Saga


Saga - 2014, Side 153

Saga - 2014, Side 153
Myndir sem flokka má sem viðburðamyndir eða fréttamyndir eru næsta fáar í bókinni og má ætla að það endurspegli varðveitt myndasafn Sigfúsar. Auk tveggja mynda tengdra þjóðhátíðinni má nefna eina frá afhjúpun styttu Bertels Thorvaldsen 1875 og aðra frá jarðarför og líkfylgd Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar einarsdóttur 1880. eitt af því sem kemur manni á óvart við myndasafn Sigfúsar (eða valið úr því) er hversu mannlífsmyndir úr hvers- dagslífinu eru fáar (næstum óþekktar). Dæmi um myndefni á mörkum fréttnæmra viðburða og hversdagslífs eru þekkt mynd af vesturfaraskipinu Camoens í hafís á Norðurfirði sumarið 1883 (bls. 125), myndir af vesturför- um um borð í sama skipi 1885 og 1886 (bls. 147 og 168) og mynd sem sýnir útskipun sauðfjár frá Reykjavík, tekin um 1885 (bls. 146). Sjaldséð hvers- dagsraunsæi (sem þó var alls ekki ætlan myndasmiðsins) birtist í mynd af líkfylgd á leið frá Dómkirkjunni upp í Hólavallagarð. Inga Lára telur líklegt að hún hafi verið tekin eftir pöntun, þótt ekki hafi verið um fyrirmann að ræða, og líkfylgdin hafi verið fremur fámenn. Þessi mynd er ágætt dæmi um hvernig skýringartextarnir sem birtir eru aftast í bókinni varpa oft áhuga- verðu ljósi á þann heim sem myndirnar birta, hvort sem um er að ræða ein- stakar staðreyndaupplýsingar eða almenn atriði. Það er auðvitað álitamál hvort slíkir textar eigi heima nær myndunum, en hugmyndin er sjálfsagt sú að láta myndirnar njóta sín ótruflaðar en gefa lesanda engu að síður auð - veldan aðgang að helstu upplýsingum. Hversdagsmyndir eru oftast af götum í þéttbýli eða hafnarmannvirkj- um/skipum. Þær eru ekki allar mannlausar þótt fólk sé sjaldnast í aðalhlut- verki. Hornaflokkur spilar í Austurstræti, um 1855 (bls. 156) er mannmörg mynd af götulífi sem sýnir vel vandkvæðin við slíkar tökur. Lítill hópur fyrir miðri mynd er sýnilega meðvitaður um tökuna og er jafnframt fókus- punktur hennar, en aðrir eru flestir á mikilli hreyfingu og eftir því óskýrir. Annars eru þær myndir sem sýna fólk flestar uppstilltar, m.a. þrjár myndir teknar á eyrarbakka 1886 (bls. 160, 162 og 163). Bók Ingu Láru Baldvinsdóttur og Ívars Brynjólfssonar um mynda - smiðinn Sigfús eymundsson ber nokkur merki þess að vera sérlega íburðar- mikil og glæsileg sýningaskrá, á tæplega 200 blaðsíðum í stóru broti, prentuð á þykkan pappír og bundin í hörð spjöld. Myndahluti bókarinnar er fallega fram settur og vegleg umgjörð fyrir þann mikla sjóð sem mynda- safn Sigfúsar eymundssonar er. eins og fram hefur komið orkar uppsetning megintextans tvímælis, að mínu mati, einkum fyrir þá sök að hann er rofinn með innskotsgreinum. Ég freistast til að álykta að þetta sé tilraun til að koma sýningartextum til skila án þess að fella þá í samfellt mál. Að lokum verð ég að minnast á bókarkápuna sem er að mínu mati miður vel heppnuð, einkum hvað varðar litaval og leturgerð, og sjálfsagt að nefna það hér þar sem bókin á að höfða til hins sjónræna. Það er auðvitað allaf ósanngjarnt að kalla eftir annars konar verki en gefið er út. Það sækir engu að síður að manni sú tilfinning að enn meiri ritdómar 151 Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 151
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.