Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 65
Hólar í Fjarðardal í Mjóatlrði
Sigurborg Gísladóttir var á Stafafelli í
Lóni næstu tvö árin eftir lát móður sinnar en
á Keldhólum á Völlum hjá sr. Þorvarði
Brynjólfssyni næstu tvö ár. Fluttist úr
Eiðaþinghá til Seyðisijarðar 1910 en giftist
Þórhalli Jónassyni á Breiðavaði 1915. Böm
þeirra urðu tvö: Guðlaug f. 1918, síðar
húsfreyja á Breiðavaði og Borgþór f. 1921.
Hann var rannsóknarlögreglumaður í
Reykjavík. Sigurborg léstárið 1921, hálfum
mánuði eftir fæðingu drengsins. Varð þá
Björg systir hennar ráðskona eitt ár en
Ragnhildur systir þeirra var svo bústýra á
Breiðavaði til 1960 er Þórhallur hætti
búskap. Hún lést þar í hárri elli 1965. Það
varð hennar hlutskipti að ala upp böm
Sigurborgar hálfsystur sinnar svo og
hálfsystur sínar Laufeyju og Líneik. Þær
vom um 40 ámm yngri en hún, fluttust
uppkomnar suður og bjuggu þar. Gísli
Hannesson lést á Breiðavaði 1921 og var þá
71 árs að aldri.
Aður var nefnt að Björg Gísladóttir
fluttist til Akureyrar 1911. Hún kom aftur
austur, fluttist að Breiðavaði 1919 og er þar
skráð ráðskona fyrsta árið eftir lát systur
sinnar en fór þaðan til Bergen í Noregi
1922, dvaldist þar fá ár, kom svo aftur til
íslands og var við ýmis störf í Reykjavík
eftir það. Lést 20. júlí 1970.
Eyjólfur Gíslason fór eftir lát móður
sinnar í fóstur til Filippusar Stefánssonar og
Þórunnar Gísladóttur grasakonu. Var fyrst
tvö ár á Skálanesi við Seyðisijörð en fluttist
með þeim að Brúnavík árið 1900. Sagður
hafa flust þaðan að Hvalsnesi 1910, árið
eftir til Seyðisíjarðar og árið 1912 til
Norðijarðar en finnst þó ekki í kirkjubókum
þar. Virðist hafa komið aftur til
Borgarijarðar 1914 en fór svo suður og var
sjómaður á fraktskipum og togurum. Hann
lést á franska spítalanum í Reykjavík 21.
Gísli Hannesson. Gísli var vinnumaður hjá
Jóni Bergssyni á Egilsstöðum, myndin er tekin
á Seyðisfirði. Eigandi myndar: Ljósmyndasafn
Austurlands.
ágúst árið 1920. Unnusta hans hét
Ragnheiður Guðmundsdóttir f. 24. 8. 1894.
Sonur þeirra var Eyjólfur Ragnar, f. 31. 3.
1921, rúmum sjö mánuðum eftir andlát
föður síns. Ragnheiður lést 17. febrúar
1932.
Eyjólfur Ragnar Eyjólfsson kvæntist
Hansínu Sigurbjörgu Hjartardóttur frá
Hellissandi, f. 13. júlí 1919. Hún lést á
Hrafnistu í Reykjavík 7. maí 2003 og voru
þá afkomendur þeirra 29 talsins. (Mbl. 16.
maí 2003).
Hólar 1862- 1875
Vorið 1862 fluttust að Hólum hjónin Sveinn
(2765) Jónsson og Guðbjörg (1446)
Guðmundsdóttir ásamt tveimur börnum
sínum, Guðmundi (1447) 8 ára og Önnu
(1451) 4 ára. Sveinn var frá Sveinsstöðum í
Hellisfirði, f. um 1820 en Guðbjörg frá
Barðsnesi á suðurströnd Norðijarðarflóans,
f. um 1830. Þau kornu frá Bakka í Norðfírði
63