Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 8

Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 8
Það hefur verið sagt að við séum þrætugjarn- ari en aðrar þjóðir og hér sé farið í landa- merkjamál út af hverri þúfu. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar 26% Hæsti- réttur samþykkir að meðal- tali um fjórðung málskots- beiðna en hlutfallið er 10 til 15 prósent á hinum Norður- löndunum. 50 40 30 20 10 2018 2019 2020 2021 Fjöldi dóma eftir breytingu n Áfrýjuð einkamál n Kærð einkamál n Áfrýjuð sakamál n Kærð sakamál 12 1 27 27 27 4 2 11 5 18 7 14 3 3 120 100 80 60 40 20 2018 2019 2020 2021 Afgreiðsla málskotsbeiðna eftir árum n Samþykkt n Hafnað n Afturkallað n Óafgreitt 16 50 45 32 39 16 97 1 1 4 117 105 60 50 40 30 20 10 2018 2019 2020 2021 Fjöldi dóma eftir breytingu Hæstiréttur er að ná jafn- vægi eftir miklar breytingar á síðustu árum. Hlutverkið er breytt, álagið öðruvísi og dómarahópurinn endurnýj- aður. Segja má að síðasta ár hafi verið það fyrsta frá breyttri dómstóla- skipan sem tók gildi 2018, sem gekk áfallalaust fyrir sig í Hæstarétti. Fyrsta starfsárið fór að mestu í að vinna upp málahala réttarins í einkamálum. Árið 2019 féll dómur í Landsréttarmálinu hjá Mann- réttindadómstól Evrópu, sem olli töfum á málsmeðferð í Landsrétti, þar sem fjórir af fimmtán dóm- urum hættu að taka þátt í dóm- störfum. Árið 2020 reið svo heims- faraldurinn yfir sem einnig olli töfum hjá dómstólunum. Á síðasta ári voru kveðnir upp 55 dómar í Hæstarétti og Benedikt segir þann fjölda nálægt því sem gert var ráð fyrir þegar millidóm- stigið var innleitt og Hæstiréttur verður að þriðja dómstiginu. Fyrsta starfsár Hæstaréttar bár- ust réttinum 66 beiðnir, en síðustu þrjú ár hafa þær verið að meðaltali um 150 á ári. Þrætugjörn þjóð Hlutfall samþykktra málskots- beiðna er töluvert hærra hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Hér samþykkir Hæstiréttur um það bil fjórðung málskotsbeiðna að meðal- tali, en hlutfallið er ekki nema 10 til 15 prósent á hinum Norðurlönd- unum. „Það hefur verið sagt að við séum þrætugjarnari en aðrar þjóðir og hér sé farið í landamerkjamál út af hverri þúfu,“ segir Benedikt. Ólöf Finnsdóttir, skrifstofustjóri Hæstaréttar, bendir hins vegar á að íbúar hinna Norðurlandanna hafi fjölbreyttari úrræði og því kunni samanburður að vera villandi. „Ef við til dæmis berum okkur saman við Danmörku, þá hafa þeir aðrar leiðir eins og til dæmis með smærri kröfur, en slík mál eru rekin fyrir dómstólum hér. Þá benda þau á að málum hafi verið að fækka hjá héraðsdómstól- unum á undanförnum árum. Þar kunni að hafa áhrif aukinn réttur borgara til að bera mál sín undir úrskurðarnefndir. Þótt Hæstiréttur sé kominn fyrir vind og meðferð mála í eðlilegum farvegi, lýsir Benedikt áhyggjum af töfum á meðferð einkamála í Landsrétti, en í dag geta liðið allt að átján mánuðir frá áfrýjun til Lands- réttar, þar til dómur gengur. Benedikt segir að uppi séu til- lögur um hvernig Hæstiréttur geti tekið þátt í að létta á þessu álagi. „Við erum móttækileg fyrir því að rýmka aðgang að Hæstarétti og höfum tjáð okkur um ákveðnar til- lögur í því sambandi,“ segir Bene- dikt, en í Samráðsgátt stjórnvalda er frumvarp sem gerir ráð fyrir að mál geti farið beint til Hæstaréttar frá héraðsdómi, án skilyrðis um að niðurstaða þoli ekki bið. Skilyrði fyrir þessari leið væri að málið væri í eðli sínu þannig að það ætti augljóst erindi til Hæstaréttar, en krefðist ekki beinnar sönnunar- færslu á áfrýjunarstigi. Í frumvarpsdrögunum er einn- ig lagt til að að unnt verði að leita til Hæstaréttar varðandi ýmis réttar farsatriði. Til að mynda hefur verið gagnrýnt að ef máli er vísað frá í héraði og frávísun er staðfest í Landsrétti, komist það mál aldrei til Hæstaréttar og málsaðilar fái enga úrlausn fyrir dómstólum. „Þarna væri verið að rýmka aðganginn að Hæstarétti,“ segir Benedikt. Þó þurfi auðvitað eftir sem áður að fá málskotsleyfi hjá réttinum hverju sinni. Öllu tjaldað til í endurnýjuðum Hæstarétti Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, ásamt Ingveldi Einarsdóttur varaforseta (t.v.) og Ólöfu Finnsdóttur, skrifstofustjóra réttarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Þrjár konur gegna nú stöðu Hæstaréttardómara, en kvenkyns dómarar við réttinn hafa alls verið sjö: Björg Thorarensen, Greta Baldursdóttir, Ingibjörg Benediktsdóttir, Guðrún Erlendsdóttir, Hjördís Hákonardóttir, Ingveldur Einarsdóttir og Ása Ólafsdóttir. MYND/SAGA SIGURÐARDÓTTIR Nóg að gera Því er stundum haldið fram að hæstaréttardómarar geti varla haft mikið að gera í breyttri dómstóla- skipan. Ingveldur Einarsdóttir, varaforseti Hæstaréttar, vísar þessu á bug. „Ég var settur dómari þegar álagið var sem mest hér eftir hrunið. Álagið þá var allt öðru vísi en í dag. Þá voru dæmd 600 mál á ári en ekki 60, þannig að maður hafði miklu minni tíma til að setja sig inn í málin. Núna er álag líka en allt öðruvísi og yfirferðin allt önnur. Það er farið í alls kyns dóma og fræðirit, það er legið yfir málinu og allir endar skoðaðir, það er farið algerlega á dýptina og svo eru dóm- arnir náttúrulega mun ítarlegri og lengri en áður var.“ Benedikt tekur undir með Ing- veldi og segir mun meira lagt í hvert mál eftir breytinguna. „Lögmenn- irnir leggja meira í málin sem koma til okkar, það er meira lagt í mál- flutninginn og svo eru þau afgreidd hér af meiri dýpt. Þannig að það er meiru tjaldað til í dag,“ segir Bene- dikt og bendir einnig á að áður voru dómarar við réttinn tólf, en eru sjö í dag. Einnig hefur verið gagnrýnt að hæstaréttardómarar sinni kennslu með fram starfinu og hefur sú gagn- rýni ekki síst beinst að Benedikt. Hann segir að eftirlit sé haft með aukastörfum dómara og um þau gildi sérstakar reglur sem fara þurfi eftir. „Ég segi nú bara fyrir mig að það hefur gefið mér mikið í kennara- starfinu að hafa verið að dæma og í dómarastarfinu að hafa verið að kenna. Þetta styrkir mann á báðum sviðunum,“ segir Benedikt og bætir við: „Mér finnst gríðarlega mikil- vægt að geta komið út í háskóla og hitt ungt fólk og heyrt þeirra sjónarmið og átt samræður þar. Það gerir ekkert nema styrkja mann í dómarastarfinu.“ Hann segir þetta fyrirkomulag eiga sér fyrirmyndir víða um heim. Jafnt kynjahlutfall Samsetning Hæstaréttar hefur breyst töluvert á allra síðustu árum. Lengi vel var aðeins ein kona í rétt- inum. Nú eru konur þrjár af sjö dómurum réttarins. „Við erum með besta skorið að minnsta kosti á Norðurlöndum, ef ekki víðar,“ segir Benedikt um kynjahlutföllin. En hvaða áhrif hefur f jöldi kvenna við réttinn? „Ég held það sé fyrst og fremst fólkið sjálft sem hefur áhrif, ekki endilega hvort það er kona eða karl. Lífsskoðanir fólks og lífsreynsla mótar fólk og kannski hefur það einhver áhrif og jafnvel meiri en kyn þess,“ svarar Ingveldur. n Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is 8 Fréttir 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 20. janúar 2022 FIMMTUDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.