Saga - 2014, Page 14
stjórnmálamaður sem hafði mest áhrif á hana hét Dýrleif Árna -
dóttir.9 Aðalheiður kallar hana lærimeistara sinn, eða mentor; hjá
henni lærði hún bæði um kvenréttindi og marxisma:
Í stofunni hjá Dýrleifu heyrði ég í fyrsta sinn talað af raunverulegri
þekkingu um mannréttindamál kvenna, því fá umræðuefni voru henni
nærtækari en nauðsyn þess að konur stigju út úr skugga karlmanna og
tækju sér réttinn til lífsins. Hún dáði mikið rússnesku byltingarkonuna
og rithöfundinn Alexöndru kollontaju, endursagði mér skoðanir
hennar og vitnaði oft í rit kollontaju um rétt kvenna til lífsins og líkama
síns. ef undan er skilið það sem katrín Thoroddsen lét frá sér fara um
getnaðarvarnir og fjölskylduáætlanir, sem var angi af sömu alþjóðlegu
hreyfingunni, þá heyrði ég í fyrsta sinn frá Dýrleifu bergmál af kynlífs-
byltingu áranna á milli stríða, sjónarmið sem lognuðust smám saman
út af þegar vígbúnaðarvélin fór aftur af stað og heyrðust ekki næstu
þrjátíu ár. Samt talaði vinkona mín máli hinna frjálsu ásta á afskaplega
hæverskan hátt og benti mér á rit um þau efni.10
Dýrleif var ein þeirra fjölmörgu kvenna sem tóku virkan þátt í
íslenskum stjórnmálum á árunum milli stríða og af henni er svo
aftur merkileg saga sem teygir sig inn í kommúnistaflokkinn og
þaðan til Sovétríkjanna, síðan inn í Sósíalistaflokkinn og að útgáfu
blaðsins Melkorku og síðast en ekki síst inn í kvenréttindafélag
Íslands, sem virðist hafa haft pláss fyrir konur eins og Dýrleifu þó
að sannarlega væru margar þeirra kvenna sem þar störfuðu langt
frá því að geta talist byltingarsinnaðar.
Saga Aðalheiðar og Dýrleifar er dæmi um efnivið í stjórnmála-
sögu sem enn hefur ekki verið unnið úr og í því sem hér fer á eftir
verður hugað að því hvers vegna svo er og hvernig megi skrifa sögu
slíkra kvenna inn í íslenska stjórnmálasögu. viðfangsefnið er því
tvíþætt. Í fyrsta lagi verður spurt hvað hafi ráðið efnistökum við
ritun íslenskrar stjórnmálasögu. Í því samhengi verður litið til sagna-
ritunar um íslensk flokkastjórnmál sem og sagnaritunar um kyn og
kyngervi. Í öðru lagi verður fjallað um mögulegar leiðir til að skrifa
sögu sem gengur út frá því að stjórnmálaafskipti einstaklinga eins og
Aðalheiðar og Dýrleifar séu hluti af stjórnmálasögunni. Þar verður
sjónum einkum beint að stjórnmálaumhverfi íslenskra vinstrikvenna,
þótt sú nálgun sem hér verður fjallað um hafi víðari skírskotun.
ragnheiður kristjánsdóttir12
9 Þorvaldur kristinsson, Veistu, ef þú vin átt. Endurminningar Aðalheiðar Hólm
Spans (Reykjavík: Forlagið 1994), bls. 7–93.
10 Þorvaldur kristinsson, Veistu, bls. 83.
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 12