Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 73

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 73
Ólafia Herborg Jóhannsdóttir Bjartar vonir og vonbrigði „Guð gefi að, ef þetta skip skyldi nú stranda, að það strandi hér“. Haft er fyrir satt að þetta hafí dottið hugsunarlaust upp úr konu nokkurri sem bjó í Öræfasveit á síðustu öld. Var hún þá að horfa á skip sigla skammt undan ströndinni. Stundum rættist slík ósk því að ströndin við Suðausturlandið er viðsjál og víða miklar grynningar skammt frá fengsælum fískimiðum. Siglingaleið lá norður fyrir Skotland, allt að 62. breiddargráðu meðan ófriður var milli Breta og Hollendinga upp úr miðri 16. öld. Til eru um það heimildir að á versta stað hafí skollið á óveður og skip hrakið af leið samanber Het Wapen van Amsterdam sem strandaði við ósa Skaftár. Mörg þessara skipa voru hlaðin dýrmætum varningi og var það fengur fyrir Öræfínga sem liðu vöruskort öldum saman. Fjöldamörg skip hefur borið upp á fjörur Suðurlands, nú eru flest þeirra horfín í sandinn og sjást þeirra engin merki. Ströndin hefur færst fram og er íjöruborðið miklu utar en það var. Rétt fyrir ofan sandrifið við Kvíá í Öræfum sést ennþá flak botnvörpungsins Clyne Castle, stendur stefnið upp úr sandinum og snýr að jökli. Ef „troIlarinn“ gæti talað hefði hann örugglega frá mörgu að segja, hann gæti sagt okkur frá ferð sinni yfir hafið, strandinu, fögnuði og gleði áhafnarinnar þegar hún komst heil á húfí í land. Hann gæti sagt okkur frá draumum mannanna sem keyptu „trollarann“ á strandstað, gleði þeirra þegar vel gekk við björgunar- tilraunirnar og tárum sem ef til vill féllu í vonbrigðunum yfír því að þetta ævintýri fékk dapurlegan endi. Hann gæti lýst fyrir okkur hinni löngu bið eftir því að verða sandinum að bráð og öllum þeim sem hafa komið í heimsókn á þeim tíma. Nú er liðin hartnær ein öld og enn bíður Clyne Castle, bíður í norðanroki þegar brimskaflarnir bylja á flakinu, bíður í brimrótinu sem feykir ölduföldunum langt yfír flakið. Það skiptast á skin og skúrir, stundum er sólskin og logn, þá hitar sólin stefnið sem stendur eitt upp úr. Stundum er rok og rigning eins og þeir hugdjörfu menn sem unnu að björguninni urðu vitni að þessi fímm sumur sem þeir eyddu á sandinum og í Clyne Castle. Clyne Castle Botnvörpungurinn Clyne Castle frá Grimsby, strandaði þann 17. apríl 1919 á Bakkafjöru, framundan bænum Kvískerjum sem er austasti bærinn í Öræfúm, vestan Breiðamerkursands. Clyne Castle strandaði 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.