Úrval - 01.06.1951, Blaðsíða 52
50
ÚRVAL
hefur það aðeins borið árang-
ur hjá börnum.
Fyrir 10—12 árum gerði dr.
Philip Jay, kennari við tann-
læknadeild Michiganháskólans,
mjög merkilega tilraun. Hann
vildi vita hvaða áhrif sælgætis-
át hefði á tennurnar. Til tilraun-
anna valdi hann böm á barna-
heimili. Börnin á heimilinu lifðu
að mestu á kartöflum, brauði
og öðrum kornmat. Of lítið var
af mjólk, kjöt sama og ekk-
ert, og sama gegndi um aðrar
fosfórauðugar fæðutegundir.
Mataræðið var yfirleitt lélegt
með tilliti til þroska barnanna,
og einnig með tilliti til þess, sem
menn vissu um tannheilbrigði.
Samt höfðu börnin tiltakanlega
góðar tennur.
Dr. Jay vildi komast að raun
um, hvað yrði um tennur barn-
anna, ef þau fengju nægju sína
af sælgæti. Hópur, sem taldi 51
barn og bjó í tveim kofum út
af fyrir sig, var valinn til til-
raunanna. Hin 77 börn heimilis-
ins voru notuð til samanburðar.
Tvisvar á dag var börnunum
í kofunum boðið allt það sæl-
gæti, sem þau gátu torgað, og
einu sinni í viku — fyrir hádeg-
ið — var tekið frá þeim munn-
vatn til að rannsaka hve mikið
væri af sýrugerlum í því. Til-
raunirnar stóðu yfir í- fjóra
mánuði.
I augum leikmanns leikur eng-
inn vafi á um árangurinn. í eitt
ár áður en tilraunirnar hófust
höfðu aðeins 13% barnanna sýnt
merki um virka tannátu, en eft-
ir f jögra mánaða sælgætisát var
hundraðstalan orðin 44. Auk
þess kom í ljós, að hjá 80% sæl-
keranna hafði sýrugerlum i.
munnvatninu f jölgað svo mjög,
að hlaut að leiða til tannátu.
En áður en þrjár vikur voru
liðnar frá því að sælgætisátinu
var hætt, tók sýrugerlunum að
fækka hjá næstum öllum börn-
unum. I skýrslu sinni til amer-
íska tannlæknafélagsins segir
dr. Jay með varkárni vísinda-
mannsins: „Þessar athuganir
sanna ekki ótvírætt, að mikið
sælgætisát auki tannátuna, en
þær benda í þá átt.“
Ef rétt væri, að hollt fæði
styrkti tennurnar gegn tannátu,
mætti ætla, að tannáta hefði
farið í vöxt í þeim löndum, sem
bjuggu við lélegt viðurværi á
stríðsárunum. En athuganirnar
í Ítalíu, sem fyrr er frá greint,
bentu til hins gagnstæða. Hver
er skýringin á þessu? Næstum
allar skýrslur í þessu sambandi