Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Side 95

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Side 95
Nokkrar athugasemdir Nokkrar athugasemdir frá Hjalta Þórissyni í grein Helga Más Sigurðssonar „Aflstöðin í Fjarðarseli“ sem birtist í 32. hefti Múlaþings árið 2005 eru nokkrar missagnir, sem hér verða leiðréttar. Myndatextar: Mynd bls. 78 af Seyðisfírði segir að myndin sé frá þriðja áratug 20. aldar. Hið rétta er er að myndin er frá því um 1950. Einkennilegt er að höfundar sé ekki getið, eða þá ef hann er ekki þekktur. (Myndin er póstkort) Þess má geta að myndin á bls. 87 er frá árinu 1919, því hús Framtíðarinnar (seinna Jón G.) er í byggingu. Hún er tekin frá Eyjólti en samt eignuð öðrum ! Mynd bls. 81. Þar eru mennirnir á myndinni báðir rangfeðraðir, Vigfús sagður Ólafsson og tekinn fyrir Vigfús Ólafsson bónda í Fjarðarseli því einnig em ártöl hans þar. Vigfús á myndinni var Jónsson og reyndar faðir Ólafs sem lengi var gæslumaður Fjarðarselsvirkjunar en ekki er getið í greininni. Vigfús þessi var fóstursonur Guðnýjar Tómasdóttur í Fjarðarseli og hét að ég ætla eftir fyrri manni Guðnýjar eins og sonur hennar, enda náfrændi hans. Hinn maðurinn, sem sagður er Vigfússon, er Einar Sigurjónsson, en hann var fóstursonur bændanna í Firði, Halldóru Björnsdóttur og Jóns Jónssonar. Svo má skilja af myndatextanum að Einar hafi verið sonur Vigfúsar Ólafssonar, en það er af og frá. Vigfús átti vissulega son. Hann var Björgvin Vigfússon bóndi á Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð. Einar er faðir Jóhanns Grétars fyrrum símstöðvarstjóra á Seyðisfirði og var reyndar nærri því tengdasonur Vigfúsar í Fjarðaseli, því kona hans og móðir Grétars, Gróa Guðjónsdóttir (Dolla), var dóttir Elísabetar Ólafsdóttur ekkju Vigfúsar og seinni manns hennar. Nautgripurinn á myndinni virðist kostagripur og þeir stoltir af honum. Af þessu hlýtur að vera einhver saga. Ljósmynd birtist af Vigfúsi í Fjarðarseli í riti höfúndar, Horft af Bæjarbrún. Vigfúsar þessir tveir vom reyndar báðir kallaðir „Fúsi í Fjarðarseli“. I greininni segir: „á jörðinni Fjarðarseli var stundaður hefðbundinn búskapitr öldum saman þar til 1913 þegar tœknibylting 20. aldar tók skyndilega við“. Af þessu má annað hvort skilja að þá hafi búskapurinn skyndileg tæknivæðst ellegar að búseta þar hafi lagst af við það að Fjarðarselsvirkjun tók við með annars konar búskap. Búseta lagðist af í Fjarðarseli fjórum árum fyrr, 1909, þegar síðasti ábúandinn, Einar Sölvason dó. Tendist það á engan hátt virkjunaráformum. Engin tæknibylting varð í búskap í Fjarðarseli 1913 þó virkjunin hafi þá tekið til starfa. Jörðin var nytjuð af bæjar- búum eftir að hún fór í eyði og er svo enn. Einar sá var reyndar tengdafaðir Vigfúsar Jónssonar og sjálfur í eitt brum tengdasonur Guðnýjar Tómasdóttur. Að lokum smáatriði sem litlu má varða: Sagt er að Guðný Tómasdóttir hafí gerst kaupakona á Torfastöðum þegar hún fór úr föðurhúsum 1855. Kaupakona gerðist hún vissulega ekki. Hún er reyndar skráð þar sem vinnukona fyrsta árið, en hefur vafalaust verið bústýra enda giftust þau, hún og ekkjubóndinn þar, það sama ár. Slíkt var algengt. Guðný kom til baka með sitt fólk í Fjarðarsel 1879 en ekki 1880. (ágengni skal vera ágangur). 93
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.