Saga


Saga - 2014, Page 156

Saga - 2014, Page 156
saga hans sjálfs. Slíku er vart til að dreifa þegar skrifað er fyrir lesendur í hinum stóra heimi, enda er viðfangsefnið smáþjóð sem hefur lítil áhrif haft á gang veraldarsögunnar. Það kemur líka fram í formála bókarinnar, eftir ritstjóra „The Greenwood Histories of the Modern Nations“, Frank W. Thackeray og John e. Findling, að upphaflegur tilgangur hennar hafi verið að birta sögur þeirra þjóða „whose political, economic, and sociocultural affairs marked them as among the most important of our time“. Ísland lenti eðlilega ekki í þeim hópi, en þegar gefnir höfðu verið út um 40 titlar í bóka- flokknum var ákveðið að víkka sjónarsviðið og segja sögur þjóða — svo vitnað sé í formála ritstjóranna — „whose histories have had significant effects on their regions, if not the entire world“. Áhrif Bandaríkjanna ná nú til heimsins alls, halda þeir áfram, og því telja Bandaríkjamenn sig hafa „special relationship with almost every other nation“. Samt sem áður þekkja venjulegir Bandaríkjamenn lítið til sögu þeirra þjóða sem þeir eiga samskipti við, fullyrða Thackeray og Findling, og úr þessu er höfundum rita í bókar- flokknum ætlað að bæta (viii). Forsenda bókanna er því ekki endilega sú að saga þjóðanna sem þar er sögð sé áhugaverð í sjálfri sér heldur að hún teng- ist væntanlegum lesendum — þ.e. bandarískum nemendum og áhugasöm- um almenningi („students and interested laypeople“, bls. vi). Útilokað er að alhæfa nokkuð um slíka lesendur eða hvað það er sem fangar athygli þeirra. en ef við setjum okkur í spor þeirra sem þekkja lítið til Íslands eða teljast ekki fyrirfram í hópi „Íslandsvina“ má ímynda sér að ýmislegt sem sagt er frá í bókinni geti valdið hugsanlegum lesendum nokkr- um heilabrotum. Að hluta til stafar þetta af því að frásögnin er, eðli málsins samkvæmt, afar knöpp og því er oft farið það hratt yfir sögu að hætt er við að lesandinn missi þráðinn. Á rúmlega hálfri blaðsíðu er t.a.m. sagt frá ein- okunarverslun á 17. öld, tilraunum Danakonungs til að bægja erlendum fiskiskipum frá Íslandsmiðum, byggingu virkis í vestmannaeyjum, strand- höggi enskra sjóræningja árið 1614, strandi baskneskra hvalveiðimanna árið 1615, „Tyrkjaráni“ og giftingu Guðríðar Símonardóttur og Hallgríms Péturssonar (bls. 47). ekki get ég sett neitt sérstaklega út á einstök atriði þess sem greint er frá á þessari síðu, en hætt er við að þessar upplýsingar reynist harðar undir tönn fyrir óundirbúinn bandarískan lesanda. einnig má reikna með að sumt af því sem Guðni tínir til þyki tæplega í sögur færandi. Hvarf tveggja ungra manna árið 1974 var t.a.m. stórfrétt á Íslandi (bls. 124) og veldur enn deilum eins og kunnugt er, en það hefði sjálfsagt ekki ratað inn í stutt yfirlitsrit um sögu margra þjóða í heiminum annarra en Íslendinga. ekki bætir úr skák að útgefendur bókarinnar gera lítið til að auðvelda les- endum að nota bókina. Í henni allri er þannig aðeins ein skýringarmynd, þ.e. yfirlitskort af Íslandi með örfáum staðarnöfnum. Fyrir nútímalesendur, sem vanir eru myndrænni framsetningu, virkar þetta frekar fráhrindandi. Það vekur heldur ekki traust á bókinni að sá sem skrifaði textann aftan á henni virðist ekki hafa lesið hana vel, því að honum tekst að koma tveimur ritdómar154 Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 154
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.