Úrval - 01.06.1951, Side 8

Úrval - 01.06.1951, Side 8
6 ÚRVAL lauk, höfðu þeir farið yfir eyj- una þvera og endilanga, yfir jökia og fjöll og meðfram mikl- um hluta strandlengjunnar. Nafn sitt í sögu landkönnun- ar skráði Vilhjálmur fyrst ár- ið 1906. Vegna greinar, sem hann hafði skrifað um fund Grænlands var honum boðin þátttaka í leiðangri til Alaska, sem tveir landkönnuðir, Ernest de Koven Leffingwell og Ejnar Mikkelsen höfðu undirbúið. Vil- hjálmur tók boðinu og sagði starfi sínu við Harvardháskóla lausu. I stað þess að fara um borð í leiðangursskipið í Vic- toria í Brezku Columbia, eins og til var ætlazt, kaus hann held- ur að fara landveg frá Boston og mæta skipinu við Herschel- eyju í norðuríshafinu við mynni Mackenzieárinnar. Það var Vil- hjálmi líkt, að jafnvel sem byrj- andi í landkönnun gat hann ekki samið sig að siðum annarra. Hann hefði getað sparað sér mikið erfiði, ef hann hefði farið með lest frá Brezku Columbia, en hann kaus heldur að leggja á sig erfiðið. Leffingwell og Mik- kelsen voru aðeins skuldbundnir til að borga ferðakostnað hans frá Victoria og Vilhjálmur varð því að leggja nokkuð af mörk- um sjálfur og kaupa sér útbún- að. Einn af samkennurum hans hefur sagt um brottför hans: „Hann var eins og hann ætti ekki bót fyrir rassinn á sér þeg- ar hann lagði af stað. Hann var með allar föggur sínar í rósa- klút og minnti einna helzt á járnbrautarviðgerðarmann.“ Hið rétta var þó, að Vilhjálm- ur hafði nurlað saman nærri þúsund dollurum, en hann var þeirrar skoðunar, að bezt væri að ferðast með léttan mal. Ferðin til Herscheleyjar reynd- ist vandasamari en hann hafði ætlað. Nyrðri hluti leiðarinnar að mynni Mackenzieárinnar var, að því er virðist, ekki sérlega fjölfarin, og álitið er, að Vil- hjálmur hafi ekki alltaf farið troðnar slóðir. Farartæki hans voru margvísleg. Sumstaðar á leiðinni um Kanada var of grýtt til að ganga og varð hann þá að fara með lest. Annars stað- ar fór hann ríðandi á hestum, fleytti sér niður ár á flekum, synti eða gekk. Þó að Vilhjálm- ur hafi alla tíð gert lítið úr því að erfitt sé að ferðast um norð- urhjarann, viðurkennir hann hreinskilnislega, að sum atvik í þessari ferð hafi verið ógeð- felld. Hann viðurkennir, að mý- ið hafi valdið sér miklum óþæg- indum. ,,Það kom stundum eins og ský af himni,“ segir hann. „Sumar flugurnar voru eins og haukar.“ En þrátt fyrir erfið- leikana, naut Vilhjálmur ferðar- innar í ríkum mæli, og sá fasti ásetningur skapaðist hjá hon- um, að helga sig landkönnun í framtíðinni. Svo fór, að lítið varð úr leið- angri Leffingwells og Mikkel- sens. Leiðangursskipið rakst á sker og leiðangursmenn komust
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.