Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 67

Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 67
Það að fá tækifæri til að draga úr starfshlut- falli og sækja starfs- endur- hæfingu samhliða vinnu getur reynst mjög árangurs- ríkt fyrir marga. Rann- sóknir sýna að áhugahvöt hefur- mikið forspár- gildi hvað varðar endur- komu til vinnu eftir starfs- endur- hæfingu. VIRK Starfsendurhæfingar- sjóður er sjálfseignarstofnun stofnuð árið 2008 af helstu samtökum stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnu- markaði sem hefur það hlutverk að efla starfsgetu einstaklinga með heilsu- brest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. Rétt á þjónustu VIRK eiga þeir einstaklingar sem ekki geta sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsu- brests. Einstaklingar þurfa beiðni eða vottorð frá lækni til að koma í þjónustu og einnig að hafa það að markmiði að vilja verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði eða að auka þátttöku sína á vinnu- markaði. Undanfarin misseri hefur aukin áhersla verið lögð á starfsendur- hæfingu samhliða vinnu hjá VIRK. Jónína Waagfjörð, sviðsstjóri ráðgjafar og atvinnutengingar hjá VIRK, segir starfsendurhæfingu samhliða vinnu hafi alltaf staðið til boða hjá VIRK og margir hafi nýtt sér þann möguleika. Vinnan sjálf getur oft verið besta úrræðið í starfsendurhæfingunni en rann- sóknir hafa einmitt sýnt að úrræði sem tengjast vinnustaðnum eru oft árangursríkari. „Það að fá tækifæri til að draga úr starfshlut- falli og sækja starfsendurhæfingu samhliða vinnu getur reynst mjög árangursríkt fyrir marga. Þá stígur fólk aldrei alveg frá vinnustaðnum heldur er reynt að aðlaga starfið að getu einstaklingsins, yfir ákveðinn tíma. Í byrjun starfsendurhæfingar þarf oft að draga enn frekar úr starfshlutfalli en eftir því sem líður á tímann getur starfshlut- fallið orðið stærra og þá fækkar oft úrræðum sem einstaklingurinn sækir. Markmiðið er að ná aftur upp í fyrra starfshlutfall. Þjónustuþegar VIRK sem nýta sér starfsendurhæfingu samhliða vinnu þurfa að hafa tíma til að sækja viðeigandi úrræði auk þess sem mikilvægt er að geta hvílt sig og safnað kröftum. Þess vegna geta þeir ekki verið í fullri vinnu eða námi samhliða starfsendur- hæfingunni. Að taka virkan þátt í starfsendurhæfingu þarf sinn tíma og það er erfitt ef viðkomandi er í fullu starfi eða námi,“ segir Jónína. Ferlið er sérstaklega sniðið að þörfum einstaklingsins Jónína segir starfsendurhæfingu samhliða vinnu geti komið til greina fyrir starfsmenn sem eiga erfitt með að skila vinnu sinni á fullnægjandi hátt vegna heilsu- brests. „Oft er vinnustaðurinn þegar búinn að koma til móts við starfsmanninn með aðlögunum á vinnustað, vinnutíma og/eða verkefnum sem hefur ekki náð að breyta starfsgetu starfsmannsins. Þá væri kannski gott að skoða starfsendurhæfingu samhliða vinnu. Mögulega þarf að draga enn frekar úr starfshlutfalli í byrjun en síðan er hægt að auka það á stig- vaxandi máta eftir því sem starfs- manninum fer að líða betur. Lengd starfsendurhæfingar er hugsuð að jafnaði í 6–8 mánuði en ferlið er sniðið að þörfum einstaklingsins og því getur það verið styttra eða eitthvað lengra en lagt er upp með í byrjun.“ Stefnt sé að sama mark- miði hvort sem fólk er að sækja starfsendurhæfingu með vinnu eða hefur farið alveg af vinnu- markaðinum – að ná heilsu aftur til að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. „Þannig að starfs- endurhæfingin og þau úrræði sem standa einstaklingnum til boða eru þau sömu. Það sem er frá- brugðið í þeim tilfellum þar sem vinnustaðurinn tekur þátt í ferlinu að möguleiki er á aðlögun á vinnu- stað, vinnutíma og/eða verkefnum og vinnustaðurinn styður starfs- manninn í gegnum allt ferlið.“ Skipulagið þarf að virka fyrir starfsmann og vinnustað Sérfræðingur frá VIRK, starfs- maðurinn og yfirmaður hans á vinnustaðnum komi að því að skipuleggja ferlið hvað varðar stigvaxandi endurkomu í fyrra starfshlutfall. „Skipulagið þarf að virka fyrir bæði starfsmanninn og vinnustaðinn og saman verður til stigvaxandi virkniáætlun sem allir viðkomandi telja að muni geta gengið upp. Sérfræðingur frá VIRK fylgir síðan þjónustuþeganum eftir á vinnustaðnum. Endurmat á virkniáætlun á vinnustað á sér stað reglulega í gegnum starfsendurhæfingar- ferlið. Auðvitað koma stundum upp aðstæður sem kalla á endur- mat á áætlun og þá er bókaður tími til að fara yfir hlutina. Niðurstaða þessara funda getur verið að halda áætlun eins og sett var upp í byrjun eða gefa í eða draga úr allt eftir því hvernig gengur hjá starfsmann- inum í starfsendurhæfingunni.“ Áhugahvöt og virk þátttaka ein- staklingsins skiptir miklu máli Eins og í allri starfsendurhæfingu þá skiptir áhugahvöt einstaklings- ins miklu máli og segir oft mest til um hvernig muni ganga þ.e. hvort einstaklingnum takist að snúa aftur í sitt fyrra starfshlutfall. „Rannsóknir sýna að áhugahvöt hefur mikið forspárgildi hvað varðar endurkomu til vinnu eftir starfsendurhæfingu. Því er virk þátttaka þjónustuþega í öllum úrræðum mjög mikilvæg, hvort sem það er hjá hinum ýmsu fagað- ilum (t.d. sálfræðingum, sjúkra- þjálfurum, hópúrræðum) eða hjá ráðgjafa VIRK. Þátttaka starfsmanns á vinnu- staðnum eftir því sem hann getur er líka mjög mikilvæg til þess að starfsendurhæfingin skili til- hlýðilegum árangri. Þar sem vinnustaðurinn er með í ferlinu, þá skiptir það öllu máli að stjórn- endur hafi samþykkt að vera með og séu tilbúnir að koma til móts við starfsmanninn með vinnuað- lögun að getu hans sem stundum þýðir að það þarf að fara tvö skref aftur til þess að taka þrjú skref áfram. Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að gefa kost á vinnuaðlögun til að auðvelda starfsmönnum að snúa aftur til vinnu og skila vinnu sinni á full- nægjandi hátt.“ Skilyrði starfsendurhæfingar Allir sem telja sig þurfa starfs- endurhæfingu hjá VIRK þurfa að skila vottorði frá lækni þar sem fram kemur staðfesting á heilsu- bresti sem hindri fulla þátttöku á vinnumarkaði. „Eins og fyrr segir þá geta þjónustuþegar ekki verið í fullri vinnu eða námi samhliða starfsendurhæfingu og erum við meira að horfa til starfshlutfalls í kringum 60–70%, eða lægra, ef einstaklingar stefna á starfsendur- hæfingu samhliða vinnu. Í sumum tilfellum þarf að byrja í enn lægra starfshlutfalli sem síðan er aukið í ferlinu upp í fullt starfshlutfall eða fyrra starfshlutfall ef einstaklingur var í hlutastarfi. Allar upplýsingar um starfs- endurhæfingu hjá VIRK má finna á vefsíðu VIRK (virk.is). Ef einstakl- ingar vilja og hafa fengið samþykki á sínum vinnustað til að taka þátt í starfsendurhæfingu samhliða vinnu þá er mikilvægt að þeir láti starfsendurhæfingarráðgjafa sinn vita en einnig getur þetta komið fram í beiðninni um starfsendur- hæfingu frá lækni viðkomandi. Þá geta stjórnendur eða ein- staklingar sem vilja leita frekari upplýsinga um hvernig koma megi þessu ferli af stað haft samband við sérfræðing í atvinnuteymi VIRK með því að senda tölvupóst á atvinnutenging@virk.is eða hringt í okkur“, segir Jónína að lokum. n Starfsendurhæfing samhliða vinnu Jónína Waag- fjörð, sviðsstjóri ráðgjafar og at- vinnutengingar hjá VIRK segir marga nýta sér starfsendur- hæfingu sam- hliða vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI kynningarblað 47FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.