Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 28

Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 28
Við erum í dag komin með heildar- lausn fyrir veitinga- staði. Inga Tinna Sigurðardóttir er stofnandi fyrirtækjanna Icelandic Coupons og Dineout. Fyrirtækin hafa stækkað hratt á undan- förnum árum og fram undan er útrás til Noregs. Inga Tinna Sigurðardóttir rekstrar- verkfræðingur stofnaði árið 2015 fyrirtækið Icelandic Coupons sem er afsláttarapp, en fyrir þann tíma hafði hún meðal annars unnið í banka og sem flugfreyja. „Ég vann hjá Arion banka meðal annars í eignastýringu og svo vöru- þróun og var að feta mig upp met- orðastigann, þegar ég áttaði mig á því að mig langaði til að prófa að fara í eigin rekstur. Ég ákvað að segja starfi mínu lausu og vissi ekkert hvað ég ætti að fara að gera. Ég fór síðan að vinna sem flug- freyja hjá Icelandair, sem ég hafði gert samhliða verkfræðináminu og þá spratt upp hugmyndin um Icelandic Coupons, af því að far- þegar voru oft að spyrja hverju við mæltum með að gera á Íslandi og hvert þeir ættu að fara að borða. Þannig að úr varð bæklingur sem fyrst var prentaður í 1500 eintök- um þar sem voru afsláttarmiðar sem giltu á veitingastöðum, börum og verslunum. Einu og hálfu ári síðar var búið að þróa Icelandic Coupons-appið sem er afsláttarapp og þá var ég byrjuð að láta prenta 70.000 eintök af bæklingnum. Í dag erum við með rúmlega 50.000 virka not- endur í Icelandic Coupons appinu, Íslendinga og erlenda ferðamenn, þannig að þetta hefur margfald- ast.“ Um 280.000 manns Það var svo árið 2017 sem Inga Tinna fékk hugmyndina að Dineout. „Ég var oft á fundum með eigendum veitingastaðanna á stöð- unum þeirra og þá tók ég eftir því að margir veitingahúsaeigendur voru bara með stílabækur eða notuðu Excel þegar teknar voru niður borðapantanir í gegnum síma, tölvupóst eða Facebook. Ég hugsaði með mér að það hlyti að vera til betri leið á þessari tækniöld sem við lifum á. Ég hafði kynnst því á ferðalögum mínum erlendis að panta borð á veitingahúsum í gegnum bókunarsíður, þannig að ég skoðaði að taka slíkt kerfi til landsins og byggja bara á því, en komst að því að það væri best að gera þetta algjörlega frá grunni og vera engum háð og geta þar af leið- andi breytt kerfinu eftir þörfum. Þá fékk ég til liðs við mig forritara og í dag eru þeir meðeigendur mínir í Dineout, en þeir eru tveir sem hafa gert öll Dineout-kerfin frá grunni, annar þeirra er Magnús Björn Sigurðsson, bróðir minn, og hinn er Viktor Blöndal Pálsson. Við erum í dag komin með heildarlausn fyrir veitingastaði. Byrjunin var borðabókunarkerfi, sem átti alltaf að vera eina afurðin okkar, en þegar Covid-heims- faraldurinn skall á þá bjuggum við til matarpöntunarkerfi fyrir „take away“ og heimsendingar. Við erum komin með kassakerfi sem er sölukerfi á veitingastöð- unum og við erum komin með QR kóða inn á veitingastaði, þar sem almenningur skannar kóðann og getur pantað mat án þess að þörf sé á þjónustu. Eins erum við með QR kóða inni á f lestöllum hótelum og stærstu hótelkeðjum landsins, þar sem hægt er að panta herbergisþjón- ustu. Við erum auk þess komin í heimasíðugerð fyrir veitingastaði og aðra þjónustuaðila, þannig að við erum í raun og veru orðin hugbúnaðarhús sem byggðist upp vegna þarfarinnar á markaðnum. Það er alveg klárt mál að það var þörf fyrir þetta. Þegar nýr veitingastaður opnar í dag þarf hann í raun bara að hafa samband DINEOUT er fyrirtæki í útrás Inga Tinna er hugmynda- smiðurinn að Dineout. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI við okkur og við útvegum allar lausnir sem þarf. Við erum ekki bara með hug- búnað fyrir veitingastaði og hótel, heldur erum við líka brú til almennings þar sem almenningur getur bókað borð og pantað mat. Nú þarf ekki að svara tölvupóstum til að staðfesta borðabókun,“ segir Inga Tinna, en í dag sér fyrir- tæki hennar um rúmlega 80.000 borðabókanir í hverjum einasta mánuði og segir hún að á bak við þann fjölda setjist um 280.000 gestir til borðs í gegnum pantanir og bókanir í Dineout. Blóð, sviti og tár Inga Tinna nefndi matarpantanir og segir hún að þar sé mikil velta og vinsælt hjá almenningi að panta sér mat heim og veislubakka fyrir fjölskyldu og vini. Veitingarnar er hægt að panta í gegnum Dineout- appið og dineout.is „Þetta er í rauninni svar okkar við breyttum áherslum í tengslum við heimsfar- aldurinn en veitingastaðir þurftu jafnvel að loka á tímabili, eða þegar borðabókanir detta niður og fjöldatakmarkanir eru, þá fer almenningur meira í matarpant- anir og „take away“. Við vildum sinna veitinga- stöðunum þar – fínni stöðum sem og bistro-stöðum og almennum skyndibitastöðum, þó svo að mottó okkar sé að vera með gæða- stimpil varðandi þá staði sem eru hjá okkur, en við veljum gaumgæfi- lega hverjir komast inn á markaðs- torgið okkar.“ Í dag eru um 180 veitingastaðir í viðskiptum við fyrirtækið. Heimsfaraldurinn hefur haft mikil áhrif á rekstrargrund- völl margra fyrirtækja svo sem veitingahúsa og það hefur svo bein áhrif á fyrirtæki Ingu Tinnu. „Hlutabótaleiðin hjálpaði mikið í fyrra og hafði gríðarlega mikið að segja fyrir reksturinn. Þetta eru vægast sagt krefjandi tímar sem við lifum á í dag og umhverfið breytist jafnvel á einni nóttu. Það er gríðarlega mikilvægt að það séu úrræði og þau séu til taks fljótt, þegar landslagið er eins og í dag varðandi heimsfaraldurinn. Flestir veitingastaðir voru alltaf uppbókaðir síðastliðnar vikur og mánuði, en í dag eru takmarkanir þannig að viðsnúningurinn er algjör. Góð og sterk fyrirtæki geta jafnvel borið varanlega skaða af töfum í úrlausnum og stuðningi. Dýrmætt og mikilvægt er að passa upp á fyrirtæki eins og nýsköp- unarfyrirtæki og fyrirtæki sem eru búin að standa sig vel eins og Dineout og Icelandic Coupons í allan þennan tíma. Nýsköpun er gríðarlega mikil- væg í stóra samhenginu og algjör synd ef faraldur sem þessi hefur varanleg áhrif á annars mörg frábær fyrirtæki. Ef við hefðum til dæmis ekki brugðist við með þeim hætti að búa til matarpöntunar- kerfi og herbergjaþjónustukerfi fyrir hótelin og hefðum einvörð- ungu byggt á borðabókunum, sem er okkar tekjulind, hefði augljós- lega allt þurrkast út.“ Vegur Dineout fer vaxandi og nú út fyrir landsteinana, en í sam- starfi við miðasölufyrirtækið tix. is, er búið að gera stóran samning í Noregi við kvikmyndahúsakeðju. „Þá erum við komin með „all in lausn“ fyrir tónleikahallir, kvik- myndahús og leikhús, samhliða því að við erum með „all in lausn“ fyrir hótel og veitingahús. Þannig að við erum að fara svolítið bak- dyramegin inn í Noreg með tix.is og þá erum við komin með kerfi sem heldur utan um miðasölu, matarpantanir og sölukerfi. Þetta gerir það að verkum að tónleika- hallir, kvikmyndahús og leikhús geta notað eitt og sama kerfið sem verður það fyrsta sinnar tegundar í Evrópu.“ Inga Tinna segir það kostnaðar- samt að ætla sér út fyrir landstein- ana. Hún nefnir í því sambandi mikilvægi mögulegra fjárfesta og styrkja. „Ég er mjög þakklát fyrir að við hlutum styrk frá Tækni- þróunarsjóði, Rannís. Við erum annars búin að vera styrkjalaus frá byrjun og höfum bara byggt hlutina upp á eigin framlögum og vinnuframlagi og ekki tekið nein lán, sem ég er ákaflega stolt af. Þessu fylgir blóð, sviti og tár.“ n 8 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.