Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 108

Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 108
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Ég spurði krakkana af hverju við værum að vernda íslenskuna og svar þeirra var að íslenskan væri afar dýrmæt. Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is GEFÐU GJÖF TIL HEILLA HEILLAGJAFIR.IS ÍÞRÓTTAVIKAN MEÐ BENNA BÓ FÖSTUDAGA KL. 21.00 28 Lífið 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ Lestrarkeppnin Samrómur hefst í þriðja sinn í dag, en henni er ætlað að efla íslensk- una í stafrænum heimi. Smáraskóli hefur sigrað keppnina síðustu tvö ár en Telma Ýr Birgisdóttir, kennari þar, er full eldmóðs og mjög áfram um eflingu íslenskunn- ar svo snjalltæki og -tól geri ekki út af við hana. svavamarin@frettabladid.is Nemendur í Smáraskóla hafa haft sigur í stafrænu lestrarkeppninni Samrómi undanfarin tvö ár og stefna, að sögn Telmu Ýrar Birgis- dóttur, kennara í sjötta bekk, að sjálfsögðu á titilvörn þriðja árið í röð. Telma Ýr bendir á að keppnin gangi út á að safna sem f lestum íslenskum setningum í stafrænan gagnagrunn og í raun þurfi radd- sýni frá börnum á öllum aldri. Þá sé einnig mikilvægt að fá raddsýni frá börnum sem hafa ekki íslensku að móðurmáli. „Svo tækin skilji íslensku sem er ekki töluð alveg full- komlega.“ Keppnin verður sett í Smáraskóla í dag að viðstöddum forsetahjón- unum, Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid, sem hafa að sögn Telmu sýnt keppninni mikinn áhuga og stuðning. Heimilinu stjórnað á ensku „Mér finnst verkefnið mjög mikil- vægt þar sem íslenskan á undir högg að sækja í stafrænum heimi,“ segir Telma, sem hefur góðar gætur á þróuninni í gegnum sín eigin börn. Hún segir einnig að þessi varnarbarátta sé stöðug áskorun í daglegu heimilislífi, þar sem sótt er að tungumálinu úr öllum áttum og meira að segja ljósum, ryksugunni og sjónvarpinu sé stjórnað á ensku. „Börnunum mínum, sem eru fimm og sex ára, finnst mjög mikil- vægt að ná tökum á enskunni til þess að geta stjórnað tækjunum líka.“ Áhugasöm ungmenni Telma segir nemendur hennar sýna verkefninu gríðarlegan áhuga og öll vilji þau fá íslenskuna inn í stafrænt mál, þar sem þau noti slík tæki dag- lega. „Ég spurði krakkana af hverju við værum að vernda íslenskuna og svar þeirra var að íslenskan væri afar dýrmæt. Þá nefndu þau gömlu handritin og að ef við skiljum þau ekki muni fólk ekki skilja arfleifðina okkar. Þau nefndu sjálf að íslenskan væri líkust gamla norræna tungu- málinu,“ segir Telma, stolt af nem- endum sínum. Þarf að nema tíðni barnsradda „Ástæðan fyrir því að börn eru að gefa raddsýni er að aðrir gagna- grunnar skilja helst raddir full- orðinna karlmanna og einhverjar kvenmannsraddir, en ekki börn,“ segir Telma og bendir á að börn tala á annarri tíðni. Foreldrar eða forráðafólk þarf að veita samþykki fyrir því að börn þeirra gefi raddsýni, sem Telma áréttar að eru ekki persónugreinan- leg og einungis merkt kyni og aldri barnsins. Þá bætir hún við að skól- inn fái eitt stig fyrir hverja setningu sem er skilað inn og að foreldrar, systkini, ömmur og afar geti tekið þátt með barninu. Áhugi kennara vegur þungt Telma segir alla skóla landsins geta tekið þátt í Samrómi, en fjöldi þátt- takenda hefur mikið til ráðist af því hversu áhugasamir kennarar eru um verkefnið. „Ég er pínu hrædd um að f leiri kennarar sjái ekki ávinning af því að nota tíma barnanna í þetta núna,“ segir Thelma, en hafa má í huga að það er auðvelt að taka þátt og hægt að gera það óháð stund og stað. „Mér finnst gaman að því að lestrarverkefni eins og þetta hefur tilgang sem skilar sér strax beint út í samfélagið,“ segir Telma, um leið og hún leggur áherslu á að verkefnið komi ekki í staðinn fyrir reglulegan heimalestur. n Kappsmál að efla íslensku í stafrænum samskiptaheimi Telma Ýr er mjög áfram um eflingu íslenskrar tungu í stafrænum heimi og hefur gengið vel að virkja nemendur sína í vörninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR svavamarin@frettabladid.is Útvarp Saga átti fulltrúa á upplýs- ingafundi almannavarna í fyrsta skipti í gær og var þar útvarpsstjór- inn sjálfur, Arnþrúður Karlsdóttir, mætt. Hún segist hafa fylgst vel með fundunum hingað til þótt hún hafi ekki verið þar í eigin persónu. Þá hafi hún með glöðu geði útvarpað fundunum beint á stöð sinni. „Mér fannst hins vegar nauð- synlegt að koma með spurningar núna, af því að mér finnst svo mikið ósamræmi í upplýsingum,“ segir Arnþrúður. Hún bætir við að hún sé ekkert sérlega hress með svör sóttvarnalæknis við spurningum hennar, sem hún gat ekki fylgt eftir, þar sem Víðir Reynisson yfirlög- regluþjónn þurfti að stöðva hana þegar hún reyndi að fylgja eftir því sem hún telur gagnrýna spurningu um bólusetningar og hvers vegna Þórólfur Guðnason hefði ákveðið að upplýsa þjóðina ekki um að hún væri að taka þátt í lyfjatilraun. Þórólfur sagði þvert á móti ekki um neina lyfjatilraun að ræða, enda bóluefnin rannsökuð í bak og fyrir og markaðsleyfi gefið út, og Arn- þrúður er gáttuð. „Vísindasiðanefnd vísaði mér á Þórólf þegar ég spurði hvers vegna þau hefðu ekki gefið álit á þeim aðgerðum sem eru í gangi,“ segir Arnþrúður og vísar einnig til samninga sem gerðir hafi verið um bóluefnakaup. „Mér finnst óeðlilegt að hann hafi ekki lesið samninginn, þar sem kemur skýrt fram að um tilraun sé að ræða,“ segir Arnþrúður, sem seg- ist hvergi af baki dottin og ætlar að mæta á næsta upplýsingafund. „Ég sé fram á að sitja f leiri upplýsinga- fundi í framtíðinni.“ n Arnþrúður gáttuð á Þórólfi Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.