Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 99

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Page 99
Einar G.. Pétursson Jökuldæla Fyrir mörgum árum bentu vísir menn mér á áður ókunnar heimildir um Jökuldœla sögu. Ég birti þær undir heitinu „Tvær heimildir um Jökuldæla sögu“ í afmælisriti til Þorleifs Haukssonar, Sólhvarfasumbl saman borið handa Þorleifi Haukssyni fimmtugum 21. desem- ber 1991. Markmið þeirrar greinar var að birta textana en ekki að fjalla um samband þeirra við aðrar heimildir um söguna eða ræða aldur hennar, efnisatriði og sagnir sem e. t. v. væru runnar frá henni eða gætu verið heimildir hennar. Þar sem afmælisritið er lítt útbreitt var talin þörf á að gefa þessa texta út að nýju. Hér verður bætt við: í fyrstu verður hér fjallað af nokkurri nákvæmni um kunnar heimildir um Jökuldœlu og reynt að rekja þær í tímaröð, í öðru lagi verður reynt að leggja mat á heimildarmennina, í þriðja lagi eru einstakar gerðir sögunnar bornar saman og loks verða textamir úr Sólhvarfasumbli endurprentaðir ásamt broti úr Jökuldcelu, sem séra Sigurður Gunnarsson skráði og hefur verið talin fyllsta heimildin um söguna. Heimildir um Jökuldælu 1) Frásögur um fornaldarleifar. Elsta heimild sem mér er kunn um Jökuldœlu er í Frásögum um fornaldarleifar frá 15. október 1821 ffá Sigfúsi Finnssyni, sem prestur var í Hofteigi á ámnum 1815 til æviloka 1846: Án þess af fornaldarsögunum að geta það sama bevísað — þar Jökuldæla er hér ekki í sýslu þessari — er mál manna: að Skjöldólfur og Hákon, gildir bændur á Skjöldólfstöðum og Hákonarstöðum hér í sókn, hafi orðið ósáttir útaf silungsveiði í sokölluðum Hólmavötnum er liggja circa 5 mílur vegar frá nefndum bæjum, börðust í hólma eins vatnsins hvar Hákon skyldi hafa fellt Skjöldólf, sýnist enn nú í dag haugurinn standandi í nefndum hólma.1 Af þessu er svo að sjá sem Jökuldæla hafi ekki verið fínnanleg innan sveitar og séra Sigfús fari hér eftir munnmælum. Sókna- lýsing Hofteigssóknar frá 1841 er einnig eftir Sigfús Finnsson í Hofteigi. Þar sagði hann í upptalningu á stöðuvötnum „í Skjöldólfstaðaheiði: Skip- og Hólmavötn (þar sem Skjöldólfur og Hákon stríddu um veiðina, confer Jökuldælu)“.2 Ekki kemur fram af orðunum, hvort Sigfús fer hér eftir sögunni sjálfri eða munnmælum, en það síðara er líklegra, þar sem hann hefði trúlega getið þess ef hann hefði verið búinn að fá Jökuldælu í hendur. I Frásögum um fornaldarleifar frá 20. sept. 1821 sagði séra Vigfús Ormsson á Valþjófsstað í Fljótsdal: 97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.