Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 67

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 67
Hólar í Fjarðardal í Mjóafirði Vorið 1871 fluttust að Hólum hjónin Ormar (1902) Guðmundsson frá Sauðhaga á Völlum, 37 ára og Ragnheiður (195) Bjarnadóttir, 39 ára, frá Blöndugerði í Tungu, hvar þau bjuggu fyrst. Fluttust að Ásgeirsstöðum 1867, þaðan að Dalhúsum, að Þuríðarstöðum 1870 og eftir árið að Hólum. Bjuggu þar tvö ár. Höfðu eignast nokkur böm, sem öll dóu ung nema dóttirin Una, f. 1863. Vorið 1873 fluttust þau að Asknesi til tveggja ára dvalar, voru eitt ár á Reykjum en fluttust svo til Norðfjarðar. Þeim fæddist sonurinn Stefán. Böm þeirra Una og Stefán eiga marga afkomendur á Norðfirði og víðar á Austurlandi og hafa þeir dreifst víðar um landið. Dóttir Stefáns Ormarssonar var Una Stefanía, sem átti 120 afkomendur, þegar hún lést 25. apríl 1950 (Ættir Austfírðinga, bls. 1501). Enginn var í Hólum fardagaárið 1873 - 1874. Vorið 1874 komu að Hólum hjónin Eirikur (3167) Bjarnason frá Ásgeirs- stöðum og Sesselja (5519) Jónsdóttir frá Papey, bæði 43 ára og með þeirn dóttirin Rósa (3168) 7 ára. Þau komu úr Eiða- þinghá, líklega frá Þuríðarstöðum. I hand- ritum Bjama Jónssonar frá Þuríðarstöðum kemur fram að hann hafi kynnst þeim náið, að þau hafi verið mjög vel að sér í þjóðlegum fróðleik og verið miklar sagnamanneskjur. Mætti ætla að þau hefðu náð langt við önnur og hagstæðari skilyrði. Fjölskyldan fluttist til Seyðisfjarðar 1875. Eignuðust þar dótturina Þuríði (3169). Hún mun hafa átt heima á Seyðisfirði. Rósa fluttist vestur um haf. Átti son sem hét Einar og bjó á Seyðisfírði. Lést 1928. (Æ. Au.). Eftir þetta kom enginn til búsetu í Hólum. Hús voru rifin og tættur sigu saman. Smátt og smátt lagðist gróður yfír þær og lítið ber á þeim nú. Svo kemur gleymskan og hylur spor fólksins. En Prestagilsfoss í Suðurfjalli. Myndina tók Guðríður Magnúsdóttir frá Friðheimi í maí 2006. Þjóðskjalasafn geymir kirkjubækurnar, sem vitna um líf þess og störf. En túnbletturinn kringum rústirnar í Hólum er ákaflega grasgefínn og var oft sleginn fram undir það að búskap lauk í Fjarðarbýlum árið 1956. Síðan hljómar þar aldalangur niður lækjanna. Hann rofnar þó við gný frá umferð bíla að sumarlagi á síðustu áratugum. Þáttur Stefáns Vilhjálmssonar Á fyrsta fjórðungi 19. aldar bjó á Kirkjubóli í Norðfírði Vilhjálmur (12414) Ámason, f. um 1751. Lést 24. apríl 1824 og presturinn segir í skrá um látna: „góður bóndi og vel látinn af öllum“. Vilhjálmur var tvíkvæntur. Fyrri konan var Ingibjörg (10964) Gísladóttir frá Hofí í Norðfírði og áttu þau 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.