Fréttablaðið - 20.01.2022, Qupperneq 45
Það eru
ekki
einungis
fjölbreytt
viðfangs-
efni held-
ur er ég
stöðugt í
sambandi
við nýtt
fólk.
Maður
þarf því að
vera góður
í mann-
legum
samskipt-
um.
Ég er alin
upp á mjög
menn-
ingarlegu
heimili og
það hefur
nýst mér
vel í
vinnunni.
Salóme Þorkelsdóttir, upp-
töku- og útsendingastjóri
hjá RÚV, hefur starfað hjá
stofnuninni frá því hún var
tvítug, með einu hléi þegar
hún fluttist til London í
tvö ár. Hún segist ekki geta
hugsað sér skemmtilegri
vinnu.
„Það er kannski mýta að segja að
hjarta RÚV slái fast, en starfsfólkið
er bara eins og ein stór fjölskylda,“
segir Salóme. „Flestir starfsmanna
verða góðir vinir til frambúðar
enda vinnum við náið saman. Það
getur auðvitað ýmislegt komið upp
á eins og hjá mörgum fjölskyldum,
en í langflestum tilvikum er þetta
mjög farsælt og gott samstarf. Mitt
starf felst í vinnu við dagskrár-
gerð og er mjög fjölbreytt. Enginn
dagur eins, kannski er ég að vinna
við tónlist í dag og spurningaþátt á
morgun, jafnvel taka upp kosn-
ingasjónvarp eða viðtalsþátt. Þetta
er ótrúlega skapandi vinna og
forréttindi að vera í þessu starfi,“
segir hún. „Það eru ekki einungis
fjölbreytt viðfangsefni heldur er ég
stöðugt í sambandi við nýtt fólk.
Maður þarf því að vera góður í
mannlegum samskiptum.“
Salóme segir að oft komi hún
inn í þær aðstæður að þurfa að
hugsa hratt, taka ákvarðanir og
meta aðstæður. „Við erum tvær
sem erum fastráðnar í þessu starfi
hjá dagskrárdeild, ég og Ragn-
heiður Thorsteinsson sem er mikill
kvenskörungur. Síðan eru nokkrar
konur aðstoðarpródúsentar en þær
eru ómissandi partur af keðjunni.
Ég myndi alveg vilja sjá fleiri konur
í þessum geira. Þetta er karllægt
starf og stundum er ég eina konan
á staðnum,“ segir Salóme. „Það
er samt yndislegt að vinna með
þessum dúllurössum,“ bætir hún
við og hlær. „Margir þeirra eru mjög
góðir vinir mínir. Meistari minn
og mentor er Egill Eðvarðsson sem
er algjör RÚV-kempa og reynslu-
bolti. Það er frábært að vinna með
honum og öðrum körlum, þótt
maður sakni þess stundum að sjá
ekki fleiri konur.“
Situr í jafnréttisnefnd
Þegar Salóme er spurð hvort RÚV
sé aðlaðandi vinnustaður fyrir
konur, svarar hún því játandi.
„Konur eru upp til hópa mjög
samviskusamar þótt við flækjum
stundum hlutina aðeins of mikið
fyrir okkur. Það dettur alveg í
mig einstaka sinnum við erfiðar
aðstæður, til dæmis á fundi, að
hugsa hvernig karl myndi tækla
þetta. Þeir eru oft djarfari í ákvarð-
anatöku. Við konurnar erum samt
algjörir töffarar inn við beinið og
getum allt. Þurfum bara stundum
að hafa meiri trú á okkur. Það er
jafnréttis- og jafnlaunastefna á
RÚV. Við þurfum auðvitað alltaf að
vera vakandi og nýlega var stofnuð
jafnréttisnefnd sem ég á sæti í. Við
þurfum að vera sýnileg á öllum
sviðum stofnunarinnar. Þar sem
RÚV er opinbert fyrirtæki þurfum
við líka að vera fyrirmyndir fyrir
aðra. Nefndin tekur sig alvarlega,
heldur reglulega fundi um jafnrétti
inn á við í fyrirtækinu og út á við.“
Tíðarandinn hefur breyst mikið
á undanförnum árum. Eitt sinn
var talað um að vinna væri dyggð,
núna kemur fjölskyldan fyrst
og miklu meiri sveigjanleiki og
umburðarlyndi gagnvart því. Hér
áður fyrr spurði fólk á förnum vegi
hvort það væri ekki brjálað að gera
í vinnunni? Nú spyr fólk hvernig
manni líður. Hér hefur orðið við-
horfsbreyting.
Henti sér í djúpu laugina
Til að starfa sem pródúsent á sjón-
varpsstöð er ekki endilega krafist
sérstakrar menntunar, enda segir
Salóme að fólk læri mest á því að
starfa við fagið. „Það er hægt að
taka kúrsa hjá Kvikmyndaskóla
Íslands eða í erlendum kvik-
myndaskólum. Hins vegar er bara
ágætt að henda sér í djúpu laugina
og láta vaða. Þannig lærir maður
mest. Í starfinu tekst maður á
við alls kyns vandamál sem ekki
eru kennd í skóla. Vinnan skapar
meistarann. Tæknin breytist
hratt, sem einnig er áskorun fyrir
okkur. Ég kem að allri framleiðslu
á sjónvarpsþætti og vinn náið
með umsjónarmanni hans og
dagskrárstjóra auk tæknifólks.
Mitt hlutverk er að stýra allri
framleiðslunni til enda. Ég er eins
og vélstjóri sem þarf að hafa vel
smurða vél svo hún gangi sem
best. Maður er mjög mikið að
skipuleggja og sem betur fer elska
ég excel-skjöl þannig að þetta á
mjög vel við mig. Ég er í eðli mínu
bæði skipulögð og stundvís,“ segir
hún.
Ólst upp í tónleikahúsum
Salóme á þekkta foreldra, móðir
hennar er söngkonan Diddú og
faðirinn, Þorkell Jóelsson, var
hornleikari Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í áraraðir. Amma hennar
og nafna er Salóme Þorkelsdóttir
fyrrverandi alþingismaður. Salóme
á tvíburasystur, Valdísi, sem
starfar sem viðburða- og skipu-
lagsstjóri hjá Sinfó, og yngri systur,
Melkorku, sem er að klára hljóð-
blöndunar- og upptökustjóranám,
auk þess að vera myndlistarmaður.
Unnusti Salóme er Smári Hallmar
Ragnarsson tæknifræðingur. Þau
keyptu hús í Mosó og eru að gera
það upp áður en brúðkaup verður
haldið sumarið 2023. „Það var
yndislegt að alast upp í Mosfellsdal
enda er ég algjör sveitatútta. Smári
kemur úr Skagafirðinum og á þetta
sameiginlegt með mér.“
Salóme segist hafa alist upp við
mikla tónlistarupplifun. „Ég er
alin upp á mjög menningarlegu
heimili og það hefur nýst mér vel
í vinnunni. Ég ólst upp í Háskóla-
bíói, Íslensku óperunni, kirkjum
og tónleikasölum víðs vegar um
landið. Foreldrar mínir vildu að
við yrðum hluti af þeirra lífi en
ekki öfugt. Við vorum því mikið
með þeim í vinnunni og sem
betur fer voru þau í skemmti-
legum störfum. Heimilið var
opið öllum og alltaf matarboð,
þannig að þetta var allt mjög lif-
andi í Mosfellsdalnum. Foreldrar
mínir stunduðu nám á Ítalíu og
við systurnar fórum alltaf með á
sumrin þegar þau fóru í endur-
menntun.“
Söngvakeppnin næsta verkefni
Salóme segist vera spennt fyrir
komandi verkefnum sem eru
meðal annars Söngvakeppni
Sjónvarpsins. Salóme fór með
til Rotterdam á síðasta ári þegar
Eurovision fór fram þar og var
svo óheppin að smitast af Covid í
ferðinni. „Við skiljum ekki hvernig
veiran komst í hópinn því við
vorum mjög út af fyrir okkur,“
segir hún.
„Ég hef farið með í Eurovision
til að fylgja atriðinu eftir. Núna
er einmitt allt að fara í gang með
Söngvakeppnina þegar sóttvarnir
leyfa. Hún stækkar ár frá ári og
verður afar glæsileg í ár. Reiknað
er með að úrslitakeppnin fari fram
12. mars en tíu lög munu keppa til
úrslita.“ n
Forréttindi að vera í draumastarfinu
Salóme Þorkelsdóttir hefur starfað hjá RÚV frá tvítugu og finnst starfið bæði spennandi og skemmtilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
kynningarblað 25FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU