Saga


Saga - 2014, Page 16

Saga - 2014, Page 16
undantekningum hafa hins vegar orðið útundan saga stjórnmála- hugmynda og annarra menningarstrauma, innra starf stjórnmála- hreyfinga, þ.e.a.s. viðfangsefni sem fengu sífellt stærri sess í alþjóð - legri sagnaritun um stjórnmál eftir því sem leið á tuttugustu öld.13 Fyrsta sagnfræðiverkið um íslensk nútímastjórnmál var fimm binda ævisaga Páls eggerts Ólasonar um Jón Sigurðsson, gefin út á árunum kringum 1930.14 Þar leggur Páll eggert ævistarf Jóns að jöfnu við sögu landsins, eins og ráða má af yfirskriftinni á styttri útgáfu ritsins sem kom út rúmum áratug síðar: Jón Sigurðsson. Foringinn mikli. Líf og landssaga.15 Fyrstu yfirlitsritin um Íslandssögu nítjándu og tuttugustu aldar komu út um miðja tuttugustu öld og voru annars vegar bækur í ritröðinni Saga Alþingis og svo bækur í ritröðinni Saga Íslendinga. Í fyrrnefndu ritröðinni komu út tvö rit eftir lögfræðingana einar Arnórsson og Björn Þórðarson undir titl- inum Alþingi og frelsisbaráttan og þar voru söguhetjurnar þeir stjórn- mála- og blaðamenn sem höfðu komið við sögu í umræðum um framtíðarsamband Íslands og Danmerkur. Sams konar sjónarhorn einkennir hina ritröðina þótt þar sé reyndar ekki eins mikið fjallað um stjórnmál. Magnús Jónsson guðfræðingur skrifaði tvö bindi um tímabilið 1871–1903 og lagði áherslu á mennta- og menningarsögu. Útgefandinn, Jónas Jónsson, skrifaði svo sjálfur um tímabilið 1830– 1874. Undirtitill hans var Fjölnismenn og Jón Sigurðsson og gaf skýrt til kynna hvers konar sögu Jónas vildi skrifa. Í formála tekur hann svo af allan vafa um að honum finnist brýnt að halda í þá fornu sagnaritunarhefð að skýra sögulega viðburði og andlegt líf með því að lýsa yfirburðum forystumanna þjóðanna á hverjum stað og tíma. Jónas hafnaði óheppilegum og „framandi“ kenningum sem gerðu ráð fyrir að saga þjóðanna líktist „framrás skriðjökla niður fjalla- gljúfur“. Þar var Jónas að vísa til efnishyggju karls Marx sem gerði ragnheiður kristjánsdóttir14 13 Um þessa alþjóðlegu þróun — og sérstaklega hvernig áherslan hefur færst yfir á að greina stjórnmálaorðræðu og líta á stjórnmálin sem menningarlega mótað fyrirbæri (e. the linguistic and cultural turns) — sjá t.d George Steinmetz, „Introduction. Culture and the State“. Ritstj. George Steinmetz, State/Culture. State Formation after the Cultural Turn (Ithaca: Cornell University Press 1999), bls. 1–49; Frank Bösch og Norman Domeier, „Cultural History of Politics. Concepts and Debates“, European Review of History 15:6 (2008), bls. 577–586. 14 Páll eggert Ólason, Jón Sigurðsson I–v (Reykjavík: Hið íslenska þjóðvinafélag 1929–1933). 15 Páll eggert Ólason, Jón Sigurðsson, foringinn mikli. Líf og landssaga (Reykjavík: Ísafold 1945–1946). Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 14
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.