Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.01.2022, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 20.01.2022, Qupperneq 27
Allt starfs- fólkið leggur hjarta sitt í vinnuna sína og fólk finnur að það er tekið tillit til þess sem það leggur fram. Guðrún Ólafsdóttir hóf störf hjá upplýsingatæknifyrir- tækinu Rue de Net samhliða námi sínu í tölvunarfræði. Með áræðni og drifkraft að vopni hefur hún þróast í starfi hjá sívaxandi fyrir- tæki. Rue de Net er öflugt þjónustu- fyrirtæki sem þjónustar íslensk fyrirtæki með viðskipta- og verslunarkerfi frá Microsoft og LS Retail ásamt sérlausnum. „Ég hóf störf hjá Rue de Net árið 2012 sem hlutastarfsmaður á sama tíma og ég var í námi í tölvunarfræði. Strax eftir útskrift 2014 fór ég svo í fullt starf og hef verið hér síðan,“ segir Guðrún sem er í dag meðeigandi í fyrirtækinu, situr í stjórn og er staðgengill framkvæmdastjóra, ásamt því að gegna starfi sölu- og markaðsstjóra. „Á þeim tíma vorum við ekki nema sjö, en stækkuðum ört og tveimur árum síðar unnu rúmlega 20 manns hjá fyrirtækinu og í dag eru yfir 30 starfsmenn í starfi hjá Rue de Net. Það hefur alltaf verið markmið okkar að ráða til starfa ungt og öflugt fólk og við leggjum gríðarlega áherslu á að hlúa vel að fólkinu okkar og skapa góða vinnustaðamenningu.“ Óx innan fyrirtækisins „Starf mitt hefur breyst mikið í takt við þróun fyrirtækisins á síðustu árum. Ég hef vaxið með fyrirtækinu og gegnt mörgum stöðum innanhúss. Þegar ég hóf störf sem forritari fékk ég strax mjög krefjandi verkefni og mikla ábyrgð samhliða. Þekking mín jókst því hratt og tók ég fljótlega að mér stjórnunarhlutverk hjá fyrirtækinu, fyrst hópstjórastöðu, því næst var ég viðskiptastjóri og síðast þjónustustjóri í fjögur ár. Þessi þróun er tvímælalaust ein birtingarmynd af kostum þess að vera hluti af fyrirtæki í vexti, tækifærin sem fylgja því að leggja hart að sér eru hreinlega út um allt. Árangur minn í starfi leiddi til þess að árið 2017 bauðst mér að gerast eigandi og kaupa hlut í félaginu, og í framhaldinu að setjast í stjórn, sem og ég gerði,“ segir Guðrún. Tölvunarfræðin góður grunnur „Í fyrra haust, árið 2021, tók ég svo að mér að vera sölu- og markaðs- stjóri, en sem þjónustustjóri hafði ég oft stutt við söluhluta starfsem- innar og verið þannig viðloðandi starfið á einn og annan hátt. En þarna urðu tímamót og ég tók það alfarið að mér. Á þeim tíma tók annar starfsmaður fyrirtækisins, sem hefur átt svipaða vegferð og ég, við þjónustustjórastöðunni. Hann byrjaði líka sem forritari og hefur nú unnið sig upp í stöðu þjónustustjóra.“ Guðrún, sem býr ekki yfir form- legri menntun í sölu, viðskiptum eða markaðsmálum segir að þekk- ing og reynsla af tölvukerfum og umsjón þeirra sé ekki síðra verkfæri þegar kemur að sölunni. „Ég segi ekki að ég hafi enga þörf á menntun í þessum fögum, þá sérstaklega núna þegar ég er líka staðgengill framkvæmdastjóra og mikið inni í daglegum rekstri fyrirtækisins. Ég hef mikinn áhuga á viðskiptum, rekstri fyrirtækja og fjármálum, svo hver veit nema ég mennti mig því tengdu í framtíðinni. Tölvunar- fræðigrunnurinn og sú reynsla sem ég hef öðlast í mínu starfi hjá Rue de Net hefur samt komið sér einstak- lega vel í sölu- og markaðsstjóra- hlutverkinu. Ég tel að í minni stöðu gangi það hreinlega ekki upp að hafa engan grunn í tölvunarfræði og hafa aldrei unnið við að forrita kerfin sem við bjóðum upp á. Við erum ráðgefandi fyrir viðskiptavini okkar í söluferlinu, sem treysta því að við vitum allt um vörurnar sem við erum að selja, hvernig þær eru til komnar, settar upp, þjónustaðar og viðhaldið.“ Áræðni leiðir til árangurs Guðrún segist hafa verið heppin að hafa komið inn í fyrirtækið á réttum tíma fengið að vaxa og dafna í starfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Heillandi vinnustaður Rue de Net var upphaflega stofnað árið 2003 á eyjunni Jersey í Ermar- sundi en hefur verið starfandi í núverandi mynd frá 2007. Rue de Net er heillandi vinnustaður fyrir ungt og metnaðarfullt fólk sem vill taka á sig ábyrgð og vaxa með vinnustaðnum. „Starfsfólk endist að jafnaði lengi í vinnu hjá okkur og við höfum ráðið til okkar margt nýútskrifað fólk sem margt hvert hefur starfað hjá fyrirtækinu í nær áratug. Við höfum skapað umhverfi og vinnustað þar sem fólk vill vera, enda getur starfsfólk sem stendur sig vel öðlast yfir- gripsmikla reynslu og þekkingu og samhliða vaxið í starfi. Rue de Net er líflegur vinnustað- ur og klárlega eins og fjölskylda eða náinn vinahópur. Allt starfs- fólkið leggur hjarta sitt í vinnuna sína og fólk finnur að það er tekið tillit til þess sem það leggur fram, því er treyst fyrir verkefnum og það getur haft raunveruleg áhrif.“ Persónuleg þjónusta „Það er gaman að vinna á stað þar sem mikið er um ungt, ferskt og frambærilegt fólk á svipuðum aldri og ég, rétt um þrítugt, stútfullt af metnaði og kjarki. Við erum að þjónusta mörg af stærstu og fram- sæknustu fyrirtækjum landsins og viðskiptavinir okkar finna að við höfum fullt fram að færa og erum góð í því sem við gerum. Eitt af megin markmiðum Rue de Net hefur alltaf verið að veita per- sónulega þjónustu, og það kunna viðskiptavinir okkar að meta. Við erum ekki með hefðbundið þjónustuborð, eða snjallmenni sem svara viðskiptavinum. Hver viðskiptavinur er sérstakur í okkar augum og hefur sinn eigin tengilið hjá Rue de Net. Þannig kynn- umst við viðskiptavinum gegnum persónuleg samskipti og lærum að þekkja þarfir þeirra fljótt og örugglega.“ Spennt fyrir framtíðinni „Við hjá Rue de Net horfum til framtíðar alla daga og erum sífellt að skoða nýja tækni og finna leiðir til að innleiða hana, ef hún reynist vænleg til árangurs. Í því efni teljum við mikinn kost að við eigum okkur sjálf og ráðum okkur sjálf. Við erum engum háð og tökum okkar eigin ákvarðanir þegar kemur að því hvort skoða eigi nýja tækni eða aðferðir og bjóða þær til viðskiptavina okkar. Við erum mjög stolt af því að vera okkar eigin herrar. Á síðustu árum hafa átt sér stað umskipti í viðskipta- og verslunar- kerfum og eru þau nú öll að verða aðgengileg án uppsetningar í skýinu. Það hefur því verið eitt af okkar megin verkefnum síðustu þrjú árin að styðja viðskiptavini okkar á vegferðinni upp í skýið, og segjum þá gjarnan að viðskipta- vinir okkar séu á leiðinni „úr skápnum í skýið“. Þá erum við að vísa til þess að fyrirtæki hýstu áður viðskipta- og verslunarkerfi sín innanhúss í svokölluðum tölvu- skápum. Í dag eru skýjaþjónustur orðnar ódýrasta, besta og þægi- legasta lausnin, sérstaklega í sam- félagi þar sem margir eru farnir að sinna sínum störfum utan hinnar hefðbundnu skrifstofu. Við hjá Rue de Net vorum sérlega snögg að tileinka okkur þessa nýju tækni, og höfum öðlast mikla þekkingu þar á, sem gerir okkur kleift að vera í fararbroddi á þessu sviði.“ Tækifæri til að vaxa Sögulega séð hefur tölvugeirinn haft yfir að ráða fleiri menntuðum körlum en konum, en sem betur fer erum við að sjá örar breytingar þar á og kynjahlutföllin í bransanum hafa verið að jafnast út. „Hér hjá Rue de Net fá allir jöfn tækifæri til þess að sýna sig og sanna. Ef um er að ræða frambærilegan einstak- ling þá fær hann framgang í starfi og hér eru, sem fyrr segir, góð tæki- færi fyrir okkur öll til að vaxa.“ n Með því að skanna Qr kóðann má nálgast frekari upplýsingar um Rue de Net. kynningarblað 7FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.