Strandapósturinn - 01.06.2009, Qupperneq 136
134
ólíklegustu málefni. Eðvarð,
Ebbi, var í Svifflugfélaginu hjá
Agnari Kofoed. Frá Ebba fékk
ég bréf, þar sem ég var beð-
inn um upplýsingar um svif-
flug í Sovétríkjunum, svifflug-
félög, fjölda þeirra og fjölda
félagsmanna, ríkisstyrki, afrek
flugmanna, myndir og ábend-
ingu um að halda sem beztu
sambandi við Agnar. Þjóðverjar
stæðu mjög framarlega í þessari
íþrótt, en sovétæskan kannski
enn framar.[16] Dregizt hafði hjá
Eðvarði að skrifa mér, því hann
hafði ekki ábyggilega addressu,
en nú gafst tækifæri í febrúar
1937 að koma bréfi með Ásgeiri
Blöndal Magnússyni, sem var að koma austur á skóla.
Ásgeir Blöndal kom snemma sumars 1937, hafði setið lengi
fastur í Kaupmannahöfn, var þar enn 18. maí, skv. bréfi til mín.[17]
Ásgeir þekkti ég fyrir. Hann hafði líka skrifað mér, beðið mig að
útvega sér bók, sem Pavlov-Institutið hafði gefið út á þýzku, lífeðl-
isfræði og helzt marxistíska krítik á ritið með. Nú man ég ekki
lengur, hvort mér tókst að útvega honum bókina, en ég hef bréf-
ið hans frá Siglufirði.[18] Nú var hann kominn sjálfur til Moskvu
og hafði allt á hornum sér, var sífellt að krítisera ástandið. Vera
Hertzsch sagði honum að tala varlegar, þegar við Ásgeir fórum
í heimsókn til hennar, það væri hlustað. Við töluðum þýzku við
hana, hún var þýzk, ekki gyðingur, en af þekktri kommúnista-
fjölskyldu, afi hennar frekar en faðir hafði verið samverkamaður
Friedrichs Engels. Hún hét Elvira, en var kölluð Vera, það var
ekki dulnefni, vissi ekki til þess, að hún hefði dulnefni. Veru sá
ég fyrst, þegar þau Benjamín komu saman til mín. Vera vann á
DZZ, Deutsche Zentral-Zeitung, málgagni fyrir þýzkumælandi íbúa
Sovétríkjanna, þ. á m. Volguþjóðverja. Ég kom aldrei á ritstjórn-
arskrifstofur DZZ, en ég sá blaðið. Vera kenndi einnig í Moskvu.
Hún var fráskilin. Maður hennar var talinn trotskíisti, hann var
Vera Hertzsch.