Fréttablaðið - 20.01.2022, Síða 32

Fréttablaðið - 20.01.2022, Síða 32
Samkaup eru útbreiddasta verslunarkeðja landsins og dreifa vörum til fleiri staða en nokkurt annað fyrirtæki. Samkaup samanstanda af Nettó, Kjörbúðinni, Kram- búðinni og Iceland og hjá fyrirtækinu starfa 1.400 manns í 65 verslunum og stoðþjónustu. Jafnrétti á vinnustað og jafnrétti í samfélaginu hefur verið sérstakt áhersluverkefni hjá Samkaupum síðustu ár. Félagið hefur sett sér skýra stefnu í jafnréttismálum sem er órjúfanlegur hluti af heildar- stefnu félagsins. „Haustið 2021 lögðum við af stað í vegferð sem kallast Jafn- rétti fyrir alla – Samkaup alla leið. Við upphaf þessa átaks voru gerðir samstarfssamningar við þrenn samtök sem starfa í þágu hópa fólks sem starfa hjá Sam- kaupum og verður lögð áhersla á þá í þessari fyrstu uppfærslu félagsins á jafnréttisstefnu sinni,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- sviðs Samkaupa. Samstarfssamningarnir sem voru undirritaðir voru við Sam- tökin ’78, Þroskahjálp og Mirru, rannsókna- og fræðslusetur fyrir erlent starfsfólk. „Framkvæmdastjórn og stjórn Samkaupa hefur skuldbundið sig í allri stefnumótun til að stuðla að auknu jafnrétti og samþykkti jafnréttisáætlun árið 2020 sem inniheldur aðgerðaáætlun til ársins 2022. Hjá Samkaupum er lögð áhersla á að allt starfsfólk sé metið að verðleikum og njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum. Starfsfólki er ekki mismunað á grundvelli kyns, kynþáttar eða þjóðernis, kynhneigðar, aldurs, trúar, fötlunar, skoðana eða ann- arra þátta. Gildi Samkaupa – kaupmennska, áræðni, sveigjanleiki og samvinna – eru hornsteinar í starfi félagsins og leiðarljós í að gera Samkaup að eftirsóttum vinnustað þar sem jafnrétti og jafnræði allra er virt og þar sem allir einstaklingar hafa jöfn tækifæri á öllum sviðum, því lykilatriði í velgengni Samkaupa felst auðvitað í starfsfólki fyrir- tækisins,“ segir Gunnur Líf. Allir fá að njóta sín sem best Samkaup leggja áherslu á fjöl- menningu innan raða síns starfs- fólks og allir hafa jafnan rétt og tækifæri, óháð uppruna. „Við leggjum áherslu á að nýta styrkleika fólks, óháð þeim tak- mörkunum sem fólki kunna að vera sett, og þannig að hæfileikar, kraftar og færni allra starfsmanna fyrirtækisins njóti sín sem best. Með jafnréttisáætlun og stefnu Samkaupa í jafnréttismálum hafa stjórnendur skuldbundið sig til að leggja áherslu á málaflokkinn þar sem hver einstaklingur er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu,“ upplýsir Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs. Það sé Samkaupum mikilvægt að stefnan sé ekki einungis skjal, unnið af stjórnendum og sem starfsfólk tengir ekki við. „Þess vegna hefur mikil vinna farið fram á meðal alls starfsfólks við mótun stefnunnar og er henni haldið á lofti með reglulegum hætti þegar starfsfólk kemur saman, en einnig með óreglu- bundnum en þó stöðugum hætti á samskiptamiðlum eins og Work- place,“ greinir Heiður frá. „Ásamt því að vinna jafnrétt- isáætlun með það að markmiði að efla hag starfsfólks og starfs- ánægju, er einlæg von Samkaupa að þessi metnaðarfulla jafnréttis- áætlun veki eftirtekt úti í sam- félaginu og hvetji önnur fyrirtæki til að feta sömu leið í jafnréttis- málum. Þannig vonast Samkaup til að verða jákvætt af l út í allt Vonast til að breyta heiminum Þessar tvær eru alsælar í störfum sínum hjá Samkaup­ um, þar sem jafnrétti og manngæska eru í hávegum höfð; Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmda­ stjóri mann­ auðssviðs, og Heiður Björk Friðbjörns­ dóttir, fram­ kvæmdastjóri fjármálasviðs Samkaupa. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Brakandi ferskt grænmeti, ávextir og hvers kyns nýmeti er aðalsmerki Samkaupa sem reka Nettó, Krambúðina, Kjörbúðina og Iceland. Afbragðs þjón­ usta og hvers kyns þægindi við verslun er leiðarljós Samkaupa fyrir hönd viðskipta­ vina sinna. Hér má sjá sjálfs­ afreiðslu í Nettó Granda. okkar samfélag og jafnvel breyta heiminum í vissum skilningi.“ Hlúð að erlendu starfsfólki Samkaup hlutu nýverið Hvatning- arverðlaun jafnréttis, en að þeim standa Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands. Fyrirtækið hlaut verðlaunin í tveimur af þremur flokkum: fjölmenningu og fötlun. „Um 25 prósent starfsfólks Sam- kaupa eru af erlendum uppruna og gegna ýmiss konar störfum innan fyrirtækisins, jafnt afgreiðslustörf- um, vaktstjórastörfum, umsjónar- störfum sem og verslunarstjóra- störfum,“ upplýsir Gunnur Líf. Þá hafa Samkaup haft milli- göngu um að tryggja erlendu starfsfólki sínu varanleg dvalar- leyfi á Íslandi og veita ávallt aðstoð við ýmiss konar opinbera ferla sem fólk af erlendum uppruna þarf að fara í gegnum til þess að mega búa og starfa á Íslandi, sé þess þörf. „Samkaup bjóða öllu erlendu starfsfólki sínu íslenskukennslu, á rafrænum fræðsluvettvangi fyrirtækisins, í fjarkennslu eða staðkennslu. Erlent starfsfólk getur einnig fundið sér íslenskunám- skeið sem því hentar best og Sam- kaup endurgreiða kostnað þeirra að fullu,“ segir Gunnur Líf. Samstarfssamningur Samkaupa og Mirru rannsókna- og fræðslu- seturs hljóðar upp á fræðslu til alls starfsfólks Samkaupa og þar er ekki síður lögð áhersla á fræðslu til íslensks starfsfólks. „Þannig snýr fræðslan að því að gera fólk betur í stakk búið til að taka á móti erlendu starfsfólki, bjóða það velkomið í starfsmanna- hópinn og sjá til þess að inngilding þess verði sem mest og best. Fræðslan er sniðin að stjórnendum jafnt sem almennu starfsfólki. Haldnir eru stjórnendadagar þar sem farið er yfir þessi málefni og fræðslan fest í sessi hjá stjórn- endum. Einnig eru haldnar vinnu- stofur í öllum verslunum fyrir- tækisins, þar sem allt starfsfólkið tekur þátt, og þar er einnig opnað á þessa umræðu og fræðsla veitt.“ Eftirsóknarverður vinnustaður Hjá Samkaupum starfar fólk með skerta starfsgetu á allmörgum starfsstöðvum og margt hefur starfað þar í fjölmörg ár. „Samstarfssamningur Sam- kaupa og Þroskahjálpar snýr að fræðslu til alls starfsfólks Sam- kaupa og aðallega því að gera starfsfólk betur í stakk búið til að taka á móti starfsfólki með skerta starfsgetu, að aðlögun þeirra að vinnustaðnum verði sem best og að hver og einn fái stuðning sem þarf til að eiga farsælan feril,“ útskýrir Heiður Björk. Fræðslan er sniðin að stjórn- endum fyrirtækisins jafnt sem almennu starfsfólki. „Einnig eru haldnar vinnustofur í öllum verslunum fyrirtækisins, þar sem allt starfsfólkið tekur þátt, og þar er einnig opnað á þessa umræðu og fræðslan veitt. Einnig kemur Þroskahjálp að fræðslu handa starfsfólki með skerta starfsgetu sem hefur störf hjá Samkaupum, veitir því aðstoð sem þarf til að blómstra í starfi og getur þannig betur undirbúið stjórn- endur með stuðning og aðlögun sem starfsmaðurinn þarfnast. Samkaup hafa sett sér markmið um að í hverri skipulagseiningu innan Samkaupa séu starfsmenn með skerta starfsgetu, þannig að á hverjum vinnustað sé að minnsta kosti einn starfsmaður sem flokkast undir atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu,“ segir Heiður. „Meginmarkmið Samkaupa er að vera eftirsóknarverður vinnu- staður þar sem lögð er áhersla á jákvæða og heilbrigða menn- ingu, jafnrétti og opin samskipti, sterka liðsheild þvert á vörumerki félagsins, tækifæri starfsfólks til aukinnar menntunar, fræðslu og starfsþróunar og góða upplýsinga- miðlun. Fyrirtækjamenning Sam- kaupa stuðlar að því að allir starfs- menn fái tækifæri til að þroskast, bæði persónulega og í starfi.“ Nýjar hugmyndir fæðast Aðalmarkmið Samkaupa með nýrri og útvíkkaðri jafnréttis- áætlun er að opna umræðu og fræða starfsfólk sitt til þess að lágmarka hættu á fordómum, með það að markmiði að menning Sam- kaupa endurspegli fordómaleysi og frelsi allra einstaklinga til að vera þeir sjálfir á vinnustaðnum. „Samkaup senda út mannauðs- mælingar annan hvern mánuð til alls starfsfólks. Í mælingu sem fór fram í september 2021 var starfs- fólk beðið um að taka afstöðu til eftirfarandi fullyrðingar: „Hjá Samkaupum eru allir starfsmenn jafnir án tillits til stéttar, trúar, kynferðis, kynhneigðar, þjóðernis, fötlunar eða aldurs.“ Niðurstöður sýndu að 48 pró- sent þeirra sem svöruðu voru mjög sammála, 38 prósent sammála en 10 prósent svarenda voru hlutlaus, 3 prósent ósammála og eitt prósent mjög ósammála. Þá mælir Sam- kaup jafnrétti með mismunandi spurningum þrisvar til fjórum sinnum á ári,“ upplýsir Gunnur Líf. Fyrir utan ávinning sem fæst af fjölmenningu fyrir starfsfólkið og samfélagið í heild, sé stefnan mikilvæg þegar litið er til rekstrar- legs ávinnings Samkaupa. „Það að vera með hóp af fólki með ólíkan bakgrunn og af ólíkum uppruna ýtir undir nýsköpun og þegar raddir ólíkra aðila fá að heyrast innan fyrirtækisins koma fram fjölbreyttari sjónarmið. Þegar fjölbreytni í starfsmanna- hópi er markmið, eru Samkaup þess fullviss að ávinningurinn er langtímaárangur þar sem ólíkt starfsfólk kemur með nýjar hug- myndir, ferla og stefnur. Með þessu eykst skilvirkni innan starfa fyrir- tækisins, sem skilar sér í auknum hagnaði til lengri tíma litið, og ánægja starfsfólks eykst, sem skilar sér í betri upplifun viðskipta- vina af þjónustu, sem aftur skilar aukinni sölu,“ segir Gunnur Líf. Hamingjan í fyrirrúmi Gunnur Líf er spurð hvort ham- ingjan búi í Samkaupum og svarar: „Hamingja, gleði og vinátta eiga heima á öllum vígstöðvum samfélagsins og ég tel það vera forsendu þess að fólki líði vel. Ef við hjá Samkaupum sköpum menningu þar sem ríkir jafnrétti og fordómaleysi, þá stígum við skref í rétta átt að því að skapa gott samfélag þar sem hamingja fólks er í fyrirrúmi.“ Hún segir margt áhugavert hafa komið fram í vegferð Samkaupa. „Við erum alltaf að læra, hvernig við getum bætt okkur á öllum sviðum og það að setja athyglina á jafnréttismálin aðstoðar okkur í að gera betur. Ég get með sanni sagt að liðsheild, orka og þrautseigja einkenni starfsfólk Samkaupa. Fólkið í Samkaupaliðinu stendur saman og er ávallt tilbúið að leggja sitt af mörkum til að mæta við- skiptavinum á sem bestan máta. Samkaup eru eitt öflugasta fyrir- tækið á Íslandi, með einstakan hóp starfsmanna sem í sameiningu getur allt. Þetta er einstakt fyrir- tæki sem býr yfir fjölbreyttum hópi af framúrskarandi fólki. Mannauðurinn er svo sannarlega stærsta auðlind fyrirtækisins.“ n 12 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.