Heilbrigt líf - 01.06.1947, Blaðsíða 85
Það var þarft og myndarlegt verk af Vald. Stefffensen að setja
þessa bók saman og vel varið otium læknis, sem var hættur að stunda
lækningar. Eftir mínu viti er gott mál á þessu riti og víða laglega
að orði komizt. Bókin er menntandi og skemmtileg aflestrar. Prent-
villur eru nokkrar, eingöngu stafavillur, er ekki raska meiningu.
Höf., sem andaðist stuttu eftir að bóltin kom út, naut aðstoðar
sonar síns, próf. Jóns Steffensen, við þetta verk.
G. Cl.
Skólalíf í Skálliolti
Vegna sívaxandi agaleysis í Skálholtsskóla setti Finnur Jónsson,
biskup, fyrstu skólareglur („Monita scholastica"), sem vitað er um
við lærðan skóia hér á landi. Upphaf 8. og síðustu greinar hljóðar svo:
„Allt hundagól, sem þeir (þ. e. piltar) hafa, þá er þeir koma eður
fara, skal vera undir stórt straff öldungis aftekið ..
Um herbergi kennaranna er sagt, að í vetrarhörkum voru þau
hvít af hélu og snjó. En árlegt bókatjón og fatnaðar var tilfinnan-
legt vegna raka. Dragsúg mikinn lagði upp úr skólastofunni, sem
var þar undir.
Hjá biskupunum, Finni Jónssyni og Hannesi Finnssyni:..Undir
rúmum okkar feðganna, hverju fyrir sig, er vatnsuppspretta ...“.
Um háttvísi skólapilta farast Finni J. biskupi svo orð í bréfi
1777: „... því væri ekkert eftirlit af rektors hálfu, þá mundi slíkt
borðhald hjá piltum, að varla mundi annað eins hittast hjá matrósum
og soldátum eða ósiðuðum vinnumönnum og öðrum slíkum ruslaralýð,
og væru ei rektores, annar eða báðir, skyldir til að borða þar, þá
mundu þeir mjög sjaldan þangað koma“.
Þ. 24. nóv. 1763 segir svo í „memorial" frá rektor Skálholtsskóla
til Finns Jónssonar, biskups: „Næstliðið sunnudagskvöld fannst
dauð mús í einni þeirri grautarskál, sem fram var sett fyrir
disciplene mitt innan í því skyri, sem í skálinni var. Sagt er, að
önnur hafi síðan fundizt í sjálfu skyrkerinu. Og með því disciplene,
allir í einu hljóði, segjast hafa fengið slíkan viðbjóð og afsky fyrir
þessu skyri (sem þar að auki sé unangenemt), að þeir geti sér það
ei til munns lagt, þá beiðast þeir allra auðmjúklegast, að þetta skyr
sé vetrarlangt fráskrifað reglementinu og ei aftur framborið. Þetta
disciplenes petitum innstillist til hans háæruverðugheita decision
og godtbefindende.
Ég forbliv med veneration etc.“.
Heilbrigt líf
83