Strandapósturinn - 01.06.2009, Blaðsíða 141
139
með pöntunarfélag verka-
manna suður í Skerjafirði,
það varð að Kaupfélagi verka-
manna og síðan KRON. Auk
þess var hann með heild-
sölu sjálfur. Jens dró sig í
hlé frá pólitíkinni, gerðist
framkvæmdastjóri KRON og
var þá vel launaður. Það fór
að draga saman með hon-
um og SÍS. KRON stofnaði
fyrstu „sjálfsöluverzlunina“,
á horni Garðastrætis og
Vesturgötu.[23] Jens hafði tek-
ið pólitíkina alvarlega, Dassa
stríddi honum með því, ...
hann hefði verið alveg húm-
orslaus. Þannig held ég, að
Hallgrímur hafi líka verið,
en ég veit ekki til þess, að
þeir Jens hafi þekkzt sér-
staklega.
Hjalti Árnason var „intríker“, egndi fólki saman, hafði gaman
af því og illindum og deilum. Mér fannst Hjalti hrjúfur, ... ekki
fínn karakter. Hallgrímur Jakobsson var kallaður Bími, var með
söngkórinn. Við Hallgrímur Hallgrímsson umgengumst ekkert,
eftir að hann kom frá Spáni, – og ég frá Moskvu. Allt var breytt,
Kommúnistaflokkurinn hafði verið lagður niður, stríðið komið,
grundvöllurinn undir gömlu slagorðunum farinn, áhugi fólks-
ins var á „ástandinu“, nýjum varningi frá setuliðinu, cigarettum,
Lucky Strike, súkkulaði, tyggigúmmíi, Wrigley, silkisokkum ...
jazz-plötum, Glenn Miller, Coca Cola ... Willys-jeppum, öllu, sem
hægt var að fá hjá setuliðinu. Dreifibréfsmál Hallgríms þekkti ég
ekkert.“
Prentmyndasmiður í Reykjavík
„Jens útvegaði mér vinnu í auglýsingateikningu hjá KRON á
Skólavörðustígnum. Jörundur Pálsson, arkitekt, var þar. Hann
EM og Jens Figved í Kaupmannahöfn
haustið 1937.