Saga - 2014, Page 71
Maurice Bloch tekur fram að vitneskja barnanna sé ekki sama eðlis
og áfallareynsla þeirra sem lifðu atburðina 1947. en hún er ekki
fjarri henni og eldri kynslóðin sér alltaf um að leiðrétta börnin ef
þau eru komin á villigötur í frásögn sinni — og hér tekur Bloch
undir með Halbwachs um kynslóðaminnið.
Maurice Bloch og Alison Landsberg eru ekki ein fræðimanna um
að eyða skilunum milli einstaklingsminningar og minningar sem
miðlað er milli kynslóða eða á annan hátt með tilfinningatengslum.
Julia Chaitin félagsráðgjafi og Shoshana Steinberg sálfæðingur hafa
kannað minningar afkomenda fólks sem lifði helför gyðinga og
brottrekstur Palestínumanna af heimasvæðum sínum 1948 og
komist að svipaðri niðurstöðu og Bloch: Afkomendurnir fengu
minn ingarnar „beint í æð“ og gerðu að sínum. Þó er munur á ein-
kennum þeirra, t.d. eru afkomendaminningarnar almennari og ekki
eins nákvæmar og fjölbreyttar og hinar. Hins vegar eru báðar gerðir
persónulegar og tilfinningahlaðnar og kvikna og loga sem heitast
þegar umhverfi og tilefni ýta undir, t.d. á vettvangi sársaukafullra
atburða. Chaitin og Steinberg hafa gefið þessum minningum heitið
„mínar-þeirra“ (e. my-their).23
minning sem félagslegt fyrirbæri 69
það er vegna þess að hann var
ekki fæddur þá eða af því að
hann var ekki viðstaddur at -
burðinn, geymist sem nærvera
sem er meira en einskær minn-
ing sprottin af frásögn af at -
burð inum. Börnin, sem sýndu
mér staðinn þar sem þorpið
stóð, og reyndar ég sjálfur líka,
við sáum fortíðina fyrir okkur
en sú fortíð var samtengd um -
búða lausri tilfinningareynslu og
raun reynslu sem líktist þeirri
sem við hefð um haft ef við
hefð um lifað atburðinn.
parce que vous n’avez pas assisté à
l’événement, conserve en vous une
présence qui va au-delà du simple
souvenir des récits qu’on a pu vous
en faire. Les enfants qui me faisaient
visiter le site du village, et moi aussi
à dire vrai, imaginions le passé, mais
ce passé était lié à une expérience
affective et empirique immédiate
qui ressemblait à celle que nous
aurions éprouvée si nous avions
vécu l’événement.22
22 Maurice Bloch, „Mémoire autobiographique et mémoire histoire du passé élo-
igné“, Enquête 2 (1995). http://enquete.revues.org/document309.html.
23 Julia Chaitin og Shoshana Steinberg, „‘I can Almost Remember it Now’:
Between Personal and Collective Memories of Massive Social Trauma“, Journal
of Adult Development 21 (2014), bls. 30–42.
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 69