Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2006, Blaðsíða 105
Jökuldæla
Hellir, hylur í Jökulsá skammt frá Skuggahlíð. Ljósmyndari og eigandi myndar: Páll Pálsson.
hasts og Bárðar birtu. Vitað er að Hrana
sögu hrings skrifaði Gísli upp og sendi til
Kaupmannahafnar, því að sú saga er með
hans hendi í Add. 62, 4to. Það handrit var
áður í Konunglega bókasafninu í Kaup-
mannahöfn en er nú í Arnastofnun í
Reykjavík. Ungu sögurnar, sem Gísli
nefndi eru kunnar úr öðrum heimildum,
nema annarrar gerðar af Þorsteins sögu
Síðuhallssonar finn ég ekki getið í
fræðiritum. Starkaðs saga var prentuð í
Winnipeg 1911, en Sigurðar saga gangandi
hefur aldrei verið gefin út. Allar hinar
sögurnar, sem Gísli Brynjólfsson eldri
nefndi, eru prentaðar í útgáfu Guðna
Jónssonar af Islendinga sögum, en sumar
höfðu verið gefnar út sérstaklega áður.
Þótt Gísli Brynjólfsson eldri væri á
Austurlandi og leitaði stíft eftir ungum
sögum, nefndi hann ekki Jökuldœlu. Hefði
Gísli þekkt hana hefði hann getið hennar, en
þetta bendir til að hann hafí alls ekki haft
neinar spumir af henni. Það sem hér var
tekið úr bréfum Gísla eldra er vísbending
urn áhuga hans og annarra á ungum
Islendingasögum, en einmitt um svipað
leyti, þó örlitlu áður, eru elstu kunnu
heimildir um Jökuldælu.
Þessi texti verður í umijöllun hér á eftir
nefndur Jökuldœla Snorra, en eins hefði
mátt kenna hann við Sigurð Benediktsson,
en þá hefði verið mögulegt að Sigurðunum
hefði verið ruglað saman.
6) Austan úr Vopnafirði. Einhvern tímann
um líkt leyti og séra Sigurður Gunnarsson á
Hallormsstað og Snorri Jónsson í Papey
skrifuðu ágrip af Jökuldœlu, var í
Vopnafirði skrifað efni úr henni.12 Þetta eru
tvær sögur nefnist sú fyrri: „Saga Hákonar
fullknerris“. Þar er vanaleg sögn af Hákoni
og Skjöldólfi eins og í Jökuldœlu séra
Sigurðar: Skjöldólfur byggir í landnámi
Hákonar, þeir verða ósáttir út af því, en ekki
neinni veiði, og berjast í hólmanum í
Stórhólmavatni, þar fellur Skjöldólfur og
sér haug hans enn í dag. I sögunni er á sama
hátt og í frásögn séra Sigurðar sagt frá
103