafjarðar og var nokkur ár í Hólum. Um
fermingaraldur var hann á Steinsnesi og
fluttist þaðan 1863 til Borgarljarðar. Er
sagður léttapiltur á Bakka 1866, þá 21 árs.
Arið 1872 er hann skráður „flækingur“ og
til heimilis á Hofströnd. Hann festist ekki í
vistum og varð umrenningur, frábitinn allri
vinnu, hafði ýmsa skrítna tilburði í frammi,
var afar fínn með sig og fólk henti gaman
að honum. Var ætíð nefndur Halldór
Hómer. En hann gat gert þeim skömm til
sem spottuðu hann. Var ætíð snyrtilegur til
fara og flutti ekki kviksögur milli bæja.
Guðfinna Þorsteinsdóttir lýsir honum vel í
bókinni Völuskjóðu, sem Iðunn gaf út
1945. Hún skrifar um Halldór af samúð án
þess að draga undan um sérkennilegt
háttalag hans. Sigfús Sigfússon skrifar um
hann í 4. bindi þjóðsagnasafns síns og orðar
það svo: „Hann var allra manna frómastur,
orðheldnastur og trúastur, og laus við alla
kerskni, lygi og þvaður, og því alls staðar
vel liðinn, ef eigi hefði letin verið“. Talað
var að um honum hefði verið skipt í
bernsku. Son eignaðist hann sem hét
Guðfinnur og bjó á Borgarfirði eystra.
Halldór lést árið 1894 á Tjarnarlandi í
Hjaltastaðarþinghá og var grafinn á
Kirkjubæ í Tungu. Er viðurnefni hans skráð
í kirkjubókina og mun slíkt fátítt.
EinarÞorkelsson, fæddist í Firði 7. nóv.
1850. Fluttist með foreldrum sínum frá
Hólum að Setbergi 1861 og er með þeim á
Bakka 1863, sagður sveitarómagi. Var með
móður sinni á Bakka allt til 1871.
Mæðginin voru svo saman í vinnumennsku
61