Saga - 2014, Qupperneq 38
valdhafar geta að vísu líka séð sér hag í því að birta skjöl frekar en
að halda þeim leyndum.11 Árin milli stríða geisaði nokkurs konar
„skjalastríð“ milli stærstu ríkja evrópu. Þýsk stjórnvöld hleyptu af
fyrsta skotinu með útgáfu skeyta og skjala í 39 bindum sem áttu að
sanna að Þjóðverjar bæru ekki ábyrgð á upphafi fyrri heimsstyrjaldar.
eftir það varð ekki aftur snúið. Ráðamenn í London svöruðu með
birtingu sinna gagna og síðar fylgdu stjórnvöld í París, vín, Róm,
Moskvu og Washington.12 Að sama skapi kappkostuðu breskir og
bandarískir valdhafar að ná skjölum í Þýskalandi í sínar hendur undir
lok seinni heimsstyrjaldar. Síðan nýttu þeir til dæmis þýska eintakið
af leyniviðauka griðasáttmála Molotovs og Ribbentrops til að koma
höggi á stjórnvöld í Moskvu þegar kalda stríðið var komið í algleym-
ing.13 Jafnframt þekktist að útvaldir einstaklingar fengju sérstakan
aðgang að gögnum síns ríkis. Þannig gat Winston S. Churchill skrifað
stríðsárasögu sína.14 Nýlegra dæmi frá Bretlandi væri opinber saga
Falklandseyjastríðsins sem útvalinn höfundur skráði að mestu eftir
opinberum gögnum sem voru öðrum áfram lokuð.15
Þetta eru undantekningar. Leynd var regla. Í nýlegri grein um
deilur innan Atlantshafsbandalagsins vegna kjarnavopna og af -
vopn unarviðræðna undir lok áttunda áratugar 20. aldar var til
dæmis vakin athygli á því að mikilvægar heimildir í Bandaríkjunum
væru enn á huldu.16 Þar réð nánd í tíma þó mestu. Á tímum kalda
stríðsins einkenndust rannsóknir á sögu þess einmitt af því að ár frá
guðni th. jóhannesson36
11 Christopher Moran, Classified: Secrecy and the State in Modern Britain (Cam -
bridge: Cambridge University Press 2013), bls. 311−329.
12 Harry elmer Barnes, A History of Historical Writing, bls. 280−290; James Joll
(Gordon Martel endurskoðaði), The Origins of the First World War (London:
Pearson education, 3. útg. 2007), bls. 4.
13 Astrid M. eckert (Dona Geyer þýddi úr þýsku), The Struggle for the Files: The
Western Allies and the Return of the German Archives after the Second World War.
Publications of the German Historical Institute (Cambridge: Cambridge
University Press 2014), bls. 92−94. eystra töluðu valdhafar um „falsara sög-
unnar“ þótt þeir vissu betur. Sjá t.d. Alfred erich Senn, Lithuania 1940: Re -
volution from Above (Amsterdam: Rodopi 2007), bls. 7.
14 David Reynolds, In Command of History. Churchill Fighting and Writing the
Second World War (London: Allen Lane 2004). Sjá einnig Moran, Classified:
Secrecy and the State in Modern Britain, bls. 53−94.
15 Lawrence Freedman, The Official History of the Falklands Campaign I–II. Govern -
ment official History Series (London: Routledge 2007).
16 Joachim Scholtyseck, „The United States, europe, and the Nato Dual-Track
Decision“, The Strained Alliance. U.S.-European Relations from Nixon to Carter.
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 36