Strandapósturinn - 01.06.2009, Page 56
54
Myndin til hægri sýnir vinnusamning H.f. Djúpavíkur við einn
af starfsmönnum sínum, Sörla Hjálmarsson á Gjögri.
Vinnusamning af þessu tagi þurfti að gera við hvern starfsmann
enda hafði verkalýðsfélag ekki verið stofnað í hreppnum þegar
þetta var. Verkalýðsfélag Árneshrepps var stofnað 2. nóvember
1935. Stofnendur voru 27, þar af ein kona. Félagið gekk í Alþýðu-
sambandið 10. febrúar 1936. Fyrsti formaður var Sigurður Pét-
ursson en Sörli Hjálmarsson varð síðar formaður í allmörg ár.
(Þ.J. tók saman.)
Vinnusamningur
Fyrsta síld
Óskars Halldórssonar
„Fyrsta síldin, sem ég eignaðist á ævinni, var á Gjögri 1916.
Hrómundur Jósefsson, er var skipstjóri á gamla Þór, gaf mér
nokkrar tunnur af nýrri síld á Gjögri og lét hana í skutinn á
tveggja manna fari, er ég átti. Saltaði ég þessa síld í trétunnur,
er fundust á Ströndum. Fór ég síðan með síldina saltaða frá
Reykjarfirði til Ingólfsfjarðar [Valleyri] og bauð hana norskum
síldarkaupmanni er Hans Langva hét. Ekki vildi hann kaupa
síldina nema síldarmatsmaður hans, Jónas Sveinsson, núverandi
læknir, skoðaði hana fyrst. Jónasi líkaði síldin vel og var síðan
„slegið upp balli“ um kvöldið hjá Langva. Ísfirskar blómarósir
voru þar í síld um sumarið.“
Heimild
Ævisaga Ó. H. bls. 75, eftir Ásgeir Jakobsson 1994.
Skráð hefir: Guðlaugur Gíslason frá Steinstúni.