Strandapósturinn - 01.06.2009, Page 119
117
25, 8 tonna báti frá Hólmavík sem Hjalti Steingrímsson átti. Við
vorum á línu, beittum í landi með smokkfiski og síld, já, hring-
uðum línuna niður í bala. Eftir að lagt hafði verið út, biðum við
í 4 tíma, svo var farið að hinum endanum og byrjað að taka upp
það, sem hafði verið lagt út fyrst, nær allt þorskur. Það var stímað
út á miðin, þar til hálfvatnað var í fjöll. Þegar komið var í land,
var ég yfirleitt settur í að greiða línuna, hún flæktist, en hinir
gerðu að. Við komum í land nokkru eftir hádegi, og aðgerð var
ekki lokið fyrr en seint var liðið á daginn, og þá var eftir að beita
fyrir næsta dag. Farið var upp fyrir allar aldir á morgnana, svo
ekki var mikið sofið. En ekki gaf alltaf á sjó, og þá var hægt að
sofa. Aflinn var saltaður, fengum oft í róðri 4–6 tonn, svo tíma
tók að gera að þessu, hausa, kviðskera og fletja. Eitt sumar var
ég hér fyrir sunnan, vann í Slippnum, þar var verið að byggja.
Verktakinn var Ólafur Theodórsson.“
Stúdentar frá MR 1934
„Hér er myndin af nýstúdentunum frá MR vorið 1934 í
Hressingarskálagarðinum við Austurstræti. Hópurinn lét taka
myndir af sér þar, a. m. k. tvær eru til af öllum hópnum og
Eiríkur, Gunnar, Ingi, Páll, Lárus og Ólafur, stúdentar úr MR vorið 1934.